Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Síða 29
landinu mest í þeim skógi. Á tjald- svæðinu sjálfu er blakvöllur, grasa- garður með fiðrildum, lítil verslun, grillaðstaða, góðar sturtur og fín aðstaða fyrir börn. Svo má ekki gleyma því að stjörnubjartur himinninn er einkar skýr á kvöldin. Opið er 9. júní-17. september, en Guardian valdi þetta tjaldsvæði eitt það besta í Evrópu á dögunum. Svo er hægt að fara í fimm stjörnu hálfgerða tjaldævintýra- garða eins og Norcenni Girasole í Figline í Toskana-héraði. Frá tjald- svæðinu er útsýni yfir skógi vaxnar hæðir héraðsins, en fjörið er mikið á staðnum. Þannig er vatnsrenni- brautagarður á staðnum, veitinga- staðir, ísbúðir og stutt er að skreppa til staða eins og Flórens og á markaðinn skemmtilega í bænum Greve Chianti sem er ekki langt frá. Hægt er að vera í tjaldi eða leigja ýmsar gerðir af litlum bústöðum. Opið er 17. apríl-14. október. Annað gott er Domaine les Ormes í Bretaníu í Frakklandi. Tjaldsvæðið er byggt í kringum herragarð og býður upp á 18 holu golfvöll, vatn, reiðtúra, stóran leik- völl og gistingu í tréhúsum. Allt um kring er falleg gömul þorp að finna og blómaakra. Vilji fólk taka eina nótt innandyra er líka þriggja stjörnu hótel á herragarðinum og við það eru góðar sundlaugar sem gestir tjaldsvæðis- ins geta líka keypt sér aðgang að. Það er upplifun fyrir Íslendinga að vera í tjaldi í veðurblíðu að næturlagi. 22.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Fylgja tilfinningunni Hvað hefurðu sjálf í huga þegar þú velur húsnæði fyrir þig og þína? „Mér er sama hvort það er sjón- varp eða ekki í íbúðinni en ég vil hafa góða verönd og útisvæði og ekki er verra ef það er stutt í fallega náttúru, við fjölskyldan sækjumst aðallega eftir svoleiðis og yfirleitt gerir það útslagið. Þegar ég er að ganga frá við- skiptum eru það samskiptin við fólkið sem láta mig taka loka- ákvörðun. Ef ég fæ góða tilfinningu fyrir fólkinu þá kýli ég á þetta því svona skipti snúast fyrst og fremst um traust og ef það er ekki góð til- finning sem fólk hefur og sameig- inlegur skilningur þá á maður að sleppa þessu því það er engin trygg- ing í þessu og fjölskyldurnar eru að treysta hvor annarri fyrir heimilum sínum. Ég hef sjálf aldrei lent í vondri upplifun, frekar kynnst frábæru fólk og fengið góðar leiðbeiningar, gestir hafa gengið vel um hjá mér og svo- leiðis en ég hef bakkað út úr við- skiptum þar sem ég hef fengið ein- hverja tilfinningu þegar ég ræði við fólkið. Það er hægt að hætta við meðan fólk er á þessu frumstigi, svo að það skiptir miklu máli að flýta sér ekki um of.“ Það er ekki orðum aukið að Snæ- fríður er með ferðalög á heilanum eins og hún segir sjálf en í maí kemur út önnur önnur handbók eftir hana, um Tenerife, en fjöl- skyldan er mjög hrifin af Kanarí- eyjunum og síðustu jól voru þau sex vikur á Tenerife en þangað hafa þau oft farið og oft skipt við sama fólkið. „Þar sem við höfum skipt svo oft við heimamenn höfum við fengið svo góð ráð frá þeim, ábendingar um hluti til að sjá og gera sem kannski hinn almenni túristi veit ekki. Hvað er það sem Tenerife hefur? „Fáir staðir í Evrópu eru jafn- öruggir með vetrarsól, veðursældin er mikil og svo er eyjan, þrátt fyrir að vera lítil, með svo fjölbreytta náttúru. Á einum og sama deginum geturðu snert snjó, gengið í gegnum regnskóg, skoðað pýramída og farið á ströndina.“ Útsýnið úr íbúð í Amsterdam. Snæfríður myndar gjarn- an útsýnið úr íbúðunum með kaffibolla í forgrunni. Á hæsta fjalli Spánar, nálægð við náttúru skiptir fjölskylduna máli. Íslendingar hafa einkum notað vefsíðurnar intervac.com og homeexchange.com og segist Snæfríður geta mælt heilshugar með þeim. Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds • Þú velur síðu sem þú vilt auglýsa á. • Þú býrð til auglýsingu. • Þú sendir fyrirspurnir til ann- arra meðlima og tekur á móti tilboðum. • Þú finnur einhvern sem þú vilt skipta við og þið gangið frá samkomulaginu. • Þú bókar flugmiðana. • Þú ert í sambandi við við- komandi alveg fram að skipt- um til að skapa traust ykkar á milli. • Þú undirbýrð heimili þitt. • Þú lætur heyra í þér á meðan þú ert á heimili skiptiaðilans. • Þú skilur vel við heimilið sem þú færð lánað. • Þú þakkar fyrir þig og skrifar umsögn um skiptin. ÚR BÓKINNI Íbúðaskipti í hnotskurn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.