Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Borgin lofar 100 íbúðum
Einn af frambjóðendum Samfylkingarinnar vill vernda saltfiskreitinn
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Borgarráð Reykjavíkur hefur veitt
Byggingarfélagi námsmanna og
Félagi eldri borgara vilyrði fyrir
byggingarrétti að allt að 50 íbúðum
hvoru á Stýrimannaskólareit.
Spurður um þessi lóðavilyrði segist
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar, ekki vita betur en að
vilyrðin hafi verið samþykkt í
borgarráði en þau veitt með fyr-
irvara um samþykki og staðfest-
ingu deiliskipulags á umræddum
byggingarreit. Búið er að gera
drög að breytingu á aðalskipulagi
en slík breyting hefur ekki verið
samþykkt. „Þetta tekur allt sinn
tíma en ég á ekki von á því að það
taki neitt óeðlilega langan tíma.
Þessi skipulagsvinna er rétt að
byrja með þessum drögum að
breytingu á aðalskipulagi,“ segir
Hjálmar og bætir við að í þeirri
vinnu verði haft samráð við Minja-
stofnun Íslands og Borgarsögu-
safn. Sóknarnefnd Háteigskirkju
hefur lagst alfarið gegn áformum
um byggingu íbúða á Stýrimanna-
skólareitnum. Þá hefur hópurinn
Vinir Saltfiskmóans óskað eftir því
við borgaryfirvöld að fá að taka
umrætt svæði í fóstur með það að
markmiði að hirða um reitinn.
Mun ræða við samflokksmenn
Sagnfræðingurinn Guðjón Frið-
riksson, sem skipar 21. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík,
segir í færslu á fésbókarhópnum
Saltfiskmóinn að hann muni beita
sér fyrir því eftir fremsta megni að
ekki rísi íbúðabyggð á reitnum.
„Saltfiskreitirnir sem eru vel sjá-
anlegir þarna vestur af Sjómanna-
skólanum eru líklega þeir einu sem
varðveist hafa í Reykjavík. Ég sem
sit á framboðslista Samfylkingar-
innar í borginni mun beita mér fyr-
ir því af fremsta megni að ekki rísi
íbúðabyggð á reitnum en raunar
hefur ekkert verið ákveðið um það.
Einungis talað um mögulega íbúða-
byggð,“ ritar Guðjón.
Hann segir í samtali við Morg-
unblaðið að hann muni ræða við
samflokksmenn sína um málið,
annaðhvort Dag B. Eggertsson
borgarstjóra eða Hjálmar Sveins-
son ásamt því að senda inn sínar
athugasemdir til borgarinnar með
formlegum hætti.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrsta kísilmálminum var í gær
tappað af ljósbogaofni kísilvers
PCC BakkiSilicon á Bakka við
Húsavík. Á ýmsu hefur gengið við
upphitun ofnsins en hún hefur þó
verið án slysa á fólki og nágrannar
verksmiðjunnar hafa ekki orðið var-
ir við mengun frá henni.
Enn er verið að hita upp fyrsta
ofninn, Birtu, en Hafsteinn Vikt-
orsson, forstjóri fyrirtækisins, von-
ast til að hann verði kominn í fullan
rekstur um helgina. „Alltaf eru að
koma upp smávægileg vandamál og
allt tekur þetta lengri tíma en
reiknað var með. Við förum gæti-
lega. Ætlum hvorki að leggja starfs-
fólk okkar í hættu né leggja of mik-
ið á umhverfið,“ segir Hafsteinn.
Gripið til neyðarreykháfa
Enn er verið að fínstilla reyk-
hreinsivirkið og uppfæra tölvufor-
rit. Tvisvar hefur þurft að grípa til
neyðarreykháfanna, í stutta stund í
hvort skipti, og þá hefur sést reyk-
ur frá verksmiðjunni. Ekki er þó
vitað til þess að lykt eða mengun
hafi borist út fyrir verksmiðjulóð-
ina.
Eftirlitsmenn Umhverfisstofnun-
ar hafa tvisvar komið til að skoða
aðstæður á meðan unnið hefur verið
að uppkeyrslu ofnsins en ekki gert
neinar athugasemdir.
Fyrsta málminum tappað af ofninum
Á ýmsu hefur gengið við upphitun ljósbogaofns PCC á Bakka við Húsavík
Ljósmynd/PCC BakkiSilicon
Framleiðsla Starfsmenn PCC vinna að því að tappa fyrsta kísilmálminum
af ljósbogaofninum sem enn er verið að keyra upp í full afköst.
Séra Elínborg
Sturludóttir,
sóknarprestur í
Stafholts-
prestakalli í Borg-
arfirði, hefur ver-
ið kjörin prestur
við Dómkirkjuna í
Reykjavík. Þetta
var niðurstaða
kjörfundar í vik-
unni, en niður-
staðan var kunngerð í gær. Elínborg
og sr. Gunnar Jóhannesson voru þeir
tveir umsækjendur af fjórum sem
metnir voru hæfastir. Fyrir þjónar
við Dómkirkjuna sr. Sveinn Val-
geirsson, sem er sóknarprestur.
„Ég hlakka til að þjóna við Dóm-
kirkjuna sem ég hef sterkar taugar
til. Það liggur ekki fyrir hvenær ég
kem til starfa, því eftir er að velja
sóknarprest í minn stað hér í Staf-
holti og þá á fjölskyldan eftir að
ganga frá ýmsu. Sauðburði er til
dæmis ekki lokið,“ segir Elínborg
sem hefur þjónað sl. tíu ár í Borgar-
firði og fimm ár þar áður í Grundar-
firði. sbs@mbl.is
Sr. Elínborg
kjörin í Dóm-
kirkjuna
Séra Elínborg
Sturludóttir
Kemur þegar
sauðburðinum lýkur
„Þetta mál er bara leyst, þær sem
vilja alls ekki vinna í kjól geta fengið
að vera í skyrtu og buxum, eins og
hefur alltaf verið,“ segir Stefán
Magnússon, framkvæmdastjóri
Hard Rock Café á Íslandi, í samtali
við Morgunblaðið um kvartanir frá
Eflingu vegna tilmæla um að kven-
kyns starfsmenn staðarins klæddust
kjólum, og segir málið storm í vatns-
glasi.
„Ég vil að það komi skýrt fram að
frá opnun staðarins hefur aldrei ver-
ið um það að ræða að starfsmenn
væru skyldaðir í kjóla, það hefur
alltaf verið val, jafnvel þótt stefna
Hard Rock Café sé að kvenkyns
starfsmenn séu í kjólum,“ segir Stef-
án.
Stefán gagnrýnir vinnubrögð Efl-
ingar sem hann segir hafa farið of-
fari í málinu. Enginn hafi haft sam-
band við sig frá Eflingu, áður en
félagið sendi honum kröfubréf og
birti harðorða fréttatilkynningu um
málið á vef sínum svo að málið blés
upp í fjölmiðlum. ernayr@mbl.is
Segir kjólamál
á Hard Rock
vera storm í
vatnsglasi
Efri byggðirnar á höfuðborgarsvæðinu eru ein-
stakt útivistarsvæði og þar eru jafnan margir á
ferli: göngufólk, hlauparar, reiðhjólamenn og
knapar á klárum sínum, enda eru hesthúsasvæði
á þessum slóðum. Þessi unga hestakona fór á
fáki sínum við Rauðavatn og naut útiverunnar.
Ætla má þó að sprett verði úr spori og hraðar
farið yfir þegar kemur fram á sumarið og hest-
urinn orðinn vel þjálfaður. Raunar er heilmikið
framundan í hestasportinu um þessar mundir og
má þar að nefna að Landsmót hestamanna verð-
ur haldið í Víðidal í Reykjavík 1. til 8. júlí í sumar
en búast má við að þúsundir gesta sæki mótið og
má þar kynnast öllu því besta í íslenskri hesta-
mennsku, sem þykir vera í fremstu röð.
Viðrar fák sinn í gróðursæld við Rauðavatn
Morgunblaðið/Eggert
Í útreiðartúr í vorblíðunni í efri byggðum borgarinnar
Opnað var fyrir
utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu
á höfuðborgar-
svæðinu fyrir
komandi sveitar-
stjórnarkosn-
ingar í gær. Alls
höfðu 211 manns
greitt utankjör-
fundaratkvæði um kl. 21 en kjör-
staður var opinn til kl. 22. Sam-
kvæmt upplýsingum frá kjörstað
var afar rólegt seinni hluta dags og
greiddu einungis sjö manns at-
kvæði milli kl. 19 og 21. Bergþóra
Sigmundsdóttir, hjá Sýslumann-
inum á höfuðborgarsvæðinu, segir
utankjörfundaratkvæðin vera fleiri
í ár en í síðustu sveitarstjórnar-
kosningum en þó færri en í síðustu
alþingis- og forsetakosningum.
Um 200 manns
hafa greitt atkvæði