Morgunblaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018
ALLTAF KLÁRT
Í ÞRIFINAJAX
NÚ FÆRÐU
AJAX með
matarsóda og sítrónu
og AJAX
með ediki og eplum
Hjálpar þérað gera heimiliðskínandi
hreint
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Náttúrusýningin Undur íslenskrar
náttúru verður opnuð í Perlunni á
laugardaginn kemur. Til stóð að
opna sýninguna í byrjun mánaðarins
en vegna eldsvoða var því frestað.
Gunnar Gunnarsson, forstjóri
Perlunnar, segir verkefnið hafa unn-
ist hratt. „Safnahönnuðir okkar vita
ekki um neitt safn í heiminum af
þessari stærðargráðu sem hefur ver-
ið opnað með slíkum hraða. Vana-
lega er þetta fimm til tíu ára ferli.
Hér á Íslandi göngum við hratt til
verks,“ segir Gunnar og lýkur lofs-
orði á slökkviliðið. Það hafi með
snarræði m.a. bjargað tækjabúnaði í
opnunarsal nýju sýningarinnar frá
eyðileggingu vegna eldsins.
Forðaði miklu tjóni
„Hingað flæddi mikið vatn. Því
rigndi niður á gólfið sem eyðilagðist.
Veggirnir fóru illa. Við náðum samt
að bjarga þeim. Slökkviliðið byrjaði
strax að vernda munina og setja
plast utan um tækjabúnað. Þannig
sparaði slökkviliðið okkur tugi millj-
óna. Þökk sé slökkviliðinu eyðilagð-
ist ekki einn einasti skjávarpi. Tölvu-
búnaðurinn slapp líka alveg. Það var
aðeins þessi veggur og gólfið sem við
stöndum á,“ segir Gunnar og bendir
á veggi opnunarsalarins. Þar munu
gestir fræðast um eldfjöll, jarð-
skjálfta, plötuhreyfingar, jarðhita og
hvernig Ísland varð til.
„Við erum með hljóð og myndir og
gestir munu finna fyrir kröftum ís-
lenskrar náttúru. Í kjölfarið munu
gestir ganga inn í rými með sýningu
um jarðsögu Íslands eins og hún hef-
ur aldrei verið sögð áður.“
Unnið með heimsþekktu félagi
Líkt og fyrri sýningin verður sú
nýja með gagnvirku sýningarefni.
Sýning er m.a. hönnuð og framleidd
af kanadísku fyrirtækjunum Lord
Cultural Resources og Realisations
sem Gunnar segir heimsþekkt á sínu
sviði. Realisations hafi til að mynda
unnið náið með sirkusnum Cirque du
Soleil. Eigandi fyrirtækisins hafi
sýnt Perlunni sérstakan áhuga.
Gunnar segir Perlunni ætlað að
vera fyrsti áfangastaður erlendra
ferðamanna. Á sýningunni fái þeir
kynningu á íslenskri náttúru og læri
að umgangast náttúru landsins.
Hann segir sýninguna unna í sam-
starfi við Reykjavíkurborg, Nátt-
úruminjasafn Íslands, Náttúru-
gripasafn Íslands og háskóla-
samfélagið. Lætur náttúruminja-
safnið til dæmis nýja safninu í té
höfuðkúpu af rostungi og risafuru
sem margir muna úr Háskólabíói. Þá
verður ísbjörn á sínum stað.
Fuglaáhugamenn munu hafa
margt að skoða á nýju sýningunni.
Gunnar sýnir blaðamanni næst
sýningarklefa um Mývatn.
„Hér má sjá dýrin og heyra söngin
í fuglunum á Mývatni. Okkar virt-
asta háskólafólk vinnur textana. Það
hafa allir lagst á eitt um að gera
þetta sem best,“ segir Gunnar og
gengur svo að endurgerð af hluta
Látrabjargs.
Sýndarveruleiki í Látrabjargi
Þar eru yfir 120 fuglar og önnur
dýr. Gestir geta skoðað þá í gegnum
sjónauka og lifnar bjargið þá við.
Fuglar fara á flug. Gestir geta svo á
gagnvirkan hátt skoðað fuglana bet-
ur og fara þá inn í sýndarveruleika.
„Við segjum níu sögur af því hvað
gerist í þessum skýjakljúfi
fuglanna,“ segir Gunnar.
Frá fuglabjarginu liggur leiðin í
rými sem er tileinkað hafinu um-
hverfis Ísland. Þar varpa sex skjá-
varpar mynd af lífinu í sjónum um-
hverfis Ísland. Líður gesti þá m.a.
eins og hann sé á sundi með selum.
Þegar gengið er út úr rýminu standa
gestir á glergólfi og undir því synda
hvalir. „Þessa mögnuðu sýn geta all-
ir gestir Perlunnar upplifað úr stig-
anum og af 4 og 5 hæð Perlunnar.
Svona hefur enginn gert áður í heim-
inum,“ segir Gunnar Gunnarsson.
Jöklasýningin Jöklar og íshellir
var opnuð í Perlunni í júní í fyrra-
sumar. Sú sýning verður nú hluti af
sýningunni Undur íslenskrar
náttúru.
Dýraríkið lifnar við í Perlunni
Ný náttúrusýning verður opnuð í Perlunni laugardaginn 19. maí Með eftirgerð af Látrabjargi
Forstjóri Perlunnar segir slökkviliðið hafa unnið þrekvirki þegar eldur kviknaði í Perlunni
Haförn Fræðast má um dýraríkið á nýju sýningunni. Látrabjarg Á sýningunni má sjá sjófuglana í leit að æti. Hvalir Það er engu líkara en að hvalir syndi undir gólfinu.
Morgunblaðið/RAX
Athafnamaður Gunnar Gunnarsson, forstjóri Perlunnar, við íshellinn.
Sýningin stækkar svo frekar með
opnun stjörnuvers í október. Það
verður í einum tanka Perlunnar og
með rými fyrir 150 gesti.
Gunnar Gunnarsson, forstjóri
Perlunnar, lofar stórbrotinni upp-
lifun. Markmiðið er að gestir geti
séð, heyrt og „snert“ norðurljósin
með nýrri tækni. Teknar hafi verið
stórbrotnar myndir af norðurljósum
sem lýstu upp fjörð á Austurlandi.
Þar með er ekki öll sagan sögð því
í desember opnar Náttúruminjasafn
Íslands sýninguna Vatn í náttúru Ís-
lands á 2. hæðinni.
„Íslensk náttúra er einstök en við-
kvæm. Gríðarlegt álag hefur verið á
náttúruna undanfarin ár vegna
fjölgunar ferðamanna og þar sjáum
við tækifæri. Perlan getur hjálpað til
við náttúruvernd. Hér getur fólk
komið og kynnst undrum íslenskrar
náttúru án þess að ganga á hana,“
segir Gunnar að lokum.
Stjörnuver verður
opnað með haustinu
Tveir áfangar fram undan á árinu
Fróðleikur um náttúruna Sýningin er með efni fyrir gesti á öllum aldri.