Morgunblaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 ✝ Arnór Aðal-steinn Stígsson fæddist á Horni í Sléttuhreppi 14. janúar 1922. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Eyri á Ísa- firði 6. maí 2018. Foreldrar hans voru Stígur Bæring Vagn Haraldsson frá Horni, f. 13.9. 1892, d. 8.9. 1954, og Jóna E. Jóhannesdóttir frá Höfða, f. 1.9. 1892, d. 15.3. 1984. Systkini Arnórs eru 1) Har- aldur Stígsson, f. 1914, d. 2009, maki Elín Guðmundsdóttir, f. 1921, d. 1964. 2) Bergmundur Stígsson, f. 1915, d. 1994, maki Jóna Björg Guðmundsdóttir, f. 1915, d. 2002. 3) Drengur Stígs- son, f. d. 1917. 4) Sigrún Krist- jana Stígsdóttir, f. 1919, d. 1994, maki Hörður Davíðsson, f. 1917, d. 2011. 5) Rebekka Stígsdóttir, f. 1923, maki Sturla Halldórs- son, f. 1922, d. 2008. 6) Anna Stígsdóttir, f. 1925, barnsfaðir, 3) Svanfríður Arnórsdóttir, f. 18.3. 1954, maki Jóhann Guð- mundur Sigfússon, f. 1954, slitu sambúð. Saman eiga þau Valdi- mar, f. 1976, Aðalheiði, f. 1980, og Jóhann Friðgeir f. 1981. 4) Elfa Dís Arnórsdóttir, f. 21.7. 1957, maki Guðmundur Eydal, f. 1956, slitu sambúð, saman eiga þau Kristbjörn Eydal, f. 1976, og Sigrúnu Jónu, f. 1977. Seinni maki er Gunnar Örn Hauksson, f. 1950, slitu sambúð, saman eiga þau Hauk Ársæl, f. 1985, og Jóhann Örn, f. 1987. Langafabörnin eru 22 tals- ins. Arnór lagði stund á hús- gagnasmíði og bjuggu þau Mál- fríður allan sinn búskap á Ísa- firði. Arnór starfaði við smíð- arnar allt fram til ársins 2016 þegar hann flutti á hjúkrunar- heimilið Eyri. Hann var lengi meðlimur í karlakór Ísafjarðar, Kirkjukór Ísafjarðar og Sunnu- kórnum ásamt því að starfa í Frímúrarareglunni allt frá ár- inu 1974. Hann lagði stund á gönguskíði og skíðastökk. Hann varð meðal annars Vestfjarðameistari í þessum greinum árið 1947. Útför Arnórs fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 12. maí 2018, kl. 11. Ragnar Aðalsteinn Ingólfsson, f. 1925, d. 1997. 7) Helga Friðrika, f. 1926, d. 2005, maki Ragúel Hagalínsson, f. 1921, d. 1999. 8) Guðný Stígsdóttir, f. 1928, d. 1972, maki Benedikt Davíðsson, f. 1927, d. 2009. 9) Stígur Stígsson, f. 1930, maki Halldóra Daníelsdóttir, f. 1929, d. 2010. Hinn 25.6. 1949 gekk Arnór að eiga Málfríði Halldórsdóttur, f. 22.5. 1931, d. 8.11. 2008. Börn þeirra eru: 1) Jóna Arnórsdóttir, f. 18.3. 1949, d. 10.3. 1961. 2) Stígur Arnórsson, f. 11.8. 1952, maki Jónína Auður Sigurðardóttir, f. 1956, slitu sambúð, barn þeirra er Arnór, f. 1975. Núverandi maki Björk Helgadóttir, f. 20.11. 1959, fyrir á hún soninn Davíð Sveinsson, f. 1976. Saman eiga þau Ara, f. 1984, og Helgu Björk, f. 1990. Elsku pabbi okkar kvaddi okk- ur 96 ár gamall hinn 6. maí síðast- liðinn! Við erum innilega þakklát fyr- ir að hafa fengið allan þennan tíma með þessum gleðigjafa. Hann var besta fyrirmynd sem nokkur getur hugsað sér. Hann var vinnusamur og vann við iðn sína langt fram yfir nírætt, ein- staklega vandvirkur og ráðagóð- ur. Hér á Ísafirði og víðar má sjá verkin hans! Sem dæmi; Tjöru- húsið, Turnhúsið og Faktorshús- ið í Neðstakaupstað, sem hann sá um uppbyggingu á og eru mikil bæjarprýði á Ísafirði. Einnig má nefna gamla sjúkrahúsið, þar sem hann meðal annars smíðaði útihurðirnar sem eru algert lista- verk. Hann var mikill sögumaður og kunni heilu ljóðabálkana utan að, einnig mjög góður söngmaður og hafði unun af öllu sem snéri að söng og tónlist. Skíðaíþróttin var honum mikið áhugamál og stundaði hann skíðagöngu fram yfir áttrætt. Hann fór á Seljalandsdalinn til að fylgjast með Fossavatnsgöng- unni núna fyrir nokkrum dögum og hafði mikla ánæju af. Hann hafði mikla unun af börnum og alltaf til í sprell og leiki við þau. Lífið á Hornströndum þar sem hann ólst upp til fullorðins ára, lýsti hann alltaf eins og ævintýri og eintínslastaklega gaman að hlusta á hann lýsa daglegu lífi þar. Eggjatínsla í bjarginu, sjó- róðrar, bjargsig og aðstæður sem fólk í dag á erf- itt með að ímynda sér hvernig voru á þeim tíma. Hann var einstaklega vel lið- inn af félögum sínum í Frímúr- arareglunni og vann að uppbygg- ingu húsnæðis þeirra af miklum dugnaði og var virkur og trúr fé- lagi í Njálu til æviloka. Pabbi flutti á Hjúkrunarheim- ilið Eyri í desember 2016. Honum leið mjög vel þar með góðum vin- um og frábæru starfsfólki sem við kunnum góðar þakkir fyrir. Fram á síðasta dag var hann létt- ur og kátur og fólki leið vel í kringum hann. Fegurðin er frá þér barst, fullvel þótti sanna, að yndið okkar allra varst, engill meðal manna. Hlutverk þitt í heimi hér, þú hafðir leyst af hendi. Af þeim sökum eftir þér, Guð englahópa sendi. Sú besta gjöf er gafstu mér, var gleðisólin bjarta, Sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. (B.H.) Ástarþakkir fyrir allt og allt, elsku pabbi okkar, Stígur, Svanfríður og Elfa Dís. Yfir tindum Hornbjargs háum himinvindar leika dátt, hvirfla myndum bernskubláum beina lyndi í sólarátt. Þessar ljóðlínur, sem urðu eitt sinn til á þorrablóti Sléttuhrepp- inga, koma upp í hugann, þegar yndislegur öðlingur hefur nú kvatt þennan heim. Arnór Stígsson frá Horni í Hornvík var einstakur maður. Hann varð 96 ára gamall, en hélt reisn sinni til síðasta dags. Allt frá unga aldri þjálfaði hann lík- ama sinn og varð afbragðs íþróttamaður og fór snemma að síga í björgin eftir eggjum. Skíða- ganga varð hans uppáhalds íþrótt og fór hann á skíði langt fram á níræðisaldurinn. Hann hafði góðan bakgrunn, hafði vanist því að þeytast yfir fjöllin t.d. frá Horni til Hesteyrar eftir lyfjum og öðrum nauðsynj- um og skipti þá veðrið ekki máli. Í þverhníptum fuglabjörgunum, Hornbjargi og Hælavíkurbjargi var mikil þörf á aðgæslu og var Arnór þekktur fyrir að vanda hvert fótmál á þræðingum. Það er ógleymanlegt að hafa séð hann í „bjarginu“. Það var hans heima- slóð, tindar Hornbjargs Þar sem himinvindar leika dátt. Og í seinni tíð hvirfluðust bernsku- myndirnar frá æskustöðvunum um huga hans. Andlegt atgervi Arnórs var með ólíkindum. Ég færði honum einn daginn afmælisdrápu eftir Jakobínu Sigurðardóttur, sem hún orti til móðurbróður síns, Sigmundar Guðnasonar skálds frá Hælavík. Arnór hafði ekki séð drápuna áður. Eftir einhverja daga kom ég til hans á Hjúkr- unarheimilið Eiri og fór hann þá með kveðskapinn, 18 erindi og fipaðist hvergi. Hann þurfti ekki, eins og við yngra fólkið, að fara með allt stafrófið til að muna hvað vinir og kunningjar hétu. Jónas Hallgrímsson segir í kvæði: Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjóa alefling andans og athöfn þörf. Það er öllum ljóst, sem þekktu Arnór Stígsson að hann lifði lífinu lifandi, maður athafna og andans maður, alltaf öðrum til fyrir- myndar. Í minningargrein, sem ekki má vera of löng, verður margt útund- an. Þannig er ekki fjölyrt um lífs- hlaup Arnórs í þessari grein, en hann var einn virtasti húsgagna- smiður á Ísafirði og eru þeir ófáir sem eiga handverk hans. Hann var prímus mótor í kóraflóru Ísa- fjarðar og söng m.a. í Sunnukórn- um, kirkjukórnum o.fl. Hann var mikill sagnamaður, stálminnugur og hafði frá mörgu að segja sem ekki lá á lausu annars staðar. Frá því ég var á barnsaldri hef ég þekkt Arnór Stígsson og flest hans fólk, fólk sem vakið hefur athygli mína fyrir hógværð, heið- arleika og jákvæðni. Gleðin hefur oftar en ekki verið í fyrirrúmi, gleðin sem stuðlar að langlífi og eflingu andans. Það er margs að minnast úr eldhúsinu á Hlíðar- vegi 32 þegar þau hjónin Addi og Malla, Málfríður Halldórsdóttir kona hans sem lést fyrir nokkr- um árum, léku á als oddi. Það var gaman. Það er með söknuði sem við kveðjum Arnór Stígsson en gleðin yfir því að hafa þekkt hann og átt hann að vini er ómetanleg. Við Guðrún og börnin okkar sendum Stíg, Svanfríði og Elfu Dís og fjölskyldum þeirra inni- legar samúðarkveðjur. Magnús Reynir Guðmundsson. Ég réði mig í sumarvinnu, þetta var upp úr 1980. Vinnu sem mér var treyst fyrir – nemi í listakademíu í útlöndum. Það var verið að gera upp höfuðdjásn húsa á Ísafirði og Arnór Stígsson var þar fyrir og bar ábyrgð á tré- smíðavinnu við það vandasama verk enda orðlagður völundur víða um sveitir. Við fyrstu kynni bauð hann af sér þann þokka að ég var hvergi smeykur. Ég var að skrapa glugga í einu herberginu og heyrði notalegt ættjarðar- söngl í eldhúsinu sem var næst- um í falsettu. Skyndilega skynj- aði ég yfirþyrmandi þögn og ég kíkti laumulega yfir. Þar stóð Arnór í hvíldarstöðu og horfði líkt og í leiðslu á athafnasvæði sitt. Á þessu augnabliki var ég kominn í Akademíu Arnórs Stígssonar. Hvert skref sem hann tók við vinnu sína var svo þrauthugsað að ég man aldrei eftir að hann þyrfti að taka upp verk. Hann gaf sér líka tíma – tíma sem margborgaði sig. Ég hef áttað mig á að akademía Arn- órs var ekki síðri en sú í útlönd- um þó að ég næði ekki þeirri færni sem hann bjó yfir frá hendi náttúrunnar. Það er ekki auðvelt að rifja upp öll þau ár sem við áttum sam- an í vinnu og draga eitt umfram annað. Auðvitað eru minnisstæð stórkarlaleg verk eins og að lyfta upp 200 m2 Turnhúsinu, rétta það af og koma undir það nýjum fót- stykkjum. Það tók vissulega dá- góða stund sem hann stóð í hvíld og íhugaði hvernig best væri að standa að þessu. Framkvæmdin varð líka einföld, fljótleg og að- allega stuðst við hið forna vog- arafl. Akademía Arnórs bauð upp á lausnamiðaða nálgun. Akademían bauð einnig upp á óvenju glæsilega sagnakúrsa. Það varð bókstaflega allt að sögu hjá Arnóri. Hann sagði frá með þeim hætti að þú varst staddur inni í sögu- sviðinu og skipti þá ekki máli hvort þú þekktir þar til eða ekki. Hver persóna sögunnar var fyrir þér ljóslifandi og umhverfi allt, landslag, húsakostur eða annað sem sagan snérist um. Smæsta hreyfing eða augntillit dró upp skýra mynd og umbreytti sagna- þulnum í þann sem um var rætt. Sagnaflokkarnir voru allt frá daglegu lífi á Hornströndum og Ísafirði til skíðaferða eða ferða- laga til framandi staða. Aldrei var hallað á neinn þó að kannski hefði mátt greina blæbrigðamun raddarinnar sem gaf þér færi á eigin túlkun, en umtalsbetri sögumann hef ég aldrei hitt. Í lifanda lífi útskrifaði Arnór mig ekki úr sinni akademíu enda var hér um símenntun að ræða þó að hún hafi verið stopul síðustu árin. Arnór hélt starfsgetu fram yfir nírætt og var sannur kenni- maður sem sat í hárri elli og út- hellti visku sinni þar til yfir lauk. Ég kveð minn mentor með virð- ingu og þakklæti og útskrifa mig aldrei úr akademíunni því minn- ingin um Arnór verður alltaf til staðar. Aðstandendum votta ég samúð mína. Jón Sigurpálsson. Elsku langafi. Takk fyrir allar góðu samverustundirnar. Manstu um jólin þegar við gáfum þér jólakúlurnar og þú settir þær á eyrun? Og þegar við amma og mamma komum til þín um jólin? Og þegar mamma og Hjálmar og ég komum um páskana? Og þeg- ar við komum á afmælisdaginn þinn í janúar þegar þú varðst 95 ára? Manstu þegar Högni og Geiri héldu afmælið sitt á Hlíða- veginum, var það ekki gaman? Ég mun sakna þín svo mikið og þú varst svo skemmtilegur. Og þú varst svo gamall. Sofðu rótt elsku langafi minn. Englanna skarinn skær skínandi sé mér nær. Svo vil ég glaður sofna nú sætt í nafni Jesú. Bestu kveðjur, Steinunn Elísa. Elsku afi. Það er sárt að kveðja þig, elsku afi minn, en jafnframt svo ljúft að minnast allra fallegu stundanna okkar saman. Ef þú vissir hvað þú hefur kennt mér margt. Hvað ég hef dáðst að þér og reynt að hafa þig til fyrir- myndar í mínu lífi. Þú hjartahlýi, glaðlyndi og fallegi maður sem alltaf hefur reynst mér og börn- unum mínum, Elfari Loga, Arnóri Páli og Steinunni Elísu, svo vel. Það sem mér finnst ég heppin að hafa fengið tækifæri til að eyða dýrmætum tíma með þér í gegnum tíðina þegar við höfum gist á Hlíðaveginum hjá þér. Þú byrjaðir alla morgna á því að segja góðan daginn hlæjandi og bauðst hlæjandi góða nótt á kvöldin. Að sitja með þér í eld- húsinu á kvöldin og hlusta á sög- urnar þínar sem þú sagðir af svo mikilli innlifun. Í hvert skipti sem við hittumst hafðirðu frá ein- hverju nýju að segja. Ég er svo þakklát fyrir að hafa komið vest- ur um páskana til að hitta þig og kynna þig fyrir elsku Hjálmari mínum. Þú náðir sannarlega að heilla hann upp úr skónum á þessum stutta tíma sem þið þekktust. Fyrir Steinu var líka ómetanlegt að fá að hitta þig, hún sem tengdist þér svo sterkum afaböndum. Þú talaðir alltaf mikið um hana Nanný þína sem þið amma misst- uð svo unga. Nú getið þið amma umvafið hana öllum kærleikanum sem þið hafið að gefa og við sem eftir sitjum eigum minningu um dásamlegan afa og yndislega ömmu sem mun ylja okkur um ókomna tíð. Takk fyrir allt, elsku afi minn. Takk og sofðu rótt. Þín Sigrún Jóna. Í dag er fyrrverandi tengda- faðir minn og kær vinur til margra ára, Arnór Aðalsteinn Stígsson, lagður til hinstu hvíld- ar. Það er erfitt að finna réttu orðin sem lýsa þessum öðlingi. Arnór var vinur vina sinna og sú vinátta algjörlega falslaus, hann var glettinn, hláturmildur, orð- heppinn og stríðinn. Það eru margar minningar sem renna í gegnum huga mér á þessari stundu eins og t.d. þegar hann kenndi páfugli, sem þau hjón áttu, að segja: aumingja Malla og þegar hann og kötturinn minn hann Debill voru að „ljó- nast“. Síðast en ekki síst var þegar Arnór sonur minn tók fyrstu sporin sín, voru þau til afa síns og nafna, sá yngri vissi að þar var hlýr, góður og traustur faðmur. Það verður skrítið og tómlegt að koma á Ísafjörð og eiga ekki erindi til þín, kæri vinur, en ég segi Guðs þökk fyrir allt og allt. Eftirfarandi ljóð segir allt sem þarf. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Minningin lifir í hug og hjarta okkar sem kynntumst honum. Kæri vinur, ég minnist þín með þakklæti og hlýju. Jónína Auður (Jóka). Arnór Aðalsteinn Stígsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KATRÍN ÞORSTEINSDÓTTIR, lést þriðjudaginn 24. apríl. Útför hennar fór fram frá Grindavíkurkirkju 3. maí í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð. Eyjólfur Vilbergsson Ragnheiður G. Eyjólfsdóttir Sigurður A. Kristmundsson Guðrún V. Eyjólfsdóttir Katrín Lóa, Sigurbjörg, Eyjólfur og Krista Líf Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn 6. maí. Útförin fer fram í Kópavogskirkju þriðjudaginn 15. maí klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Guðný Sif Jónsdóttir Halldór Eyþórsson Tómas Árni Jónsson María Jónsdóttir Helga Aðalheiður Jónsdóttir Guðmundur Vilhjálmsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS BREIÐFJÖRÐ HJARTARSON, (Maggi kók), lést föstudaginn 27. apríl á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Fjölskyldan þakkar starfsmönnum á Roðasölum og Skógarbæ fyrir góða umönnun. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin. Gunný Gunnarsdóttir dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS INGA RAGNARSSONAR málarameistara. Hjartans þakkir til Breiðabliks fyrir stuðninginn og líknardeildar Landspítalans fyrir hlýju og góða umönnun. Alda Sveinsdóttir Ragnar Jónsson Ingibjörg Hrönn Jónsdóttir Per-Arne Svensson Linda Dröfn Jónsdóttir Örn Steinar Arnarson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.