Morgunblaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018
Jarðvísindamenn telja að möguleiki sé á meiri-
háttar eldgosi úr Kilauea-eldfjallinu á Hawaii.
Fjallið hóf að gjósa fyrir um viku og hefur
hraun runnið í stríðum straumum frá því síð-
an. Hafa vísindamenn hvatt til að Eldfjalla-
þjóðgarðinum á eyjunni verði lokað í varúðar-
skyni.
Vísindamennirnir segja að nú sé yfirborð
hraunsins í gíg eldfjallsins að lækka og það
gæti þýtt að sprenging innan hans væri í upp-
siglingu. Fari yfirborð hraunsins undir grunn-
vatnsborðið geti kvikan komist að vatni og hit-
að það og mikil gufa myndast, að sögn Ingrid
Johanson eldfjallafræðings. Og ef hraunmolar
falla úr veggjum gígsins gæti myndast stífla.
Þá myndast mikill þrýstingur undir sem „get-
ur að lokum valdið mikilli sprengingu“, að því
er fréttaveitan AFP hefur eftir Johanson.
Þessi atburðarás gæti hafist um miðjan mán-
uðinn að mati vísindamanna.
Í aðdraganda gossins var 5 stiga jarð-
skjálfti. Eftir að gosið hófst á fimmtudag í vik-
unni sem leið varð svo 6,9 stiga skjálfti sem er
sá stærsti sem mælst hefur á Hawaii frá árinu
1975.
Eldgosið hefur valdið mikilli eyðileggingu í
íbúabyggð í grennd fjallsins en engan hefur
sakað.
Kilauea er eitt virkasta eldfjall heims og er
eitt af fimm eldfjöllum á Stórueyju á Hawaii.
Vísindamenn telja hættu á
miklu eldgosi á Hawaii
AFP
Eldgos Hraun hefur runnið frá Kilauea-eldfjallinu á Hawaii frá því að það byrjaði að gjósa fyrir
rúmri viku. Bandarískir jarðvísindamenn telja hættu á miklu sprengigosi í fjallinu á næstunni.
Konungur Malasíu hefur samþykkt
að veita Anwar Ibrahim sakarupp-
gjöf sem tekur gildi samstundis, að
sögn nýs forsætisráðherra landsins í
gær. Þykir þetta benda til þess að
Anwar Ibrahim, sem hefur setið í
fangelsi frá árinu 2015 fyrir samkyn-
hneigð, verði næsti forsætisráðherra
landsins.
Mahathir Mohamad sór í gær
embættiseið sem forsætisráðherra
Malasíu eftir að kosningabandalag
stjórnarandstöðuflokka, sem hann
fór fyrir, vann óvæntan kosningasig-
ur um helgina. Mahathir varð þar
með elsti þjóðarleiðtogi heims en
hann er 92 ára að aldri.
Mahathir var áður leiðtogi flokka-
bandalags, sem fór með völd í Malas-
íu frá árinu 1957, þegar landið fékk
sjálfstæði, þar til í gær. Hann var
sjálfur forsætisráðherra í 22 ár og
stýrði landinu með harðri hendi en
tókst jafnframt að gerbylta lífskjör-
um íbúa landsins. Mahathir lét sjálf-
viljugur af embætti árið 2003 en
féllst á að verða forsætisráð-
herraefni stjórnarandstöðuflokk-
anna eftir að Najib Razak, fráfar-
andi forsætisráðherra, flæktist í
umfangsmikið spillingarmál.
Mahathir hafði áður sagt að hann
myndi væntanlega verða forsætis-
ráðherra í tvö eða þrjú ár en þá
myndi Anwar taka við stjórnartaum-
unum.
Dæmdur fyrir samkynhneigð
Mahathir rak Anwar úr embætti
aðstoðarforsætisráðherra árið 1998
og í kjölfarið var hann dæmdur í níu
ára fangelsi fyrir samkynhneigð og
spillingu. Anwar hafði þá verið talinn
líklegastur til að verða forsætisráð-
herra. Hann var látinn laus árið 2004
en dæmdur að nýju árið 2015 í fimm
ára fangelsi fyrir samkynhneigð eft-
ir mikinn kosningasigur stjórnar-
andstöðuflokkanna árið 2013. Láta
átti hann lausan úr fangelsi í næsta
mánuði.
Með sakaruppgjöfinni getur Anw-
ar snúið strax aftur í stjórnmálin.
Anwar, sem er sjötugur að aldri, er á
sjúkrahúsi þar sem hann er í með-
ferð vegna axlarmeiðsla.
AFP
Elsti leiðtoginn Mahathir Moham-
ad (t.h.) með eiginkonu Anwars.
Anwar
fær upp-
gjöf saka
Gæti orðið for-
sætisráðherra
100 ára
FJÖLBREYTTHÁTÍÐARDAGSKRÁ
100 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar 20. maí 2018
Fram koma:
Sturlaugur Kristjánsson, bæjarlistamaður Fjallabyggðar
Síldargengið kíkir í heimsókn
Kór eldriborgara í Fjallabyggð
Gómarnir
Fánar dregnir að húni
Fermingar- og afmælismessa í Siglufjarðarkirkju
16:00 -17:30 Hátíðarkaffi fyrir bæjarbúa og aðra gesti
15:00 Björgvin og Bíbí. Fjölskylduskemmtun
í Íþróttahúsinu á Siglufirði
Allir velkomnir
09:00
11:00
LAUGARDAGUR 19. MAÍ
AÐRIR VIÐBURÐIR
SUNNUDAGUR 20. MAÍ
14:30 ÍÞRÓTTAHÚS FJALLABYGGÐARÁSIGLUFIRÐI
Hátíðarfundur í bæjarstjórnFjallabyggðar
Ávarp forseta bæjarstjórnar - Tímamóta samþykkt bæjarstjórnar
Bæjarstjóri Fjallabyggðar Gunnar I. Birgisson setur hátíðina
Ávarp forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur
Nemendur Tónlistarskólans á Tröllaskaga - tónlistaratriði
Ávarp vildarvina Siglufjarðar/Siglfirðingafélagsins
Karlakór Fjallabyggðar - tónlistaratriði
Ávarp fulltrúi vinabæja Siglufjarðar
Nemendur Tónlistarskólans á Tröllaskaga - tónlistaratriði
Síldarminjasafnið opið
Alþýðuhúsið á Siglufirði: Sunnudagskaffi með skapandi fólk.
Ómar Hauksson, bókhaldari og sögumaður á Siglufirði.
Kompan gallerí: Sýning. Kristján Steingrímur Jónsson
Ljóðasetur Íslands: Opnun sýningar:
Ljóðabækur og kveðskapur tengdur Siglufirði
Ráðhússalurinn á Siglufirði: Sýning - Ólöf Birna Blöndal
Söluturninn Aðalgötu: Vinur lífsins.
Sýning Guðmundar Kristjánssonar
Siglfirðingafélagið með opið hús í Bláa húsinu:
Myndasýning gamalla húsa. Andlit bæjarins frá 1960
Kaffi Rauðka: Tónleikar með Stjórninni