Morgunblaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018
Loksins aftur
sumar...ís
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Arnarlax hefur fært sjókvíaeldisstöð
sína í Patreksfirði frá Hlaðseyri út
undir þorpið. Stöðin verður tekin í
notkun í næsta mánuði. Sjókvíarnar
blasa við úr gluggum marga íbúða
og vinnustaða.
Víkingur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Arnarlaxi, segir
að það sé gömul ákvörðun að færa
stöðina utar í fjörðinn, það hafi verið
ákveðið í tíð Fjarðarlax, áður en fyr-
irtækið sameinaðist Arnarlaxi. Aðal-
ástæðurnar séu óhagstæðir straum-
ar og súrefni á gamla staðnum.
Kvíarnar sem voru við Hlaðseyri
hafa verið fluttar og nýjum bætt við
því nýja stöðin er stærri en sú eldri.
Laxaseiði verða sett út í næsta mán-
uði, einnig í sjókvíaeldisstöð Arnar-
lax við Hringsdal í Arnarfirði. Aftur
á móti verður stöðin í Tálknafirði
hvíld.
Verð í sögulegu hámarki
Starfsemin gengur vel, að sögn
Víkings. „Ástandið á mörkuðunum
er mjög hagfellt. Mikil eftirspurn og
verð í sölulegu hámarki. Það virðist
vera að vinsældir lax í heiminum séu
enn að aukast. Það skapar þessa eft-
irspurn,“ segir Víkingur.
Verð á laxi hefur almennt verið
hátt undanfarin ár. Það dalaði held-
ur undir lok síðasta ár en hefur náð
sér aftur á strik og slegið fyrri met.
Á vef Landssambands fiskeldis-
stöðva kemur fram að fengist hafi
allt að 8,29 evrur fyrir kíló af laxi en
það samsvarar um þúsund krónum.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Útsýni Sjókvíastöð Arnarlax í Patreksfirði hefur verið flutt utar í fjörðinn,
út undir þorpið. Þar eru betri aðstæður fyrir laxeldið en innar í firðinum.
Nýtt útsýni hjá
Patreksfirðingum
Arnarlax flytur sig til í Patreksfirði
Allt að 1.000 krónur fást fyrir kílóið
Íþróttahús við Vatnsendaskóla var
vígt við hátíðlega athöfn á afmælis-
degi Kópavogsbæjar síðdegis í gær.
Þetta er nýjasta íþróttahúsið í bæn-
um. Það er sérhannað fyrir þjálfun
í hópfimleikum og mun íþrótta-
félagið Gerpla nýta húsið undir sína
starfsemi en einnig fer íþrótta-
kennsla Vatnsendaskóla fram í hús-
inu.
Skólahljómsveit Kópavogs lék
nokkur lög við vígsluna og kór
Vatnsendaskóla söng og sýningar-
hópur Gerplu í hópfimleikum sýndi
listir sínar.
Guðrún Soffía Jónasdóttir, skóla-
stjóri Vatnsendaskóla, bauð gesti
velkomna og Ármann Kr. Ólafsson
bæjarstjóri, Theodóra S. Þorsteins-
dóttir, formaður bæjarráðs, og
Harpa Þorláksdóttir, formaður
Gerplu, fluttu ávörp. „Allir voru
sammála um að dagurinn væri mik-
ill hátíðisdagur og vígsla hússins
mikið fagnaðarefni,“ segir í frétt frá
Kópavogsbæ.
Íþróttahús sérhannað
fyrir hópfimleika vígt
Gerpla og íþróttakennsla Vatnsendaskóla fá inni í húsinu
Ljósmynd/Kópavogsbær
Íþróttahús vígt Frá vinstri: Sigurbjörg Helgadóttir, nemandi í Vatnsenda-
skóla, Guðrún Soffía Jónasdóttir, skólastjóri Vatnsendaskóla, Ármann Kr.
Ólafsson bæjarstjóri, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, fomaður bæjarráðs,
Harpa Þorláksdóttir, formaður Gerplu, og Emma Leifsdóttir úr Gerplu.
Beiðni Svanhildar Konráðsdóttur,
forstjóra Hörpu, um launalækkun
verður tekin til formlegrar af-
greiðslu á næsta stjórnarfundi sem
verður haldinn 30. maí. Svanhildur
sagðist í samtali við mbl.is í gær telja
það afar líklegt að beiðnin verði sam-
þykkt.
Spurð hvort einhverjir af þjón-
ustufulltrúum Hörpu sem sögðu upp
störfum vegna óánægju með kjör sín
hafi dregið uppsagnir sínar til baka
segist hún ekki vita til þess. VR af-
bókaði tvo viðburði í Hörpu í mót-
mælaskyni við stöðu kjaramála hjá
fyrirtækinu. Engar frekari afbókan-
ir fyrirtækja eða stofnana hafa orðið
á viðburðum í Hörpu, að sögn Svan-
hildar.
Svanhildur hefur óskað eftir fundi
með Ragnari Þór Ingólfssyni, for-
manni VR, til að ræða uppsagnir 23-
24 þjónustufulltrúa í húsinu. „Þetta
er jákvætt,“ sagði Ragnar í samtali
við mbl.is í gærkvöldi. Haft var eftir
Ragnari að hann ætlaði að ræða við
þjónustufulltrúana á mánudag og í
framhaldi af þeim fundi við forstjóra
Hörpu á fimmutdaginn.. Ragnar
sagði mjög mikilvægt að sátt væri
um starfsemina í Hörpu. Húsið ætti
sér sérstæða sögu, nokkurs konar
arfur hrunsins, sem þjóðin hefði
fengið í hendur.
Stjórn ræðir beiðni
Ósk forstjóra Hörpu um launalækk-
un rædd í stjórninni í næstu viku