Morgunblaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.05.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nú í morgun lentu Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid, eiginkona hans, á Keflavíkur- flugvelli eftir tvær viðburðaríkar heimsóknir til Bandaríkjanna sem aðeins nokkrir dagar skildu að. Í heimsóknunum tveimur, sem voru til Seattle á vesturströndinni og New York á austurströndinni, heimsóttu þau fjölmörg fyrirtæki, sátu ráðstefnur og fundi og þá var forseti heiðursgestur á árlegum galakvöldverði American Scand- inavian Foundation, sem haldinn var í hinum fræga Metro- politan-klúbbi í New York á fimmtudagskvöld. Fyrri heimsóknin hófst um miðja síðustu viku og lauk á laugardag í Seattle en síðari heimsóknin hófst á mánudag og lauk síðdegis í gær í New York. Blaðamaður Morgun- blaðsins settist niður með forseta í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í gærmorgun, um hálftíma áður en fundur hans og António Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hófst. „Þetta hefur verið mikil dagskrá og í raun hefði verið þægilegra fyr- ir okkur að halda beint frá Seattle til New York. Við mátum það hins vegar svo að það væri mikilvægt að hitta börnin í nokkra daga og því flugum við heim frá Seattle um liðna helgi. Framundan er opinber heimsókn til Finnlands og því var kærkomið að ná tveimur dögum með krökkunum heima á Íslandi,“ segir Guðni. Vitnisburður um sameigin- legan menningararf Hann segir að það hafi verið af- ar áhugavert að heimsækja íslensk fyrirtæki sem haslað hafa sér völl á vesturströnd Bandaríkjanna, við Kyrrahafið. Þar megi nefna fyrir- tæki á borð við Marel. „En það var einnig mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í opnun Norræna safns- ins þar í borg. Þetta glæsilega og nýja safn varpar ljósi á fólksflutn- ingana frá Norðurlöndum í lok 19. aldar og upphafi þeirrar 20. Til þessa svæðis eins og annarra í Bandaríkjunum. En safnið undir- strikar líka þau grunngildi sem við teljum samfélag okkar byggja á.“ Það leiðarstef í sýningu safnsins kallaðist einnig á við ræðu þá sem Guðni flutti sem heiðursgestur á galakvöldverði American Scand- inavian Foundation á fimmtudags- kvöld í New York. Þar benti hann á að Norðurlönd væru stolt af þeirri grundvallarhugsjón að ein- staklingar ættu að hafa frelsi til þess að leita gæfunnar og hafa ríkt svigrúm til athafna. „Á sama tíma leggjum við áherslu á að ríkisvaldið eigi að hjálpa þeim sem standa höllum fæti og þurfa á aðstoð að halda. Þetta helst í hendur við hugsjónina um jafnrétti og jafna stöðu fólks almennt. Mælingar sýna að okkur hefur tekist að mörgu leyti vel til, þótt ekkert samfélag geti státað af því að vera fullkomið. Við eigum að halda þessu á lofti og megum vera stolt af árangrinum, án þess að það birtist sem yfirlæti eða hroki. Þetta benti ég á í ræðu minni hjá American Scandinavian Founda- tion, þótt sú ræða hafi öðrum þræði verið nýtt til að slá á létta strengi.“ Í ferðunum tveimur kom framtíð íslenskrar tungu einnig mikið við sögu og Guðni segir að ráðstefna sem haldin var á vegum Íslensk- ameríska viðskiptaráðsins í Banda- ríkjunum og aðalræðisskrifstof- unnar í New York, hafi vakið tals- verða eftirtekt. „Á ráðstefnunni ræddum við um framtíð íslenskunnar og íslenskra bókmennta á tölvuöld. Ég er bjart- sýnn á framtíð íslenskunnar en við verðum að tryggja að hún haldi sínum sessi, ekki síst í tæknibylt- ingunni sem nú gengur yfir heim- inn. Við viljum geta, og að hið sama gildi um börnin okkar, talað við tækin á íslensku. Ég er bjart- sýnn á að það geti orðið, m.a. eftir að hafa heimsótt fyrirtæki á borð við Microsoft í Seattle. Þessi stóru tæknifyrirtæki eru vissulega hagn- aðardrifin en þau virðast einnig skynja samfélagsábyrgð sína og með öflugu átaki hins opinbera, í samstarfi við þessa aðila, hef ég fulla trú á því að við munum sjá ís- lenskuna standa styrkum fótum á þessum vettvangi.“ Norðurlandabúar eftirsóttir Í gær áttu forsetahjónin stefnu- mót við íslenska frumkvöðla sem starfa undir handarjaðri Nordic Innovation House í New York. Í samtölum við forsvarsmenn þeirrar stofnunar, sem öll norrænu ríkin eiga aðild að, kom fram að sam- starf þeirra á þessum vettvangi væri einstakt á heimsvísu. „Það er gaman að sjá kraftinn í þessu samstarfi á vettvangi ný- sköpunar. Það undirstrikar að á ákveðnum sviðum getum við eflt hvert annað með því að standa saman. Það er einnig eftirtektar- vert að sjá hversu mikillar vel- gengni fólk frá Norðurlöndum nýt- ur og á fundi með forsvarsmönnum Nordic Innovation House kom fram að fyrirtæki, vörur og starfs- fólk frá Norðurlöndum nýtur mik- ils meðbyrs um þessar mundir í Bandaríkjunum.“ Meðal þeirra frumkvöðla sem forsetahjónin ræddu við voru for- svarsmenn fyrirtækisins Icelandic Provisions sem framleiðir skyr inn á Bandaríkjamarkað með mjólkur- gerlum frá Íslandi. Þótt fyrirtækið hafi fyrst hafið framleiðslu árið 2016 eru vörur þess seldar í yfir 5.000 verslunum í Bandaríkjunum. Kom fram á fundinum að kókos- skyrið sé hvergi fáanlegt um þess- ar mundir því leikkonan Sara Jessica Parker hafi sagt opin- berlega að það væri í uppáhaldi hjá sér. Í máli forsvarsmanna fyrirtæk- isins, sem að hluta er í eigu MS, kom fram að vöxtur fyrirtækisins væri ævintýri líkastur og að engin framleiðsla á „jógúrtmarkaðnum“, eins og það var orðað, yxi með við- líka hætti og um þessar mundir. Fundur í Sameinuðu þjóðunum Í gær ræddust forseti og Ant- ónio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, svo við í höfuðstöðvum samtakanna í kjölfar þess að forsetahjónin fengu kynn- ingu á starfsemi stofnunarinnar af hendi prótókollstjóra SÞ og Einars Gunnarssonar, fastafulltrúa Íslands hjá SÞ. Guðni segir fundinn með Guterres hafa verið góðan og að þar hafi framtíð íslenskunnar, jafn- réttismál, málefni hafsins, umskipti í orkubúskap veraldar, málefni norðurslóða og þær fjórar háskóla- deildir Sameinuðu þjóðanna sem starfræktar eru á Íslandi borið á góma. „Hann er viðræðugóður maður og kvaðst vita af góðum verkum Íslendinga á sviði jafnréttismála og þegar kemur að málefnum hafsins. Þá sagðist hann eiga góðar minn- ingar frá Íslandsferð árið 1984.“ Framtíð íslenskunnar í forgrunni  Forsetahjónin hafa gert víðreist um Bandaríkin í tveimur ferðum með skömmu millibili  Fundur með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna  Heiðursgestir á árlegri samkomu ASF í New York Ljósmynd/Skrifstofa forseta Íslands SÞ Einar Gunnarsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, António Guterres, framkvæmdastjóri SA, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid að loknum fundinum í skrifstofum SÞ í New York í gærmorgun. Morgunblaðið/Stefán Einar Stefánsson Mjólkurvörur Forsetahjónin fengu kynningu á starfsemi fyrirtækisins Icelandic Provisions sem framleiðir skyr úr íslenskum mjólkurgerlum. Umferð um göngustíg í Reykjadal verð- ur aftur heimil frá og með kl. 10 í dag en land- verðir frá Um- hverfisstofnun verða á staðnum og fylgjast með ferðalögum gesta. Þetta kemur fram á vefsíðu Umhverfisstofnunar. Ákvörðun um opnun var tekin í kjölfar ástands- úttektar á svæðinu í Reykjadal. Landvarsla verður á svæðinu til að byrja með og mun landvörður hafa eftirlit með því að gestir svæð- isins fari ekki út fyrir göngustíga þar sem svæðið er illa farið. Umhverfisstofnun biður ferða- þjónustuaðila að miðla því til við- skiptavina sinna sem stefna á að fara í Reykjadal að þeir gangi ein- ungis á merktum göngustígum á svæðinu. Opnað fyrir umferð um Reykjadal á ný Reykjadalur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.