Morgunblaðið - 12.05.2018, Page 39

Morgunblaðið - 12.05.2018, Page 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 ✝ KatrínÞorsteinsdóttir fæddist á Ísafirði 14. október 1948. Hún lést 24. apríl 2018. Katrín var dótt- ir Ragnheiðar Bjarnadóttur og Þorsteins Þorgeirssonar. Systkin: Jón Helgi Þorsteinsson, f. 1945, Gunnar Þorsteinsson, f. 1946, og Elísabet Jasína Guð- mundsdóttir, f. 1953. Katrín ólst upp í Reykjavík. 30. ágúst 1973, börn: Sigur- björg Eiríksdóttir, f. 26. júlí 2001, og Eyjólfur Eiríksson, f. 26. júlí 2001. Katrín vann í sex ár hjá Sjó- klæðagerðinni áður en hún flutti til Grindavíkur og hóf bú- skap með Eyjólfi, eftir það var hún mestan hluta starfsæv- innar starfsmaður Grindavíkur- bæjar, fyrst á leikskóla og síð- ar í grunnskóla. Hún hafði ákveðið starfslok hjá bænum 31. júlí síðastliðinn en þann 30. júlí, eða daginn fyrir starfslok, veiktist hún alvarlega er hún greindist með krabbamein sem því miður hafði hana undir í baráttunni og lést hún þann 24. apríl. Katrín var jarðsungin frá Grindavíkurkirkju 3. maí 2018 og var útförin ekki auglýst að hennar ósk. Þann 6. júní 1970 giftist hún Eyjólfi Vilbergs- syni, f. 4. nóv- ember 1948. Dætur þeirra eru: 1) Ragnheiður G. Eyj- ólfsdóttir, f. 17. apríl 1972, gift Sigurði Arnari Kristmundssyni, f. 9. október 1966, börn: Katrín Lóa Sigurðardóttir, f. 28. mars 1998, og Krista Líf Sigurðar- dóttir, f. 30. janúar 2013. 2) Guðrún Vilborg Eyjólfsdóttir, f. Þakklæti er okkur systrum efst í huga er við kveðjum móður okkar. Hún var stoð okkar og stytta, bakkaði okkur upp í öllu því sem okkur datt í hug að taka okkur fyrir hendur. Og það alveg óháð því hver hennar skoðun var á okkar framkvæmdum eða hug- dettum. Umhyggja, stuðningur, eftirlit og yfirsýn voru hennar aðals- merki, hún var alltaf á vaktinni að passa stelpurnar sínar sem þó voru löngu vaxnar úr grasi og búnar að bæta við fleiri ungum til að halda utan um. Hvort sem málið snérist um að sauma föt, prjóna, baka eða passa barnabörnin eða jafnvel hundana þá var hún ávallt liðtæk á kantinum. Tímanum frá því hún veiktist er í rauninni einna helst hægt að lýsa eins og við höfum sest upp í svakalegan rússíbana öll fjöl- skyldan og ekki stigið út úr hon- um fyrr en yfir lauk. Það var einungis eitt lítið tímabil sem hún gat örlítið notið lífsins, um síðustu jól og áramót. Allt þar fyrir utan var hún sárkvalin og þrautin þyngri að standa á hliðarlínunni og geta ekkert gert til að lina þjáningar hennar. Verulega ósanngjarn dómur sem maður myndi ekki óska sínum versta óvini. Við trúum þó að henni hafi verið tekið opnum örmum þegar hún steig inn í Sumarlandið og gerir það stöðuna örlítið bæri- legri. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Með landnemum sigldi’ hún um svarr- andi haf. Hún sefaði harma. Hún vakti’er hún svaf. Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan, sem allt á að þakka vor þjóð. Ó! Hún var ambáttin hljóð. Hún var ástkonan rjóð. Hún var amma, svo fróð. Ó! Athvarf umrenningsins, inntak hjálpræðisins, líkn frá kyni til kyns. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár. Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan, sem gefur þér allt sem hún á. Ó, hún er brúður sem skín! Hún er barnsmóðir þín eins og björt sólarsýn! Ó! Hún er ást, hrein og tær! Hún er alvaldi kær eins og Guðsmóðir skær! Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’ á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin, hún sígur, – og sólin, hún rís, – og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís, sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf: Það er íslenska konan, – tákn trúar og vonar, sem ann þér og þér helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson.) Við kveðjum þig með ást, söknuði, virðingu og endalausu þakklæti. Þínar dætur, Ragnheiður og Guðrún. Enn erum við minnt á að eng- inn ræður sínum næturstað. Skarð er höggvið í fjölskyldu- hópinn okkar, Katrín Þorsteins- dóttir, eða Kata eins og hún var alltaf kölluð, hefur kvatt þennan heim eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm um nokkurra mánaða skeið. Við kynntumst Kötu kringum 1970 þegar hún og Eyjólfur bróðir okkar fóru að vera saman. Við urðum fljótt vör við að þarna fór kona sem hafði sterkar skoðanir og var ófeimin að láta þær í ljós, einnig hafði hún mjög gott minni sem gott var að fletta upp í. Kata og Eyjólfur byggðu hús við Heiðarhraun 16 hér í Grindavík og bjuggu þar allan sinn búskap þar sem Kata þjón- aði sem drottning í ríki sínu, alveg þar til hún lagðist inn á sjúkrahús, þar sem hún lést þann 24. apríl. Við þessi leiðarlok viljum við systkinin frá Borgargarði og fjölskyldur, þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Kötu og send- um Eyjólfi og fjölskyldu og systkinum Kötu og fjölskyldu einlægar samúðarkveðjur á þessum erfiðu stundum. Fyrir hönd systkinanna frá Borgargarði og fjölskyldna, Sverrir Vilbergsson. Nú hefur svilkona mín og vin- kona Katrín Þorsteinsdóttir, eða Kata eins og hún var oftast köll- uð, kvatt þessa jarðvist eftir stutt en erfið veikindi. Okkur varð strax vel til vina þegar ég flutti til Grindavíkur 1971. Strax þá um sumarið fór- um við í eftirminnilegt ferðalag og lögðum undir mestallt Norð- urland og Snæfellsnes. Árið 1972 eignuðumst við báð- ar börn og hittumst flesta daga meðgöngunnar og borðuðum rækjur og Ritz kex sem við vor- um báðar sólgnar í og fór svo að Kata gat ekki hugsað sér að borða þetta aftur eftir að með- göngu lauk. Margar stundir höfum við átt saman gangandi um nágrennið, oft gengum við t.d. saman Nes- hringinn og víðar í nágrenni Grindavíkur hér áður fyrr, sát- um yfir kaffibolla auk þess sem Reykjavíkurferðirnar voru margar. Nú á síðustu tveim ár- um tókum við til við gönguferðir á nýjan leik og þá með sauma- klúbbnum okkar og gengur þessi gönguhópur undir nafninu Hrað- lestin. Aftur áttum við samleið á Norðurlandi á síðasta sumri, þar sem Eyjólfur og Kata voru í bú- stað í Kjarnaskógi kíktum við til þeirra en við vorum hjá Helgu og Sverri á Hauganesi. Sverrir Vil. varð 75 ára á þessum tíma og höfðum við lítið matarboð fyr- ir fjölskyldumeðlimi sem búa fyrir norðan og var þá tilvalið að bæta þeim hjónum í partíið og áttum við þar góða stund saman. Kata hafði ótrúlegt minni sem kom sér oft mjög vel fyrir okkur sem aldrei munum neitt, hún var eins og orðabók sem endalaust var hægt að fletta upp í. Alger trúnaður ríkti á milli okkar og gátum við sagt hvor annarri okk- ar innstu leyndarmál. Kata vildi allt fyrir alla gera en vildi helst ekkert þiggja af öðrum. Hún var staðföst kona með ákveðnar skoðanir. Stórt skarð er nú höggvið í hópinn okkar. Elsku Kata, þín er sárt saknað. Innilegar samúðarkveðjur, elsku Eyjólfur, Ragnheiður, Guðrún og fölskyldur. Elín Þorsteinsdóttir (Ella). Nú er skarð fyrir skildi, hún Kata okkar er dáin. Við höfum verið saman í saumaklúbbi í næstum 50 ár, góð blanda af svilkonum, systrum og góðum vinkonum. Mikið var saumað, prjónað og heklað á fyrstu árunum og börnin okkar eiga góðar minningar um sauma- klúbbskvöldin, því þau nutu oft- ast góðs af kræsingunum sem bornar voru fram þá. Kata var mikil handavinnukona og fengu dætur og barnabörn hennar og fleiri að njóta þess. Seinna fór að bera á því að handavinnan hjá okkur varð ekki eins fyrirferðarmikil og meira lagt upp úr ánægjulegum kvöld- stundum við almennt spjall þar sem fjölskyldusögur, grínið og gleðin voru oftast í fyrirrúmi. Eftir því sem árin liðu og börnin uxu úr grasi og við sótt- um í meira nám og vinnu, fór saumaklúbbunum fækkandi yfir veturinn og var Kata ekki ánægð með það. Við tókum okkur tak, en þegar það kom fyrir að þetta dróst á langinn og enginn mundi hver hafði haft klúbbinn síðast, var segin saga að Kata mundi það og líka hver okkar var næst í röðinni. Hún var oftast með allt á hreinu og var ekkert að skafa utan af hlutunum. Hana vantaði þó ekki hlýjuna og kærleikann í garð fjölskyldu, vina og sam- starfsfólks og vildi allt fyrir alla gera. Eins og okkar kynslóð er tamt var hún samviskusöm í vinnu, bæði þegar hún vann á leikskól- anum og svo í grunnskólanum. Kata lærði til stuðningsfulltrúa og vann sem slík í mörg ár. Hvorki bakverkir né önnur slæmska héldu henni heima. Það var mikið áfall þegar Kata greindist með illvígt krabbamein síðastliðið sumar. Baráttan var henni erfið, en alltaf bar hún sig vel og talaði um að koma með í göngutúrana okkar í vor. Alveg fram á síðasta dag var hún að huga að þörfum sinna nánustu. Kata er fyrst okkar klúbb- systra til að hverfa á braut. Það er þyngra en tárum taki og við munum sakna hennar og halda minningu hennar á lofti, því þannig var hún bara. Guð blessi og geymi hana Kötu okkar. Elsku Eyjólfur, Ragnheiður, Guðrún og fjölskyldur, Elsa, Jónsi, Arndís og aðrir aðstand- endur og vinir, við sendum ykk- ur samúðarkveðjur og biðjum ykkur blessunar. Ágústa, Albína (Bína), Bjarnfríður (Fríða), Elín (Ella), Guðlaug og Margrét (Maddý). Katrín Þorsteinsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG RAGNARSDÓTTIR, Tjarnarlundi 13c, Akureyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 6. maí. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 15. maí klukkan 13.30. Ragnar Árnason Ingibjörg Sigurðardóttir Elín Una Friðfinnsdóttir Erla Hrund Friðfinnsdóttir Páll Baldursson Elsa B. Friðfinnsdóttir Emil Friðfinnsson Sabine Friðfinnsson ömmu- og langömmubörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR BENEDIKTSDÓTTIR, áður Grænumörk 5, Selfossi, lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, 26. apríl. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. maí klukkan 13. Sigurður K. Eggertsson Jórunn Sigurðardóttir Benedikt G. Eggertsson Unnsteinn B. Eggertsson Vilhelmína Roysdóttir Ásgeir Eggertsson Brynhildur Valdórsdóttir Ari Blöndal Eggertsson Ragnar Halldór Blöndal barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN S. SVEINBJÖRNSSON prentari, Boðaþingi 24, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 7. maí. Útför hans fer fram frá Áskirkju föstudaginn 18. maí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Karitas eða líknardeild Landspítalans. Símonía K. Helgadóttir Jóhanna S. Guðjónsdóttir Vilhjálmur J. Guðbjartsson Sveinbjörn Guðjónsson Kristín Viktorsdóttir Ingibjörg H. Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, GUÐJÓNA EYGLÓ FRIÐRIKSDÓTTIR frá Eyrarlandi, Þykkvabæ, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, þriðjudaginn 8. maí. Útförin fer fram frá Þykkvabæjarkirkju fimmtudaginn 17. maí klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar láti Þykkvbæjarkirkju njóta þess. Jón Viðar Magnússon Hrafnhildur Bernharðsdóttir Friðrik Magnússon Hrafnhildur Guðnadóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR ÁRNASON, Strikinu 4, 210 Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 8. maí. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 17. maí klukkan 15. Auður Gunnarsdóttir Margrét Haraldsdóttir Ingunn Edda Haraldsdóttir Errol Bourne Gunnar Haraldsson Jóna Margrét Kristinsdóttir afabörn og langafabörn Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, fósturfaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐJÓN SVEINBJÖRNSSON, Leirubakka 30, 109 Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 28. apríl. Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju föstudaginn 18. maí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Logi A. Guðjónsson Jóhanna G. Jónannsdóttir Sveinbjörn Guðjónsson Guðmundur Guðjónsson Jón Ívar Guðjónsson Björn S. Stefánsson Þorgerður Sigurjónsdóttir Stella Stefánsdóttir Ásmundur Reykdal Halldór Sigurðsson Árný J. Guðmundsdóttir Jóhann T. Sigurðsson afabörn, langafabörn og langalangafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.