Morgunblaðið - 12.05.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.05.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir í fötum Frábært úrval af útskriftar fötum frá B E C K U O M O Það var viðbúið að einhverjirbæjarstjórar yrðu ósáttir við samanburð Samtaka atvinnulífsins á fjármálum stærstu sveitarfélag- anna. Það er nefnilega alltaf hægt að deila um hvaða mælikvarða á að nota og hvert vægi þeirra skuli vera.    Og það kom ekkiá óvart að Hafnarfjörður væri ósáttur við að verma botnsætið í ljósi þess að þar hefur staðan farið batnandi á þessu kjörtímabili.    En það kom dálítið á óvart aðbæjarstjórarnir skyldu reyna að gera lítið úr skuldastöðu og teldu hana ekki eiga að hafa mikið vægi við samanburð á fjárhags- stöðu sveitarfélaganna. Þetta væru „skuldir fortíðar“. En skuldir eru alltaf „skuldir fortíðar“ og þær eru greiddar í nútíð og framtíð.    Það skiptir nefnilega miklu aðsveitarfélög séu skuldlítil, eins og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, bendir á í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við megum aldrei gleyma því að skuldir sveitarfélaganna eru á end- anum á ábyrgð íbúa sem munu greiða þær og rekstur sveitarfé- laga getur verið í járnum ef þau eru of skuldsett. Skuldir í dag eru ávísun á aukna skattheimtu og lak- ari þjónustu í framtíð,“ sagði Hall- dór.    En þó að sum skuldug sveitar-félög séu að vinna sig út úr vandanum þá gildir ekki hið sama um Reykjavík. Borgin er ekki að- eins í næstneðsta sæti yfir fjár- hagsstöðu sveitarfélaga. Hún held- ur áfram að safna skuldum. Í höfuðborginni er staðan stjórnlaus og óverjandi. Halldór Benjamín Þorbergsson Bætt staða sumra, óverjandi í borginni STAKSTEINAR Veður víða um heim 11.5., kl. 18.00 Reykjavík 9 rigning Bolungarvík 3 alskýjað Akureyri 8 skýjað Nuuk -2 skúrir Þórshöfn 10 skýjað Ósló 15 heiðskírt Kaupmannahöfn 14 skýjað Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 20 heiðskírt Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 19 heiðskírt Dublin 10 rigning Glasgow 12 rigning London 15 skýjað París 21 heiðskírt Amsterdam 18 heiðskírt Hamborg 18 léttskýjað Berlín 16 skýjað Vín 23 léttskýjað Moskva 18 heiðskírt Algarve 19 léttskýjað Madríd 23 léttskýjað Barcelona 21 heiðskírt Mallorca 21 heiðskírt Róm 22 þrumuveður Aþena 22 skýjað Winnipeg 7 skýjað Montreal 6 léttskýjað New York 18 léttskýjað Chicago 12 alskýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:22 22:27 ÍSAFJÖRÐUR 4:04 22:55 SIGLUFJÖRÐUR 3:47 22:38 DJÚPIVOGUR 3:46 22:02 Atvinna Lokadagur vetrarvertíðar virtist ekki vera ofarlega í huga sjómanna í gær. Í Vestmannaeyjum voru sjó- menn á humarbátnum Brynjólfi VE afslappaðir að ljúka löndun þegar ljósmyndara bar að garði og gerðu einfaldlega það sem gera þurfti, enda humarvertíð í fullum gangi. Þeir eru frá vinstri Óðinn, Hafþór, Ingimundur og Sigurður. Í eina tíð hafði lokadagur hefð- bundinnar vetrarvertíðar mikið gildi og samkvæmt almanakinu er hann 11. maí. Áður fyrr var vetrar- vertíð gerð upp þennan dag og oft var mikið um dýrðir. Algengt var að skipseigandi eða formaður héldi bátsverjum veislu, gerði vel við þá í mat og drykk, og gæfi jafnvel hverjum manni flösku ef vel hafði gengið. Eftir lokadag hélt vertíðar- fólk heim á leið til annarra starfa. Dagsetningin átti þó einkum við um verstöðvar á sunnanverðu land- inu, þar sem þorskurinn gengur síðar norður fyrir. Breyttir at- vinnuhættir og kvótakerfið hafa átt stóran þátt í því að lokadagurinn virðist nánast heyra sögunni til. Nú er víðast hvar róið jafnt og þétt all- an ársins hring í sókninni eftir þeim gula og öðrum fisktegundum. Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Lokadagur Nokkrir hressir sjómenn í Vestmannaeyjum í gær. Rólegheit á loka- degi vetrarvertíðar Karlmaður hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir stórfelldar ærumeiðingar gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni, með því að hafa tekið ljósmynd af henni sofandi ásamt öðrum karl- manni og dreift henni til þriggja annarra einstaklinga á Facebook. Í ákæru málsins kemur fram að maðurinn hafi tekið ljósmynd á síma sinn af konunni hálfnakinni og karlmanninum nöktum þar sem þau lágu sofandi í rúmi. Sendi hann myndina í kjölfarið á þrjá aðra ein- staklinga. Er hann sagður með háttsemi sinni hafa móðgað og smánað konuna, sem fór fram á að fá greiddar alls 800 þúsund krónur í miskabætur auk greiðslu lög- mannsþóknunar og málskostnaðar. Málið var þingfest í héraðsdómi sl. miðvikudag. Ákærður fyrir ærumeiðingar með dreifingu ljósmyndar af fyrrv. sambýliskonu sinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.