Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 kr. 7.700 kr. 6.900 kr. 8.900kr. 33.400 Bekkur 100x40 cm kr. 5.900 Smile 3ja sæta sófi kr. 190.700 Bakkar 8.800 / 6.900 kr. 14.900 kr. 93.800 kr. 4.300 Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Hindberjajógúrt Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt Eftir sigur Fabiano Caru-ana í áskorendamótinu íBerlín á dögunum ognokkru síðar á öflugu móti í Þýskalandi áttu fáir von á öðru en honum tækist að bæta þriðja sigrinum við á bandaríska meistaramótinu sem eins og mörg undanfarin ár fór fram í St. Louis í Missouri-ríki og breytti engu um þá spádóma þó að bæði Nakamura og Wesley So væru meðal 12 þátttak- enda. Caruana tapaði snemma fyrir lítt þekktum skákmanni upp- runnum frá Georgíu, Zviad Izoria, en náði samt vopnum sínum. Þess vegna kom mörgum það þægilega á óvart þegar hinn 26 ára gamli Sam Shankland frá Berkley í Kaliforníu skyldi skjótast fram úr honum á lokasprettinum. Lokaniðurstaðan hvað varðar toppsætin: 1. Shankland 8½ v. (af 11) 2. Ca- ruana 8 v. 3. So 6½ v. 4.-6. Nakam- ura, Lenderman og Robson 5½ v. Stíll hins nýja Bandaríkjameist- ara minnir svolítið á Bobby Fischer eins og glöggt kom fram í skák hans í lokaumferðinni: Sam Shankland – Awonder Li- ang Caro- Kann vörn 1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. Bd3 Rifjar upp fræga skák Fischers gegn Petrosjan frá 1970. 4. … Rc6 5. c3 Rf6 6. Bf4 Bg4 7. Db3 e5!? Nýr snúningur. Hugmyndin er að svara 8. dxe5 með 8. … Dc7. Petrosjan lék 7. … Ra5. 8. h3 exf4 9. hxg4 De7 10. Kf1 0- 0-0 11. Rd2 g6 12. He1 Dc7 13. g5 Rh5? Eftir þennan slaka leik fær svartur vart rönd við reist. Hann varð að leika 13. …. Rg4 og svara 14. Be2 með 14. … f5. 14. Be2 Rg7 15. Rgf3 Re6 16. Bb5 Bg7 17. Da4 Hd6 18. Rb3 b6?! Valdar c5-reitinn en betra var 18. … a6. 19. Rc1! Riddarinn tekur á sig ferðalag. 19. … Rb8 20. Rd3 Kb7 21. Rb4 Dd8 22. Re5 Dc7 23. Db3! Hhd8 24. Hxh7 a6 25. Bd3 Ka7 26. Da4 a5 27. Bb5 Kb7 28. Rbd3 Hg8 29. Rf3 Hh8 30. Hxh8 Bxh8 31. a3 Rc6 32. Bxc6+! Hárrétt uppskipti. Nú ryðst drottningin inn fyrir víggirðingu svarts. 32. … Hxc6 33. Rde5 Bxe5 34. Rxe5 Hd6 35. De8 Hd8 36. Dxf7 Rxg5 37. Dxc7 Kxc7 38. Rxg6 f3 39. Rf4 Kc6 40. gxf3 Rxf3 41. He6 Kb5 42. Ke2 Rg1 43. Kd3 Kóngurinn er kominn í skjól og ein hótunin er 44. Rxd5 Hxd5 45. c4+. Svartur á enga vörn og gafst upp. Sigurbjörn efstur á Öðlingamótinu Sigurbjörn Björnsson sigraði á skákmóti öðlinga sem lauk í húsakynnum TR í síðust viku. Í lokaumferðinni vann Sigurbjörn mætti Þorvarður Lenka Ptacni- kovu og tapaði en Sigurbjörn vann Kristinn Sigurþórsson en helsti keppinautur hans Þorvarð- ur Ólafsson tapaði fyrir Lenku Ptacnikovu. Alls hófu 38 skák- menn keppni en efstu menn urðu: 1. Sigurbjörn Björnsson 6½ v. (af 7) 2. Þorvarður Ólafs- son 5½ v. 3. Lenka Ptacnikova 5 v. 4.-7. Haraldur Baldursson, Jó- hann Ragnarsson, Ögmundur Kristinsson og Halldór Pálsson 4½ v. Nigel Short tilkynnir framboð til forseta FIDE Enski stórmeistarinn Nigel Short hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í embætti forseta FIDE en gengið verður til kosn- inga á þingi FIDE sem fer fram samhliða Ólympíuskákmótinu sem hefst í Batumi í Georgíu í september nk. Mjög hefur verið þrýst á núverandi forseta Kirsan Iljumzhinov að draga sig í hlé en hann hefur gegnt embætti frá árinu 1995. Short hefur látið sig varða málefni FIDE undanfarin ár og var í kosningateymi Anatolí Karpovs á þingi FIDE í Khanty Manyisk í Síberíu árið 2010. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/Chessbase Glæsilegur sigur Sam Shankland við taflið í St. Louis. Óvænt úrslit á bandaríska meistaramótinu Allt um sjávarútveg Helga Vala Helga- dóttir skrifar „pistil“ í Morgunblaðið 11. maí sl. með forskriftinni „Borgarlína til hvers“ Það er í sjálfu sér góð spurning en ekki ætla ég að gera það að um- ræðuefni hér. Er ég Helgu Völu sammála um það sem fram kem- ur í hennar pistli að um- hverfisvernd sé ekki lengur val og er gott að almenningur sé almennt að átta sig á því. Hins vegar hefur það ekki verið neitt val um langan tíma og er margt þar sem við hefðum getað gert betur og getum gert betur. Það er hins vegar ekki umhverfisvernd til framdráttar að fara fram með rangt mál og sleggjudóma. Helga Vala seg- ir „Það er óhrekjanlega staðreynd að einkabíllinn sé stærsti sökudólgurinn hvað varðar losun kolefnis.“ Það væri mjög gott í umræðunni að fá að sjá þessar óhrekjanlegu staðreyndir. Þær eru í það minnsta alveg á skjön við það sem áður hefur komið fram í um- ræðu um losun kolefna útí andrúmsloftið. Þar má benda á skriflegt svar þáverandi um- hverfisráðherra frá því í október 2015 við fyrir- spurn Sigríðar Á. And- ersen. Þar kemur fram að losun fólksbíla af gróðurhúsaloftteg- undum sé 4% af heildinni. Hvernig er þá hægt að fá það út eins og Helga Vala heldur fram að einkabíllinn sé stærsti sökudólgurinn? Það eru fáar greinar ef þá nokkrar sem hafa sýnt jafn miklar framfarir í því að tak- marka losun gróðurhúsalofttegunda og bílgreinin enda er rík krafa um það frá viðskiptavinum. Við því hefur verið brugðist og er stöðugt verið að gera betur þar sem það er eitt af aðal- keppikeflum bílaframleiðenda að tak- marka og útrýma losun og auka ör- yggi. Það má m.a. sjá i gögnum er Orkusetur heldur úti. Meðaleyðsla bíla hefur dregist saman um liðlega 36% frá árinu 2011 og losun koltvísýr- ings hefur dregist saman um liðlega 38%. Þessi þróun er á mikilli siglingu og eru framleiðendur að boða komu nýrra véla sem draga enn meira úr eyðslu og losun. Líka er stöðugt að bætast í flóru raf- og tvinnbíla sem hafa fengið mjög góðar viðtökur og er mikil aukning í nýskráningum þeirra milli ára. http://sigridur.is/wp-content/ losunCO2aIslandi2012.png Helga Vala kemur líka inn á svif- ryksmengun sem hún segir að hafi aukist töluvert og skrifar ástæðu þess alfarið á notkun einkabílsins. Þar fer hún aftur með rangt mál en eins og kom fram í viðtali við Þorstein Jó- hannsson, sérfræðing í loftmengun, hjá Umhverfisstofnun þá er mengun í borginni ekki að aukast, heldur að minnka! Loftmengun er almennt minni hér en í sambærilegum borg- um. Hann bendir þó á að vissulega megi gera betur til að vinna gegn henni. Eitt af því sem gera má til að draga úr svifryki sé að hreinsa götur oftar sem og að rykbinda en því hafa borgaryfirvöld lítið gert af á undar- förnum árum. Helga Vala talar líka um í sínum pistli að ekki eigi að byggja mislæg gatnamót, göngubrýr eða græn umferðarljós svo bílaflotinn komist hraðar á milli, heldur verði að fækka einkabílum. Þetta er athyglis- vert í tvennum skilningi. Fyrst hefur verið sýnt fram á það að umferð sem er stopp eða gengur mjög hægt mengar margfalt meira en greiðfær umferð. Hitt, að fækka verði einkabíl- um á götum borgarinnar, er að sjálf- sögðu grímulaus staðfesting á því að þvinga á fólk til að gera það sem hent- ar því ekki, eða taka valið af borgur- unum. Er betra að veifa röngu tré en öngu? Eftir Özur Lárusson »Meðaleyðsla bíla hef- ur dregist saman um liðlega 36% frá árinu 2011 og losun koltvísýr- ings um liðlega 38%. Özur Lárusson Höfundur er framkvæmdastjóri Bíl- greinasambandsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.