Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 8
Morgunblaðið/Valli
Hvalveiðar Undirskriftir gegn hvalveiðum afhentar sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra. Þátttakendur vilja gera Faxaflóa að griðasvæði hvala.
Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
voru á föstudaginn afhentar 50.424
undirskriftir þar sem hvalveiðum Ís-
lendinga er mótmælt. Að söfnuninni
stóðu Alþjóða dýravelferðarsjóð-
urinn (IFAW), Hvalaskoðunar-
samtök Íslands og Samtök ferða-
þjónustunnar.
Þeir sem tóku þátt í undir-
skriftasöfnuninni, sem fram fór á
vefsíðu IFAW á Íslandi og að mestu
leyti á síðasta ári, lýstu yfir stuðn-
ingi við eftirfarandi kröfu: „Ég heiti
því að borða ekki hvalkjöt og vil að
stjórnvöld geri allan Faxaflóa að
griðasvæði fyrir hvali.“
Sigursteinn Másson, fulltrúi
IFAW á Íslandi, segir að flestir
þeirra sem tekið hafi þátt séu er-
lendir ríkisborgarar og meirihluti
þeirra erlendir ferðamenn
Við móttöku undirskriftanna
sagði Kristján Þór Júlíusson að
hann hefði lagt fram minnisblað fyr-
ir ríkisstjórnina um úttekt á hval-
veiðum sem Hagfræðistofnun Há-
skólans og Hafrannsóknastofnun
hefðu umsjón með. Ólíkir hags-
munaaðilar yrðu kallaðir að borðinu
og stefnt að niðurstöðu í haust.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá atvinnuvegaráðuneytinu að út-
tekin muni fjalla um þjóðhagsleg
áhrif hvalveiða og áhrif þeirra á aðr-
ar atvinnugreinar.
Slík úttekt hafi verið gerð árið
2010 og hafi þá komið fram að þjóð-
hagslega hagkvæmt væri að halda
hvalveiðum áfram. Þær niðurstöður
og aðrar verði því endurmetnar mið-
að við þróunina síðustu ár. Ráðherra
hefur einnig óskað eftir því að Haf-
rannsóknastofnun meti fæðuþörf
hvala og vægi hennar í lífríki sjávar
við Ísland.
Ný úttekt verður gerð á hvalveiðum
Yfir 50 þúsund
mótmæla því að hval-
veiðar hefjist aftur
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Friðrik Þór Gunnarsson, hag-fræðingur hjá Samtökum
fyrirtækja í sjávarútvegi, skrifaði á
dögunum grein um veiðigjald í
sjávarútvegi.
Hann benti á aðá yfirstand-
andi fiskveiðiári
hefði veiðigjaldið
meira en tvöfaldast
frá síðasta fisk-
veiðiári.
Þetta er gríðar-leg hækkun sem allar greinar
ættu erfitt með að takast á við. Og
hafa verður í huga að nú er verið
að greiða veiðigjald reiknað út frá
afkomu greinarinnar árið 2015, en
aðstæður voru þá mun hagfelldari
en nú.
Annað er mjög sláandi í greinhagfræðingsins, en það er sú
staðreynd að veiðigjaldið er nú
orðið næststærsti einstaki gjalda-
liður margra sjávarútvegsfyrir-
tækja, á eftir launum. Þetta er
vitaskuld mjög óeðlilegt.
Loks er athyglisvert í greinFriðriks að veiðigjaldið er að
langmestu leyti landsbyggðar-
skattur. Á landsbyggðinni er vægi
sjávarútvegs í tekjum að meðaltali
16,6%, en 2,2% á höfuðborgarsvæð-
inu.
Og fyrirtæki á landsbyggðinnigreiða yfir 80% veiðigjaldsins.
Það er furðulegt að við þessaraðstæður skuli enn heyrast
þær raddir að sjávarútvegurinn
greiði ekki nóg.
En þær heyrast að vísu nær ein-göngu frá stjórnmálamönnum
smáflokka á höfuðborgarsvæðinu.
Friðrik Þór
Gunnarsson
Óeðlilegur
ofurskattur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.5., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Ósló 23 rigning
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 25 heiðskírt
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 12 þoka
Dublin 15 skýjað
Glasgow 16 heiðskírt
London 16 léttskýjað
París 13 skýjað
Amsterdam 12 rigning
Hamborg 25 léttskýjað
Berlín 25 heiðskírt
Vín 25 léttskýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 16 léttskýjað
New York 12 súld
Chicago 13 þoka
Orlando 27 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:16 22:34
ÍSAFJÖRÐUR 3:56 23:03
SIGLUFJÖRÐUR 3:38 22:47
DJÚPIVOGUR 3:39 22:09