Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 9
Fyrir Kópavog Sex efstu frambjóð-
endur hjá nýja framboðinu.
Listi framboðsins Fyrir Kópavog
hefur breyst. Mun Rebekka Þurý
Pétursdóttir, framhaldsskólanemi
og starfsmaður Bónuss, taka annað
sætið í stað Jónu Guðrúnar Kristins-
dóttur. Ómar Stefánsson, forstöðu-
maður og fv. bæjarfulltrúi, er eftir
sem áður oddviti listans.
Í þriðja sæti er Hlynur Helgason
alþjóðahagfræðingur, Valgerður
María Gunnarsdóttir verslunarstjóri
er í fjórða sæti, Guðjón Már Sveins-
son þjónustufulltrúi í fimmta sæti og
sjötta sætið skipar Katrín Helga
Reynisdóttir framkvæmdastjóri
Rebekka
Þurý tekur
sæti Jónu
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018
ÁRSFUNDUR 2018
Hilton Nordica
Þriðjudagur 15. maí kl. 14
Á traustum grunni
• Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Ávarp
• Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður
Ávarp
• Hörður Arnarson forstjóri
Á traustum grunni - gott ár að baki
• Selma Svavarsdóttir forstöðumaður á starfsmannasviði
Að virkja jafnréttið
• Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri
Áhrif aukinnar eftirspurnar á raforkumarkað
• Stefanía G. Halldórsdóttir framkvæmdastjóri markaðs-
og viðskiptaþróunarsviðs
Orka í dansi framtíðarinnar
Fundarstjóri
• Magnús Þór Gylfason yfirmaður samskiptasviðs
Landsvirkjun hvetur til opinnar umræðu um orkumál
og býður alla velkomna á ársfund.
Síðasta ár voru met slegin í sölu og vinnslu rafmagns.
Rekstrarafkoma fyrirtækisins hefur aldrei verið betri
og efnahagurinn er traustur.
Á ársfundinum verður fjallað um þessa góðu stöðu. Einnig
verða kynnt þau tækifæri og þær áskoranir sem framundan
eru og fjallað um raforkumarkaðinn í víðu samhengi.
Bein útsending verður frá fundinum á landsvirkjun.is.
Verið öll velkomin
Skráning á www.landsvirkjun.is
#lvarsfundur
Íslandsmetið í perlun armbanda var
slegið í stúkunni á Laugardalsvelli í
gær þegar Tólfan, stuðningsmanna-
sveit landsliðsins, og Kraftur,
stuðningsfélag fyrir ungt fólk með
krabbamein, sameinuðu krafta
sína. Alls voru 3.983 armbönd perl-
uð en fyrra metið var 3.972 arm-
bönd en það var sett í Hörpu í jan-
úar.
Landsliðsþjálfarar í kapp
Landsliðsþjálfararnir, Heimir
Hallgrímsson og Freyr Alexanders-
son, létu sig ekki vanta en þeir
kepptust meðal annars um hvor
væri fljótari að perla armband og
lýsti Gummi Ben keppninni. Arm-
bönd þeirra voru síðan boðin upp og
seldist armband Heimis fyrir 60.000
krónur, en Freys fyrir 15.000.
Allur ágóði af sölu armbandanna
rennur til Krafts. „Við bjóðum nú
þegar upp á sálfræðiþjónustu, fé-
lagsaðstoð og fjárhagsaðstoð, en nú
viljum við bæta við sérstökum end-
urhæfingarhelgum þar sem áhersla
verður lögð á að njóta lífsins í núinu
og gera eitthvað skemmtilegt,“ seg-
ir Ástrós Rut Sigurðardóttir, for-
maður Krafts.
Morgunblaðið/Eggert
Kraftur Ungir sem aldnir lögðu hönd á plóg til að freista þess að slá Íslandsmetið. Það tókst að lokum.
Perlað til góðs á Laugardalsvelli