Morgunblaðið - 14.05.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 14.05.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018 Ljóst er að vandi utangarðs og/eða heimilislausra hefur vaxið gríðarlega á síð- ustu árum. Langflestir þeirra eru í Reykjavík. Það var gerð kortlagn- ing á vandamálinu 2012 og aftur 2017. Megin- niðurstöður kortlagn- ingarinnar árið 2017 eru að fjölgað hefur í hópi þeirra sem teljast utangarðs og/eða heimilislausir. Fjölgunin á milli 2009 og 2012 var 45%. Fjölgunin á milli 2012 og 2017 var 95%. 95% aukning er alltof hátt og þarf Reykjavíkurborg að beina sjónum sínum að þessum vanda, skilja hvað veldur og taka á því. Á einu ári, frá árinu 2016-2017 jókst tala þeirra sem voru óstað- settir í hús úr 425 í 553. Það er fjölg- un um 128 á einu ári. Aðeins hluti þeirra er samt á götunni. Inni í þess- um tölum eru til dæmis einnig þeir sem eru í gistiskýlum eða á svip- uðum stofnunum. Í framhaldi af umræðum á Alþingi árið 2004 var stofnaður samráðs- hópur til að skilgreina heimilisleysi og árið 2005 skilaði hann eftirfarandi skilgreiningu: „Húsnæðislaus er sá sem ekki hef- ur aðgang að hefðbundnu húsnæði, hann hefur ekki húsaskjól að stað- aldri á sama stað og gistir þar sem kostur er hverja nótt, þar með talið í gistiskýli, á gistiheimili eða inni á öðru fólki. Þeir sem koma úr tímabundnu húsaskjóli, svo sem úr fangelsi eða úr vímu- efnameðferð, eiga sögu um margháttaða hús- næðis- og félagslega erfiðleika og eiga ekki tryggt húsaskjól einum til tveimur mánuðum áður en þeir fara úr hinu tímabundna hús- næði, eru taldir hér með“ (Félagsmála- ráðuneytið, 2005). Helsti vandi þeirra sem eru utangarðs og/eða heimilis- lausir er ofneysla áfengis og/eða annarra vímuefna og geðrænn vandi. Stærsti hópurinn í þessum tölum býr við ótryggar aðstæður, en samt eru hátt í hundrað á götunni og á annað hundrað í gistiskýlum. Athuga ber að annmarkar eru á þessum rannsóknum og upplýsing- arnar ekki tæmandi um hagi utan- garðsfólks og/eða heimilislausra. En ljóst er að vandamálið hefur vaxið gríðarlega frá árinu 2009. Eftir Börk Gunnarsson » Á einu ári, frá árinu 2016 til 2017, jókst tala þeirra sem voru óstaðsettir í hús úr 425 í 553. Það er fjölgun um 128 á einu ári. Börkur Gunnarsson Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Gríðarleg fjölgun heimilislausra Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa nýlega samþykkt þá breytingu á svæð- isskipulagi höfuðborg- arsvæðisins 2015-2040 að tekið var af skarið með það að borg- arlínan verður hrað- vagnakerfi (Bus Ra- pid Transit, BRT). Áður hafði verið gert ráð fyrir að borgarlínan yrði ann- aðhvort hraðvagnakerfi eða létt- lestakerfi. Það var gersamlega út úr öllu korti að reikna með þeim möguleika að byggja léttlestakerfi upp á allt að 200 milljarða fyrir ár- ið 2040. Það er nógu galið að ætla sér að byggja hraðvagnakerfi upp á 80 milljarða, sem er mun hærri upphæð en hefur farið í uppbygg- ingu þjóðvega á höfuðborgarsvæð- inu sl. 20 ár. Borgarlínan er óraunhæf Flestir eru sammála um að gera þurfi gífurlegt átak í viðhaldi og nýbyggingu þjóðvega úti á landi á næstu árum og áratugum. Sam- hliða því þarf að ráðast í löngu tímabærar endurbætur á þjóð- vegakerfinu á höfuðborgarsvæð- inu, bæði til að minnka umferð- artafir og draga úr slysahættu. Það er því ljóst að ríkissjóður mun ekki verja miklu fé í borgarlínuna í fyrirsjáanlegri framtíð. Borg- arsjóður er vægast sagt illa stadd- ur og varla aflögufær. Það er því engin innistæða fyrir loforði um Miklubraut í stokk og byggingu 1. áfanga borgarlínunnar á næstu ár- um. Eins og ég benti á í grein í Morgunblaðinu í mars sl. mun borgarlínan í besta falli leiða til þess að bílaumferð á höfuðborg- arsvæðinu verði um 4% minni en ella árið 2040. Erlendar reynslutöl- ur benda til þess að líklega verði árangurinn aðeins 2-3% minni bíla- umferð en ella. Til að ná þessum takmarkaða árangri þarf nánast öll uppbygging á höfuðborgarsvæðinu að vera í formi þéttingar byggðar meðfram samgönguásum borg- arlínunnar. Auk þess þarf að setja þröngar takmarkanir á fjölgun bílastæða og taka vegtolla á höfuð- borgarsvæðinu. Allt eru þetta vægast sagt mjög um- deildar aðgerðir og ólíklegt að þær gangi allar eftir. Bætum þjónustu strætó á hag- kvæman hátt Fram til þessa hafa aðgerðir til að greiða fyrir umferð strætó á höfuðborgarsvæðinu einkum verið fólgnar í að bæta við sér- akreinum fyrir strætó hægra megin meðfram umferð- armiklum þjóðvegum, s.s. Miklu- braut. Aðgerðir af þessum toga eru mun ódýrari og auðveldari en að umbylta göturými þannig að hraðvagnar fái sérrými vinstra megin í akbraut á kostnað al- mennrar bílaumferðar eða með því að gera sérgötur fyrir strætó, eins og skipulag borgarlínunnar gerir ráð fyrir. Nægilegt er að hafa sér- akreinar þar sem eru langar bið- raðir bíla á álagstímum umferðar. Í dag vantar sérakreinar á eystri akbraut Kringlumýrarbrautar og Hafnarfjarðarvegar milli Miklu- brautar og Álftanesvegar og á nyrðri akbraut Vesturlandsvegar milli Sæbrautar og Víkurvegar. Það kostar aðeins nokkra milljarða að gera þessar sérakreinar. Það er hægt að ganga skrefinu lengra og taka upp ódýrt hraðvagnakerfi (BRT) svipað og víða hefur verið gert erlendis. Sem dæmi má nefna að á Madison-svæðinu í Wisconsin, BNA, er fyrirhugað að taka upp ódýrt hraðvagnakerfi. Áætlaður kostnaður er 15-20 milljarðar. Það sem þyrfti að gera hér til viðbótar við ofangreindar sérakreinar er að endurbæta biðstöðvar og biðskýli og koma upp miðasöluvélum á bið- stöðvum. Ég tel að áætlaður kostnaður við sambærilegt hrað- vagnakerfi hér á höfuðborg- arsvæðinu verði ekki meiri en 10- 20 milljarðar. Hraðvagnakerfi – Samanburður valkosta Við skulum nú bera saman áhrif þessara tveggja valkosta á bíla- umferð. Borgarlínan, sem kostar 80 milljarða, myndi leiða til þess að bílaumferð 2040 yrði 2-4 % minni en ella. Ódýra hrað- vagnakerfið, sem kostar 10-20 milljarða, myndi leiða til þess að bílaumferð 2040 yrði 1-2% minni en ella. Borgarlínan er 60-70 millj- örðum dýrari en ódýra hrað- vagnakerfið en áhrif hennar til að draga úr aukningu bílaumferðar yrðu aðeins 1-2 prósentustigum meiri. Fróðlegt væri að kanna hvort fólk væri hlynnt fjárfestingu upp á 60-70 milljarða til þess að bílaumferð 2040 verði 1-2 % minni en ella. Lævís áróður Málflutningur aðstandenda borgarlínunnar minnir æ meir á ævintýrið um nýju fötin keisarans. Það er sífellt talað um ávinninginn af breyttum ferðavenjum og látið í veðri vaka að borgarlínan sé hryggjarstykkið í breyttum ferða- venjum sem leiði til þess að bíla- umferð 2040 verði 20% (eða jafnvel 24%) minni en ella. Það þarf ekki mikla stærðfræðisnillinga til að sjá að 2-4 % eru ekki stór hluti af 20%. Eftir standa 16-18% sem ætti þá að vera hlutur gangandi og hjólandi í því að bílaumferð 2040 verði 20% minni en ella. Því fer fjarri að áætluð aukning á hlut gangandi og hjólandi í ferðafjölda úr 20% upp í 30% á tímabilinu 2015-2040 geti leitt til þess að bíla- umferð 2040 verði 16-18% minni en ella. Látum það nú liggja á milli hluta og gefum okkur að hlutur gangandi og hjólandi geti aukist það mikið að 20% markmiðinu verði náð. Flestir ættu að geta verið sammála um að æskilegt sé að ferðavenjur breytist það mikið að bílaumferð verði 20% minni en ella. Ekki síst í ljósi þess að ef mögulegt er að ná þessu markmiði, þá er það nánast óháð því hvort borgarlínan verður að veruleika eða ekki. Borgarlínan = Nýju fötin keisarans Eftir Þórarin Hjaltason » Fróðlegt væri að kanna hvort fólk væri hlynnt fjárfestingu upp á 60-70 milljarða til þess að bílaumferð 2040 verði 1-2 % minni en ella. Þórarinn Hjaltason Höfundur er umferðarverkfræðingur og MBA. thjaltason@gmail.com Fyrir 10 árum var ég með í að kanna hvort rækta mætti vetrarrepju og nepju hér á landi og vinna jurtaolíu úr fræjunum til framleiðslu á lífdí- silolíu sem kæmi í stað jarðolíu fyrir fiskiskipin. Verkefnið var þríþætt: ræktun og uppskera, þresk- ing og vinnsla jurtaoliu og fóðurs úr fræjunum og svo umestrun jurtaolíunnar með metanóli. Nið- urstöður tilraunanna voru gefnar út 2010 af Umhverfisstofnun sem hafði veg og vanda af þessu. Skýrsluna má sjá á netinu: bond.lbhi.is/ lisalib/get- file.aspx?heim- ild=4646. Vetr- arafbrigði og nepja hentuðu vel til rækt- unar einkum á Suður- landi og var fræmagn jafnt eða meira en þar sem ræktun er ann- arsstaðar í Evrópu. Þresking tókst líka vel og pressun olíu úr fræjum í litlum mæli tókst með ágætum, þau innihéldu allt að 40% olíu og svo hratið eða afgangur fræjanna sem er ágætis dýrafóður.Yfir 3 t CO2 gróð- urhúsalofttegundarinnar koma frá hverju tonni innfluttrar jarðolíu sem brennd er. Þetta er því gjald- eyrissparandi og atvinnuskapandi framkvæmd og renndi fleiri stoð- um undir landbúnað og iðnað. Hér er reiknað með 3 t fræja af hekt- ara og er þá bundið um 6 t CO2 úr andrúmsloftinu, helmingur í jurta- olíunni og restin í hratinu eða fóð- urmjölinu. Þá er ótalinn sá hluti sem binst í stöglum og rótum en alls gæti þetta orðið 11,5 t CO2 binding á hektara. Hér er gengið út frá að fengjust 860 kg jurtaolíu, 1.875 kg fóðurs og 5.600 kg líf- massa af einum hektara með lotu- vinnslu. Með útleysingu jurta- olíunnar með t.d. hexan-leysi mætti auka olíumagnið í allt að 1.145 kg af hektara sem hentaði stærri framleiðslueiningum fyrir lífdísil. Þá gefur kaldpressuð repjuolía ekkert eftir hollustu ólífuolíu í matargerð en markaður er bara 1-2000 t hérlendis. Lífdísill er hreint, óeitrað og óeldfimt lífrænt efni. Það brotnar niður í náttúrunni á 2-3 vilkum og er skaðlaust gróðri og dýrum. Þá mengar það ekki jarðvatn eða jarðveg og er ekki hættulegur farmur í flutningum. Sem elds- neyti er yfir 80% minna útslepp krabbmeinsvaldandi efna borið saman við hefðbundið jarðdísil. Bara NOx lofttegundir eru þó um 10% meiri (oxun niturloftsins í brunahólfi vélarinnar). Þar sem nær ekkert er af brennisteini í repjulífdísil er unnt að nota hefð- bundna tækni óbreytta til að fjar- lægja NOx gösin. Lífdísilolía er talin hafa 30% meiri smureig- inleika i dísilvélum en jarðdísill. Um 10% meira magn þarf þó af lífdísilolíu til að fá söma varma- orku og úr jarðdísil. Geyma má lífdísilolíu í sömu tönkum og jarðdísil en forðast skyldi snert- ingu við eir, blý, tin, sink auk gúmmís en teflon hentar vel. Með því að losa fitusýrurnar frá glýserólinu og estra þær með met- anóli sem kallast þá RME (repju- metanólestrar) lækkar seigja jurtaolíunnar tífalt og blossamark um 100°C og því unnt að nota beint á dísilvélar í stað jarðolíu eða blanda í jarðdísilolíu í öllum hlutföllum. Eina vandamálið með lífdísil er að undir frostmarki á 100% lífdísil (B100) til að mynda útfellingar sem geta stíflað síur og þarf hitun olíunnar eða íblönd- unarefni til að losna við þetta. Þetta er þó ekki vandamál með blöndur lífdísilolíu og jarðolíu. Iðnaðarframleiðsla getur verið einfalt og ódýrt lotuferli við minni framleiðslu eða stórt alsjálfvirkt ferli. Um 10% glýseról fellur til við estrunina og má breyta í því í metanól með vetni. En ýmis not eru önnur fyrir glýseról, m.a. blöndun í dýrafóður eða í sápu . Er því um mjög hreina vinnslu að ræða. Þá má nota etanól, ísópróp- anól eða bútanól í stað metanóls ef ódýrara og losna við metanólið. Við lotuferli er hvatinn einota kalí- eða natríumlútur en „eilífðarhvati“ við samfellt ferli. Heimsfram- leiðslan er orðin yfir 70 milljón tonn og stærst eru Kína og Kan- ada, nánast jafnstór með um 50% en 11 Evrópulönd með um 36% og restin svo Indland, Ástralía og BNA. Hér er því stórkostlegt tækifæri sem hrinda mætti í fram- kvæmd og tryggja umhverf- isvænan orkugjafa á dísilvélar til frambúðar. Lífdísilolía í stað jarðdísilolíu fyrir fiskiskipin Eftir Pálma Stefánsson » Innlend lífdísilolía yki þjóðarkökuna og mikill akkur í að losna við baneitraða jarðdísil- olíu og laga kolefnis- kvótann um leið. Pálmi Stefánsson Höfundur er efnaverkfræðingur. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.