Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 27

Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018 Maddý tók stjúpbörnin á 17. júní-skemmtun í borginni og dætur hennar heimsóttu systkini sín á Kiðafelli í sveitina. Við systur bjuggum hvor um sig um tíma hjá Maddý og föður okkar á Miklubrautinni. Sigga sem barn en Gauja mennta- skólaárin með séríbúð við hlið þeirra og í fæði hjá Maddý, sem var mjög góður kokkur. Var það skemmtilegur tími og margt rætt við eldhúsborðið, svo sem pólitík, hestar og Íslendingasög- ur. Er eftirminnilegt þegar Maddý tókst að fá Gauju til að vinna á kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins og mæta á kosningavöku á eftir, þrátt fyrir að Gauja væri á þeim tíma hinn mesti róttæklingur. Trygg fram- sóknarkona var Maddý alla tíð. Það voru skemmtilegar heim- sóknir á Hrannargötuna á Ísa- firði eftir að fjölskyldan flutti vestur en þá bjuggum við systur erlendis. Var það töluvert ferða- lag í þá daga og gaman að upp- götva fallega Ísafjarðardjúpið í góðum félagsskap. Maddý var mjög umhugað að halda upp á minningu föður okk- ar Þorvarðar. Var komið saman hjá Maddý árlega á afmælisdegi hans. Minnisstætt er þegar Maddý bauð í 100 ára minningu pabba ári fyrr, þar sem hún bjóst ekki við að lifa fram á 100 ára afmælið hans. Þegar 100 ára afmæli pabba var ári síðar sló Maddý upp mikilli veislu til að fagna því og að vera enn lifandi. Þegar ljóst var hvert stefndi og ekki byði hún í fleiri veislur var aðdáunarvert hversu æðru- laus og sátt hún var við lífið og tilveruna. Maddý var stórbrotin kona og margt til lista lagt. Afar skemmtileg í frásögnum og kveðskap alveg fram á síðasta dag. Heimsótti Gauja hana á Landspítalann síðustu viku hennar þar og veltist um af hlátri við að hlusta á sögurnar hennar. Maddý var skapstór, hæfi- leikarík og afburðagreind kona. Þökkum við Maddý fyrir góða samfylgd í gegnum árin. Guðbjörg og Sigríður Þorvarðardætur. Magdalena Thoroddsen tengdamóðir okkar kvaddi þenn- an heim þegar vorið var að vakna og lóan byrjuð að kvaka í mó. Þannig lokast kafli í lífsins bók um leið og annar opnast. Við minnumst með þökkum þess tíma sem við áttum samleið með merkiskonu. Magdalena var Barðstrend- ingur að ætt og uppruna, fædd í Vatnsdal í Rauðasandshreppi. Þar ólst hún upp í stórum systk- inahópi við árvökul kærleiks- augu foreldra sinna. Í Vatnsdal var jafnan margt um manninn og oft á tíðum mikill gestagang- ur og þótt munnar hafi margir verið til að metta, þá var ætíð nóg til að víkja að þeim sem minna máttu sín. Samheldnin var mikil og eldri systkinin hlúðu að þeim yngri. Fjölskyld- an öll söngvin, ljóðelsk og skáld- mælt. Þeim varð ekki skotaskuld úr því að koma saman kviðl- ingum og vísum, jafnvel var stíl- vopninu beitt til leikritsgerðar. Þá var æfður söngur og systk- inin mynduðu raddaðan kór. Veganesti sem veitti styrk og festu um langa og farsæla ævi. Lifandi frásagnir hennar af æskuheimilinu í Vatnsdal, barnaleikjum og bernsku- brekum, heimilisaðstæðum og viðhorfum, festust í minni fjöl- skyldunnar. Persónur og atburð- ir stigu fram ljóslifandi í munni hennar, litaðar græskulausum húmor og mannúð. Maddý var stór í sniðum í allri sinni framgöngu. Skapferlið vestfirskt. Þar gat hvesst með byljum, en í stafalogni á sléttum sjó var náðugt að eiga þar fé- lagsskap og njóta samræðna um sögu landsins, þjóðhætti, stjórn- mál og bókmenntir. Þegar komið var að skáldskap og ljóðum var sem sólstafir stæðu af himni í návist hennar. Heimili þeirra Þorvarðar og Magdalenu í sýslumannshúsinu á Ísafirði einkenndist af rausnarskap og gestrisni. Þar stjórnaði húsfreyjan af skör- ungsskap. Var sama hvort í hlut áttu ættingjar og vinir, sýslu- nefndarmenn eða stjórnmála- skörungar. Öllum var heimilið opið. Húsmóðirin mat mannkosti framar mannvirðingum og inn- ræti framar umgjörð. Maddý tengdamóðir okkar sýndi barnabörnum sínum um- hyggju og ástúð. Ekki ónýtt að eiga kost á að bergja af óþrjót- andi brunni skáldskapar og sagna þeirra kynslóða sem á undan gengu. Slík kynni jafnast á við áralangt háskólanám. Maddý lét sig aldrei vanta í sauðburðinn í Fellsmúla á vorin. Hún kom, hjálpaði til og fylgdist með og naut þess að vera í beinu sambandi við dýrin og náttúruna enda tengd menningu landsins sterkum böndum. Það voru dýr- mætar stundir. Um langt skeið var Magda- lena höfuð sinnar fjölskyldu, þar sem börn og barnabörn leituðu skjóls og stuðnings í annríki og erli daganna. Út um gluggann á Aflagranda sá hún sama hafið og hún lék sér við í fjöruborði æsku sinnar í Vatnsdal. Sólarlagið er baðað mörgum litum, skærum og djúpum, hvort heldur er við Patreksfjörð eða Faxaflóa, líkt og farsæl ævi. Síðasta systkinið úr Vatnsdal hefur kvatt. Við sem um langan tíma feng- um ómælda hlýju hennar og kærleika, félagsskap og stuðning beygjum höfuð okkar í djúpri þökk fyrir traust og elsku sem við fengum að njóta. Minning hennar mun lifa. Sigurður Pétursson og Sigurjón Bjarnason. Elsku amma mín. Það er furðuleg tilfinning að standa frammi fyrir því að ein stærsta festan í lífi mínu er horfin. Því það varstu. Minningarnar um þig lifa með mér og sonum mín- um. Barnæskuminningar af Miklubrautinni geyma ilm af ristuðu brauði, kaldri kók og byssó með tóbakshornunum. Ég naut þess frá unga aldri að rök- ræða við þig um það hvort Þor- grímur eða Þorkell hefði vegið Véstein í Gíslasögu Súrssonar og ekki síst þegar rökræðurnar enduðu í sjónvarpsherberginu heima þar sem við horfðum sam- an á Útlagann. Sunnudagskvöld á menntaskólaárunum geyma minningar af ljúfum stundum með þér á Aflagrandanum en þér þótti mikilvægt að öll barna- börnin fengju heita ömmumáltíð einu sinni í viku. Þú varst stór hluti af jólunum mínum og verð- ur það ljúfsár skylda mín að við- halda þeirri hefð að spila Horna- fjarðarmanna við börnin mín á meðan rjúpuilmur fyllir húsið. Þú varst stoð mín og stytta í gegnum öll mín uppvaxtar- og fullorðinsár og ég mun aldrei gleyma þeim bandamanni sem ég átti í þér. Með ást og söknuði, Þorvarður Kjerulf Sigurjónsson. Í dag kveðjum við elskulega móðurömmu mína, Magdalenu Thoroddsen. Amma var einstök kona, hún var fyrirmynd mín og traust vinkona. Fyrstu minningarnar sem ég á af Maddý ömmu eru á Miklu- brautinni. Þar kom fjölskyldan oft saman og voru það fagnaðar- fundir þar sem við frændsystk- inin lékum á als oddi. Amma var mátulega afskiptalaus sem gerði það að verkum að leikirnir sem urðu til hjá frændsystkina- hópnum voru einstaklega litríkir og frumlegir. Bestar voru stund- irnar í sólríkum garðinum á milli birkitrjánna í feluleikjum, klifri og handahlaupum. Með unglingsárunum jukust samverustundirnar með ömmu og gæðin sömuleiðis. Amma hafði áhuga á ungu fólki og gaf sér alltaf tíma til að spjalla, gefa ráð og deila reynslu sinni. Frá þessum tíma á ég mínar dýr- mætustu minningar af ömmu. Hún hafði einstaklega góða nær- veru og við gátum setið og talað saman svo klukkutímum skipti heima hjá henni á Aflagrand- anum. Sambandið okkar breytt- ist í einlæga vináttu og við urð- um trúnaðarvinkonur. Amma var tilfinningarík og listræn og reyndist alltaf sérlega vel þegar eitthvað bjátaði á. Þegar þörf var á að leita til einhvers eldri og reyndari var hún alltaf til taks og örlát á tíma og ráð. Hún gaf sér tíma í að ræða málin í þaula og oft gróf hún upp vísur og ljóð sem áttu við hverju sinni. Þannig kenndi hún mér að mannskepnan er alltaf eins, til- finningar og þrár eru sammann- legar og óháðar tíma eða aldri. Á Aflagrandanum hélt amma áfram að þjappa okkur frænd- systkinunum saman. Hún bauð öllum skaranum í mat nánast vikulega og borðhaldið var oft með líflegasta móti. Málefni líð- andi stundar voru tekin fyrir og var hópurinn ekki endilega sam- mála. Þá kom staðfestan og hreinskilnin í ömmu hvað best í ljós og urðu samræðurnar oft ansi skrautlegar fyrir vikið. Minningarnar um þessar stundir eru í dag svo dýrmætar og við frændsystkinin stöndum í þakk- arskuld við ömmu fyrir þær. Amma var sjálfri sér sam- kvæm og ófeimin við að láta skoðun sína í ljós. Það er sá eig- inleiki sem ég kunni hvað mest að meta í hennar fari. Hún var fróð og ljóðelsk og því nutum við góðs af þegar hún fór með kveð- skap við ýmis tækifæri. Ég dáð- ist alltaf að því hversu ótrúlegt minni hún hafði. Maður kom aldrei að tómum kofunum þegar íslensk ljóð og bókmenntir voru annars vegar. Hún gat þulið upp heilu vísnaflokkana og sálmana án þess að bikka auga. Hún kunni að meta fróðleik og kunn- áttu og lagði mikla áherslu á að við barnabörnin gengjum menntaveginn. Amma stóð alltaf þétt við bakið á mér í náminu og hvatti mig til að gera vel. Fyrir það er ég óendanlega þakklát í dag. Allir persónueiginleikar Maddý ömmu gerðu hana að ein- staklega skemmtilegri og eftir- minnilegri konu. Hún var stað- föst og greind og sjálfri sér samkvæm. Örlát við þá sem stóðu henni næst og fyrst til að bjóða fram hjálparhönd þegar eitthvað bjátaði á. Ég á henni svo margt að þakka og hún mun alltaf vera mér fyrirmynd. Ég kveð Maddý ömmu full kær- leika, þakklætis og virðingar. Guð blessi minningu Magda- lenu ömmu. Magdalena Sigurðardóttir. Þegar við Óli kynntumst um þrítugt, komumst við fljótt að því að föðursystir hans, Magda- lena, og föðurbróðir minn, Þor- varður, voru hjón. Okkur þótti það merkileg tilviljun sem það og er. Fyrsta minning mín um Magdalenu er frá því að ég, ný- flutt til landsins með pabba, mömmu og Eiríki bróður og fer í boð til Diddu frænku, föðursyst- ur minnar. Þar var verið að kynna Magdalenu, sem tilvon- andi eiginkonu Þorvarðar. Þá var Magdalena rúmlega þrítug og Þorvarður um fertugt. Ég á minningu þar sem ég, 7 ára gömul, horfi á þau sitja saman í tveggja manna sófa. Þetta var í fyrsta sinn sem ég var kynnt fyrir kærustupari og þótti það merkilegt, en man að mér fannst þau svolítið fullorðið kærustu- par. Ég man einnig að oft var talað um að Magdalena væri menntuð erlendis frá og væri gáfuð kona. Á þeim árum, þegar jafnréttismálin voru á allt öðrum stað en þau eru í dag, þótti mér þetta mjög merkilegt. Óli man líka eftir því, þegar hann sem strákur velti því fyrir sér hvern- ig Magdalena gæti verið blaða- maður, því hún væri, jú kona. Tímarnir hafa breyst. Svo man ég eftir hesta/fjöl- skylduferð ekki svo löngu eftir að ég hitti Magdalenu fyrst. Þá er Magdalena með Ólínu litla og mamma með tvíburasystur mín- ar Ingu og Möggu. Þær sitja í sólinni með litlu stelpurnar, hestarnir eru þarna, og við, Ei- ríkur, pabbi og Þorvarður. Það er góð tilfinning og bjart yfir þessari minningu. Óli á minningu frá svipuðum tíma og ég var kynnt fyrir Magdalenu. Þá tók hún við heimilisrekstri meðan Elín mamma hans eignast síðasta barnið, hana Ólínu. Hann hugsar til þess í dag að það hafi senni- lega ekki verið auðvelt verk að taka þrjá stráka að sér, sem voru vanafastir og áttu t.d. erfitt með að sætta sig við að hafra- grauturinn væri ekki alveg eins og hjá mömmu. Magdalena hafði þann hæfi- leika að tala við börn eins og fullorðnar manneskjur. Maður fann svolítið til sín. Eftir að við Óli kynntumst urðu kynni mín nánari við fjöl- skyldu Magdalenu. Minningarn- ar um samverustundirnar með þeim systkinum frá Vatnsdal eru ógleymanlegar, enda voru þau söngvin og mikið sagnafólk. Magdalena er sú síðasta í 14 manna systk- inahópi sem nú kveður. Svona vefast lífsþræðirnir saman og minningarnar eru margar nú þegar kemur að kveðjustund. Við Óli þökkum Magdalenu fyrir allt og sendum dætrum hennar, afkomendum og aðstandendum og öðrum samúð- arkveðjur. Minningin um mikil- hæfa og góða konu lifir. Sigríður Jónsdóttir. Magdalena Thoroddsen Fallin er frá Magdalena Thor- oddsen móðursystir okkar, síð- ust 14 alsystkina. Margs er að minnast þegar horft er til baka. Þegar ég, sá eldri okkar bræðra – heimsótti Maddý nýlega hafði ég með mér bréf sem hún hafði ritað í Stokkhólmi 1951 og var stílað á staulann mig, fimm ára gamlan. Sumarið áður hafði ég þurft að leggjast inn á spítala í Reykjavík. Enginn sérstakur barnaspítali var til og mæðrum svo ungra barna var því bannað að heimsækja þau. Því tók Maddý mig upp á sína arma og fór með mig einan niður í bæ. Allt var þetta ævintýri ungum dreng en um leið stórt og ógn- vekjandi. Lítil hönd læddist því alltaf ósjálfrátt í hönd þessarar góðu frænku sem allt vildi fyrir frænda sinn gera og lítt mælt sælgæti flaut með. Þegar ég vaknaði eftir aðgerð var frænka mín þar til staðar. Annað frænd- fólk kom en var mér næsta framandi; það var bara Maddý, hlýja hennar og dagleg koma sem hresstu litla sál. Þannig byrjuðu okkar kynni þar sem hún gekk mér nánast í móður- stað. Síðar meir sá ég hversu annt frænku minni var um ætt sína og sitt fólk. Fyrir alllöngu fékk ég fullan tilstyrk hennar við að semja sögu ættargrips sem hafnað hafði í foreldrahús- um okkar vestra; það var skatt- hol Ólafs Teitssonar úr Sviðnum, smíðað ca. 1840, brúðargjöf föð- ur til Sigríðar langömmu. Ísafjarðarár frænku var sá tími sem mér finnst að leiðir fjölskyldna mömmu og Maddýj- ar hafi legið hvað mest saman enda nándin þá meiri. Ég man ekki betur en Ólína eldri dóttir Maddýjar kæmi til dvalar hjá okkur á Núp, bæði sem barn og unglingur. Þetta var gagnkvæmt og er þá komið að yngra bróð- urnum Brynjólfi sem var í ,,kost og logi“ hjá frænku sinni er hann gekk í MÍ. Það var góður og eftirminnilegur tími að vera hjá frænku minni á Ísafirði einn vetur. Fyrst vil ég þó rifja upp þann sið móður okkar að heim- sækja systkini og ættingja í Reykjavík á hverju sumri. Fékk ég sem snáði að fljóta með í þessar sumarferðir allt þar til ég fór sem unglingur ellefu ár í sveit að Látrum til Diddu frænku. Á þann hátt kynntist maður þessum mikla frændgarði að einhverju marki og oftar en ekki var dvalið í góðu yfirlæti hjá Maddý og fjölskyldu. Vet- urinn á Hrannargötu, fjórir á sýslumannsheimilinu, var lær- dómstími og tímamót fyrir ung- an mann sem ekki hafði dvalið á mölinni fyrr. Mér var tekið sem hluta af fjölskyldunni og á ynd- islegar minningar um þau hjónin og systurnar tvær. Á heimilinu var oft mikill gestagangur og þótti Maddý gaman að halda veislur og var þá jafnan vel veitt í mat og drykk og hún hrókur alls fagnaðar. En kannski eru mér eftirminnilegastar þær stundir okkar Maddýjar þegar við sátum tvö fyrir framan sjón- varpið á föstudagskvöldum og spáðum í tilveruna og lífið. Gjarnan tvö staup af „púrtara“ sem Maddý skenkti og kenndi frænda sínum hvernig ætti að umgangast vín og njóta á „kúltiveraðan“ hátt. Hún var jú sigld manneskja og minntist studum á veru sína í Svíþjóð. Við bræður vottum báðum dætrum hinnar látnu og fjöl- skyldum þeirra dýpstu samúð við fráfall elskaðrar móður, tengdamóður og ömmu. Einar og Brynjólfur Magdalenu Thoroddsen kynntist ég fyrst þegar ég kom inn í fjölskylduna sem kærasta elsta barnabarns hennar, hans Dodda míns, fyrir tæpum 20 ár- um. Ekki grunaði mig að kröf- urnar til þess hlutverks míns væru eins miklar og raun bar vitni, en Magdalena hefði nú ekki samþykkt hvaða stelput- rippi sem var fyrir augasteininn sinn, hann Dodda. En ég komst greinilega gegnum nálaraugað því Magdalena, eða Maddý eins og ég kallaði hana alltaf, tók mér vel frá fyrstu stundu. Ég var svo endanlega búin að bræða hana þegar það kom í ljós eftir fyrsta árið okkar Dodda í sambúð að sláninn sá hafði bætt aðeins á sig. Hún kunni vel að meta það að ég skyldi ala hann svona vel. Reyndar var henni umhugað um það að fólk væri í passlegum holdum og ein síðustu orðin sem hún lét falla þegar við hittumst í hinsta sinn fyrir stuttu voru hrósyrði um holdafar mitt, enda hef ég þyngst aðeins. Og ekki lét hún sitt eftir liggja þegar kom að góðgjörð- um. Oft nutum við Doddi ásamt fleirum í fjölskyldunni gestrisni hennar í blokkaríbúðinni á Afla- grandanum þar sem við fengum heimabakaða ástarpunga eða pönnukökur. Og alltaf mundi hún að ég drakk te en ekki kaffi. Þá var líka oft tekið í spil, og spilað ýmist vist eða Hornafjarð- armanni eftir því hversu margir spilamenn voru. Maddý var slyng í spilum en reyndi stund- um laumulega að dumpa með fingrinum á spilið ef hún henti hund í slag sem einhver annar átti. Það tók mig langan tíma að átta mig á að þá var hún sterk í þeirri sort. Í heimsóknum okkar til Maddýjar fengum við svo iðu- lega að heyra sögur af Dodda frá fyrstu árunum í lífi hans heima hjá þeim hjónum Magda- lenu og Þorvarði heitnum í sýslumannshúsinu á Ísafirði, en Ólína tengdamóðir mín bjó þá enn í foreldrahúsum. Þar svaf Doddi fyrstu fjóra mánuði æv- innar allar nætur á bringu ömmu sinnar svo Ollý gæti hvílst á nóttunni og gengið í menntaskólann á daginn, en þess á milli stóðu allar heldri frúr bæjarins og dáðust að sápu- þvegnum drengnum í blúndu- skreyttri vöggu í stofunni. Ég held að það hafi reynst Magda- lenu mjög erfitt þegar að því kom að Ólína flutti að heiman og úr bænum með son sinn því hún mátti varla af dóttursyninum sjá. En seint á unglingsárum flutti Doddi aftur til ömmu sinn- ar sem þá átti heima á Miklu- brautinni og bjó hjá henni í nokkur ár. Er því varla furða að Maddý hafi tengst Dodda nán- um böndum. Magdalena var sannur skör- ungur. Hún sætti sig ekki við neitt hálfkák enda dugnaðar- forkur sjálf og stóð vörð um alla þá sem stóðu hjarta hennar næst. Hún var greind kona og ég er þakklát fyrir að hún fékk að halda reisn sinni allt til enda. Gengin er góð kona, guð blessi minningu Magdalenu Thorodd- sen. Erla Rún Sigurjónsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA GUÐMANNSDÓTTIR , Efstalandi 18, Reykjavík, áður Hásteinsvegi 55, Vestmannaeyjum, sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 8. maí, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 19. maí kl. 11. Stefán Einarsson Jóhanna G. Guðjónsdóttir Jón Einarsson Ragna Sigurðardóttir Einar Fjölnir Einarsson Davíð Þór Einarsson Indriði Helgi Einarsson Rósberg Ragnar Einarsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, KRISTJÁN PÉTUR GUÐMUNDSSON, apótekari, Hagamel 47, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þann 29. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey 11. maí frá Neskirkju. Kristín Ingiríður Hallgrímsson Ásta Júlía Kristjánsdóttir Tómas Þór Kristjánsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.