Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 37

Morgunblaðið - 14.05.2018, Side 37
Brattir Olaf Otto Becker og Herbert Beck sendiherra Þýskalands á Íslandi voru kátir. Morgunblaðið/Eggert »Sýning hins kunna þýska ljósmyndara Olafs Otto Becker, „Ís og land – Ljósmyndir frá Ís- landi og Grænlandi 1999- 2017“, var opnuð í Ljós- myndasafni Reykjavíkur á laugardag. Var opnunin vel sótt af áhugafólki um fram- úrskarandi ljósmyndun og samtímamyndlist. Becker hefur sent frá sér nokkrar rómaðar bækur með ljós- myndum frá báðum þess- um löndum, litljósmyndir sem hann tekur á stóra blaðfilmumyndavél, og á sýningunni má sjá úrval prenta úr þessum mynd- röðum sem víða hafa verið sýndar. Ljósmyndir eftir Olaf Otto Becker sýndar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Gluggað Gest- um gafst kostur á að skoða ljós- myndabækur Olafs. Glaðar Laufey Sigurbergsdóttir og Jóhanna Guðrún Árnadóttir. MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2018 Tæplega sex metra hár skúlptúr Helga Gíslasonar myndlistarmanns, Heimur í huga manns, hefur verið settur upp í hinum vinsæla skúlptúr- garði Pilane á eynni Tjörn í Bohus- län-skerjagarðinum við Svíþjóð. Sumarsýningin í Pilane verður opnuð 19. maí næstkomandi og í garðinum getur að líta verk eftir níu samtímalistamenn og suma heims- þekkta, eins og Jaume Plensa og Tony Cragg. Auk Helga og þeirra tveggja má í sumar sjá verk eftir Laura Ford, Hanneke Beaumont, Ida Koitila, Maria Miesenberger, Per Svensson og Hedvig Bergman. Þetta verður tólfta sumarið sem skúlptúrsýning er opnuð í Pilane, en sýningarsvæðið er annars þekkt fyr- ir fornar grafir og mannvistarleifar frá járnöld. Ljósmynd/Helgi Gíslason Reisuleg Verk Helga Gíslasonar og Jaume Plensa í Pilane á eynni Tjörn. Stór skúlptúr Helga Gíslasonar í Pilane Uppsetning Það var vandaverk að setja skúlptúrinn upp í Pilane. Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Japanskt meistaraverk Landsins mesta úrval af píanóum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. ICQC 2018-20 Félagar Ljósmyndararnir og stórkanónurnar, Ragnar Axelsson, Guðmundur Ingólfsson og Kristinn Ingvarsson, létu sig ekki vanta á sýninguna hjá Olaf. Hér eru þeir í léttu spjalli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.