Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Qupperneq 16
„Framan af var þetta spurning um að hafa í sig og á. Ég gerði búninga og vann í leikhópum áð- ur en ég fór í leiklistarskólann og svo eftir út- skrift buðust mér engin hlutverk og þá fór ég að gera leikmyndir. Gerði leikmyndir fyrir stór- sýningarnar Fame og Grease og það var heil- mikil áskorun. Ég bý að allri þessari ólíku reynslu í dag. Ég fór líka að skrifa og reyna að viða að mér þekkingu í dramatúrgíu, sem okkur vantar eiginlega gott íslenskt orð yfir, en snýr meðal annars að uppbyggingu leiktexta, en þetta hjálpaði mér mikið í vinnunni sem leikari. Sumt gerði ég á sínum tíma af nauðsyn og ann- að af forvitni en svo fór þetta að næra hvað ann- að. Að hafa verið aðeins í öllu. Svo bauð Gísli mér að vera með í Rómeó og Júlíu Vesturports og það ævintýri allt saman hófst og leikara- starfið tók dálítið yfir. Ég hélt samt alltaf áfram að skrifa, tók þátt í því að gera fyrstu seríuna af Ófærð, skrifaði fjölmargar leikgerðir, ein sex kvikmyndahandrit og núna í seinni tíð hef ég fengið þónokkur tækifæri til að leikstýra. Og þá kemur þetta allt heim og saman. Ég hef mikla ánægju af því.“ Hvað er það við leikstjórnina sem heillar, er það að fá að stjórna öðrum? „Já, nei, það er sko örugglega ekki að stjórna öðrum. Ég er meira og minna búinn að gefast upp á því að reyna að stjórna öðru fólki. Svo er það eiginlega ekki rétt að leikstjóri stjórni. Verk- stjórnin sjálf er svo lítill hluti af þessu öllu. Hlut- verk leikstjórans eins og ég sé það er fyrst og fremst að örva sitt samstarfsfólk; fá alla aðstand- endur til þess að líða vel, finna öryggi í því sem þeir eru að gera svo það besta í þeim geti blómstrað. Leikarastarfið gengur svo mikið út á það að byggja upp sjálfstraust. Finna leið til að túlka persónu sína á sannfærandi hátt, innanfrá og út á við. Leið sem maður getur skilið með haus og hjarta og staðið með, fyrir utan allt þetta praktíska, muna textann og standa berskjald- aður uppi á sviði. Ég veit af eigin raun að maður getur verið dálítið umkomulaus sem leikari, það er stöðugur efi í öllu sem maður gerir, nauðsyn- legur. En ef maður hefur á tilfinningunni að leik- stjórinn treysti manni ekki fyrir því að finna réttu leiðina, er eiginlega útilokað að maður finni hana. Þannig að ég lít miklu frekar á mitt starf sem leikstjóri sem einhvers konar leikörvari. Eða leikhvíslari. Ég reyni að vera ekki að ýta fólki heldur vil að hver og einn finni sinn eigin farveg í samhengi við verkið og uppsetninguna, þá geta töfrarnir gerst og allt lifnað við.“ Ólafur er fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu en er í góðfúslega veittu tveggja ára leyfi til þess að sinna öðrum verkefnum. „Hjarta mitt slær með leikhópi Þjóðleikhúss- ins þar sem ég hef unnið sem leikari síðasta ára- tuginn og rúmlega það, en það slær líka hér í Borgarleikhúsinu þar sem ég hef komið að fjöl- mörgum sýningum og það slær líka með Vest- urportshópnum og reyndar líka fyrir norðan þar sem ég tókst á við mitt fyrsta stóra hlutverk og var að leikstýra síðasta vor. En ég er kannski ekkert alveg hættur að leika, en ég fæ alveg jafn mikið út úr því að sjá aðra leika og örva þá,“ segir Ólafur. Leikarastarfið er hugsjónastarf Hlutverk leikarans er margþætt að sögn Ólafs. „Leikarar eru yfirleitt næmt fólk sem hefur áhuga á mannlegu eðli og mannlegum sam- skiptum. Þeir vilja líka, svona almennt séð, búa til betri heim; þeir vilja að fólki, okkur, líði betur, að við fáum innsýn inn í eðli okkar og náungans, sjáum lífið í nýju ljósi. Þetta er hugsjónastarf. Við erum að vekja bræður okkar og systur til umhugsunar og láta þau spyrja: Er það svona sem við viljum hafa hlutina? Hvar ert þú stadd- ur, kæri vinur, í þinni vegferð? Er þetta kannski eitthvað sem gæti reynst þér lærdómsríkt, þessi kvöldstund hér? Eða ertu kannski þreyttur og hefur þörf fyrir að láta skemmta þér? Eða má kannski minna þig á að vera þakklátur í lífinu? Þetta er hugsjónastarf, já. Meðal annars.“ Er fjallað um hugsjónir í myndinni Kona fer í stríð? „Já, eins og ég sagði, Benni vildi gera mynd sem bjargaði heiminum smá. Það blasa við okk- ur risastór verkefni, mannskepnunni. Hvernig við getum haldið áfram að vera til í sátt við jörð- ina sem við búum á. Hvernig getum við varð- veitt hana? Og framtíð afkomenda okkar. Sumir segja að tími aðgerða sé jafnvel liðinn. En jafn- vel þótt svo væri, þá verðum við samt að gera eitthvað. Og þetta er kannski mynd sem fjallar um það að finna kraftinn inni í sér. Gefast ekki upp, gera það sem maður getur, hvert einasta handtak í rétta átt hjálpar. Það eru ýmis öfl sem hafa hagsmuna að gæta og vilja að ekkert verði gert. Það þarf að setja stór og mikil spurning- armerki við ýmsa hluti, og svo þarf maður líka að vera til og njóta þess á sama tíma,“ segir Ólafur. „Kona fer í stríð er einlæg mynd sem ég held að geti snert við okkur öllum.“ Kom næstum nakinn fram Það er auðvitað ekki langt að sækja hæfileik- anna og áhugann en foreldrarnir Egill og Tinna, eru bæði landsþekkt fyrir leik og söng, auk þess sem amma hans Herdís Þorvaldsdóttir var ein ástsælasta leikkona landsins. Leiklist hefur því fylgt Ólafi frá blautu barnsbeini. „Mig langaði ekkert alltaf að verða leikari, það var svona fram og tilbaka. Ég tók þátt í mörgum leiksýningum sem barn og fór oft með foreldrum mínum í vinnuna og sá ýmsar sýn- ingar, stundum margoft. Mamma og pabbi léku bæði í Vesalingunum og bæði í Gæjar og Píur, og þá var stundum erfitt að fá pössun, þó þau hafi vissulega átt góða að. Ég fékk að kynnast ömmum mínum og öfum vel, sem er mér ómet- anlegur fjársjóður, og föðursystir mín Ragn- heiður og maðurinn hennar Pjetur Maack hlupu líka undir bagga og eru eiginlega skáforeldrar okkar systkinanna, gott fólk og hjartahlýtt.“ Ólafur segist leita mikið til foreldra sinna og leiklistin sé alltaf mikið rædd á heimilinu. Bróð- ir hans Gunnlaugur er ballettdansari í Svíþjóð þannig að flestir í fjölskyldunni hafa staðið á sviði. „Þetta er fjölskyldufag. Við sjáum mikið leik- hús og tölum mikið um það. Ég vissi nokkurn veginn hvað ég væri að fara út í þegar ég sótti um leiklistarskólann. Ég sá þetta ekkert í nein- um hillingum. Ég vissi að þetta væri mikil vinna fyrir lítinn pening. Vinnutíminn er ekki sérlega fjölskylduvænn og það er mikil binding í þessari vinnu. Bæði dag frá degi, en sýningardaga er maður yfirleitt alveg undirlagður, og líka til lengri tíma. Leikarar eiga yfirleitt frí um páska og þegar leikhúsin loka á sumrin, en yfir vet- urinn er maður yfirleitt bundinn í báða skó. Ef þú ferð til leikhússtjóra og biður um frí, jafnvel með marga mánaða fyrirvara, svarar viðkom- andi yfirleitt fullur hluttekningar: „við verðum bara að sjá til.““ Ólafur Egill lék í fyrsta sinn á móti föður sínum Agli Ólafssyni í Túskildingsóperunni sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu árið 2005. Það lá eftirvænting í loftinu í sminki hjá Árdísi Jónu Bjarnþórsdóttur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Morgunblaðið/Sverrir Rómeó og Júlía sló í gegn í Borgarleikhúsinu og var leik- urum vel fagnað eftir frum- sýningu. Lengst til hægri á myndinni má sjá hjónin Nínu Dögg Filippusdóttur og Gísla Örn Garðarsson, sem fara með hlutverk elskendanna. Við hlið þeirra eru m.a. Ólafur Egill Egilsson, Vík- ingur Kristjánsson, Árni Pét- ur Guðjónsson, Ingvar E. Sigurðsson og Margrét Vil- hjálmsdóttir. Morgunblaðið/Jim Smart Ólafur Egill fékk Grímuna, íslensku leiklistar- verðlaunin, árið 2005. Var hann valinn leikari ársins fyrir Óliver hjá Leikfélagi Akureyrar og fyrir Svarta mjólk í Þjóðleikhúsinu. Ólafur Egill kom Esther Taliu heldur bet- ur á óvart og var búinn að skipuleggja óvænt brúðkaup. Þau giftu sig á Café París í sameiginlegu fertugsfmæli þeirra. Ólafur Egill var á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes fyrir stuttu þar sem myndin Kona fer í stríð var frumsýnd. Hér er hann með Irynu Danylejko söng- konu sem leikur veigamikið hlut- verk í myndinni. Ljósmynd/Brynjar Snær Þrastarson VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.