Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Page 24
HEILSA Nú eru margir búnir að setja upp trampólín í görðum sínum og ættu full-orðnir að notfæra sér trampólín af stærri gerðinni til að hoppa. Það er
styrkjandi, hefur góð áhrif á sogæðakerfið og svo er það líka skemmtilegt.
Hoppaðu meira
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018
Nú þegar styttist í að bjart sé allan
sólarhringinn hér á landi er mik-
ilvægt að huga að því að skapa
rétta umhverfið í svefnherberginu
til að stuðla að góðum svefni. Mik-
ilvægt er að geta útilokað birtuna
og sofa í rökkvuðu umhverfi. Til
þess eru góðar gardínur bestar.
Margar hleypa samt inn einhverju
ljósi sem getur truflað og þá er
frábær kostur að nota bara grímu
fyrir augun. Þetta er ódýr lausn
sem getur hjálpað mjög við svefn,
ekki síst ef fólk er gjarnt á að
vakna upp um miðja nótt því á
þeim stundum getur verið hvað
erfiðast að festa svefn á ný þegar
sólin skín.
SVEFNVENJUR
Undirbúðu
góða nótt
Gríma fyrir augun er góður kostur í kvöldbirtunni.
GettyImages/iStockphoto
Sumarið er erfiður tími fyrir þásem þjást af frjókornaofnæmien það er þó ýmislegt hægt að
gera til að hjálpa til. Hér eru ýmis
góð ráð sem gera frjókornatímabilið
bærilegra en auðvitað kemur ekkert
í staðinn fyrir lyf og heimsókn til of-
næmislæknis. Ráðin hér á eftir eru
hinsvegar hagnýt og hjálpa til.
Fylgstu með frjókorna-
mælingum
Það er mikilvægt að fylgjast með
frjókornamælingum og spám til að
forðast óvenjulega slæmt ástand ef
hægt er. Þá er gott að vera inni í
skjóli. Best er að fara út eftir rign-
ingu því hún hreinsar frjókorn úr
loftinu.
Í grein sem birtist á vef Guardian
er mælt með því að ef fólk með of-
næmi þarf að vera úti á dögum þeg-
ar frjókornamagn er mikið setji það
vaselín undir nasir til að stöðva frjó-
kornin og noti sveigð sólgleraugu
sem leggjast vel að andlitinu til að
loka fyrir frjókornin.
Á höfuðborgarsvæðinu hafa frjó-
korn verið mæld samfellt frá árinu
1988. Lengst af var gildran staðsett í
mælireit Veðurstofu Íslands í
Reykjavík en var flutt í Garðabæ
vorið 2011. Á Akureyri hafa frjókorn
verið mæld samfleytt frá árinu 1998.
www.ni.is/greinar/frjomaelingar
Tedrykkja og karríréttir
Kaffidrykkja getur ýtt undir ofnæm-
isáhrifin svo það er kjörið að fá sér
kamillute í staðinn sem inniheldur
náttúruleg antihistamín. Brenni-
netlute er líka talið hjálpa til við að
draga úr ofnæmisviðbrögðum.
Mjólkurvörur og sykraðar mat-
vörur geta ýtt undir einkenni eins og
stíflað nef þar sem þær auka slím-
framleiðslu í öndunarvegi.
Matur á borð við brokkolí, aspas,
lauk, hvítlauk, kirsuber og ananas
inniheldur antihistamín svo það er
sniðugt að hugsa um hvað maður
lætur ofan í sig.
Matgæðingar ættu líka að elda
góðan karrírétt því túrmerik dregur
úr bólgum.
www.myhayfever.com.au
Þvottur og hreint
inniloft
Mikilvægt er að þvo hendur oft.
Þegar frjókornamagn er mikið er
best að fara í sturtu þegar heim
er komið og þvo hárið vel því þar
safnast frjókorn saman.
Það er betra að hafa glugga og
dyr lokaðar eins mikið og hægt er og
það getur gert gagn að nota loft-
hreinsitæki með HEPA-síu. Líka er
gott að nota ryksugu með HEPA-
síu.
Nauðsynlegt er að skipta oftar en
venjulega um rúmföt og þvo þau á
háum hita.
Það segir sig kannski sjálft en það
má alls ekki þurrka rúmfötin á úti-
snúru.
Baráttan við
frjókornin
Nú er blómaskeið frjókornatímabilsins að renna
upp en því fylgir ofnæmi og óþægindi hjá mörg-
um. Það er hinsvegar sitthvað hægt að gera til að
bæta líðanina og gera þetta tímabil skárra.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
GettyImages/iStockphoto
Á höfuðborgarsvæðinu
hafa frjókorn verið mæld
samfellt frá árinu 1988.
Farsímanotkun eftir klukkan tíu
um kvöld getur leitt til þunglyndis
og einmanaleika. Það er ekkert
leyndarmál að það stuðlar ekki að
góðum nætursvefni að nota sím-
ann á kvöldin en nú hefur ný rann-
sókn leitt í ljós að það að skoða
samfélagsmiðla af koddanum seint
á kvöldin auki líkurnar á að við-
komandi þrói með sér t.d. þung-
lyndi og geðhvörf.
Rannsóknin náði til 91.000
manns á aldrinum 37-73 ára og
var fylgst með þeim í viku. Nið-
urstöðurnar voru birtar í The
Lancet Psychiatry.Ekki skoða Instagram eftir tíu á kvöldin.
Getty Images/iStockphoto
SÍMANOTKUN
Ekki nota
símann seint
á kvöldin