Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Qupperneq 28
Útsýnið og ferskt ilmandi loftið er á meðal þess sem heillar við ítölsku Dólómítana. Þarna er hægt að fara í margar skipulagðar gönguferðir þar sem hægt er að njóta einstaks útsýnis í ítölsku ölp- unum með viðkomu í litlum, huggulegum þorpum. Þarna talar fólk víðast hvar ítölsku, þýsku og ensku en í fjallaþorpunum lifir enn tungumálið ladin, sem er gamalt tungumál skylt latínu og lifir enn í afskekktum dölum í norðurhluta Ítalíu og suðurhluta Austurríkis. Dólómítarnir ná yfir þrjú héruð; Belluno, Trentino og Suður-Týról. Í síðastnefnda héraðinu er borgin Bolzano, skemmtileg borg sem kjörið er að heimsækja í leiðinni. Þar búa um hundrað þúsund manns og borgin hefur verið valin sú borg sem býður upp á mest lífs- gæði á Ítalíu. GettyImages/iStockphoto Ferskt loft og flott útsýni DÓLÓMÍTARNIR, ÍTALÍU FERÐALÖG Á ferðalagi er gott að hafa léttan bakpoka með sér. Hann erhægt að nota í dagsferðir til að geyma drykki, nesti, sólarvörn og þess háttar. Bakpoki fer betur með axlirnar en hliðartaska. Bakpoki til hjálpar 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018 Ólöf Erla Bjarnadóttir Guðrún Borghildur Valdís Harrysdóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Þetta hérað hefur uppá margt að bjóða, til dæmis fyr- ir fjölskyldur. Þar má til dæm- is gista á Panorama Camping Sonnenberg sem er í 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Útsýnið er einstakt og þarna er líka að finna leikvöll, bíó- herbergi og hægt er að fara í heita sturtu. Hvern einasta sunnudag er sýning þar sem eigendurnir klæðast hefð- bundnum fjallafötum og kynna gestum hefðir Vor- arlberg. Tjaldsvæðið liggur vel við ýmsum göngu- og hjólaferðum en líka er stutt í bæinn Bregenz við Bodensee. Frábært fjölskyldufrí VORARLBERG, AUSTURRÍKI Þeir sem hafa heimsótt Alpana einum of oft (ef það er hægt) ættu að skella sér til Svaneti- héraðs í Kákasusfjöllum. Þar er hægt að ganga á milli fjallaþorpa, sem mörg hver eru með göml- um byggingum. Maturinn þykir góður og er mjög ódýr og er fólk almennt mjög vinsamlegt ferða- mönnum. Fjallatindarnir eru margir hærri en 4.000 metrar þannig að al- mennt séð eru fjöllin enn hærri en í Ölpunum. Þorpið Mestia, sem er á meðfylgjandi mynd, er frægt fyrir varðturna sína sem eru frá miðöldum. Góður matur og vinalegt fólk KÁKASUSFJÖLLIN, GEORGÍU Það eru margir kostir við það að heimsækjafjallahéruð í sumarfríinu. Veðurfar ersvalara í mikilli hæð sem kemur sér vel í miklum sumarhitum á suðrænum slóðum. Ef hitinn verður samt of mikill er fátt skemmti- legra en að dýfa sér í kristaltært fjallavatn til að kæla sig eða stunda vatnaíþróttir af ýmsu tagi. Þetta eru líka góðir staðir fyrir heilsusamleg ferðalög en fallegir dalir og fjallalandslag býður uppá fjölbreytta útiveru, hvort sem er gangandi, hjólandi, fljúgandi á svifvæng eða í klettaklifri. Heimild: Guardian Travel, Lonely Planet, Wikipedia. Sumarfrí í hæstu hæðum Tignarleg fjöll heilla skíðafólk í sínum hvíta búningi á veturna en fjallasvæði hafa líka upp á margt að bjóða á sumrin. Hér verða taldir upp sjö skemmtilegir staðir í fjallahéruðum Evrópu. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.