Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Side 16
VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.5. 2018 Nú er hann týndur þarna á snjóbreiðunni alla myndina. Er hann ekki alltaf í sömu fötunum? „Jú, eða nei, þetta eru fjögur stig, eftir því hvar í myndinni hann er staddur,“ útskýrir Margrét en fötin eiga að sjálfsögðu að veðrast í gegnum myndina. Hún segir veðrið hafa verið ansi slæmt á köflum en lét það ekki á sig fá. „Veður er bara veður. Það er yfirleitt meiri haus- verkur að finna út úr því hvernig maður á að láta fjármagnið sem manni er úthlutað duga út myndina.“ Sænsk fantasía stendur upp úr Það styttist í næsta verkefni hjá Margréti; Valhalla í Danmörku, en þar mun hún dvelja og vinna í allt sumar. „Í framhaldi af því fer ég að vinna við sjónvarpsseríu sem verður líklega tekin upp hér og svo er ansi margt á teikniborðinu,“ segir Margrét en þess má geta að hún fékk Edduna fyrir kvikmyndirnar Á annan veg, Vonarstræti og Hrúta eftir Grím Hákonarson. „Ég var einmitt að klára mynd með Grími sem heitir Héraðið en hún verður væntanlega frumsýnd næsta sumar og ég hlakka mikið til þess að sjá hana. Þetta er mikið til sama fólkið og vann að Hrútum, einstaklega samhentur og frábær hópur.“ Hvað stendur upp úr þegar þú horfir yfir ferilinn? „Ég held að það sé sænska myndin Eld och Lågor í leikstjórn Svíanna Måns Mårlind og Björn Stein sem fjallar um tvö tívolí sem eru sitt hvorum megin við sömu götuna. Annað er fyrir ríka og hitt fyrir fátæka. Ríka fólkið á son og fátæka fólkið á dóttur og þau verða ástfangin. Þetta er byggt á sönnum atburðum. Að fá að gera svona stóran heim inn í tímabil sem er á sama tíma fantasía er rosalega gaman. Þetta er stækkuð veröld sem er máluð í mjög sterkum litum. Þarna fékk ég tækifæri til að fara mjög langt í sköpuninni. Aðalleikkonan og aðalleikarinn eru með um tuttugu búninga hvort um sig; þetta var mjög stórt og mikið verkefni,“ segir Margrét. Í lífshættu í spreng Vinnan getur verið krefjandi að sögn Margrétar á ýmsan hátt; stundum eru samskiptin erfið en oftar eru það aðstæðurnar. Spurð um eftirminnileg atvik koma nokkur upp í huga hennar. „Ég gerði eitt sinn heila bíómynd sjóveik úti á sjó. Ég var sjó- veik allan tímann og þegar ég var ég í landi var ég með sjóriðu, sem var lítið betra,“ segir Margrét og hlær, en bíómyndin sem hún vann við þá er Brim. „Ég þakka guði fyrir sjóveikisplástra, þeir björguðu ansi miklu en ég var samt veik. En þrátt fyrir það var þetta ferlega skemmtilegt,“ segir hún og hlær. „Svo var eftirminnilegt þegar ég var að skipta um búninga á fjörutíu víkingum í Lillehammer um miðjan vetur inni í pop-up tjaldi. Það var dálítið krefjandi,“ segir hún og skellihlær. „Við vorum þrjár í þessu. Þeir komu sko ríðandi og þurftu að fara úr búningunum fyrir hina sem áttu að taka þátt í bardaga- senu og þurftu sömu búningana, en málið var að sumir voru góð- ir á hestbaki en aðrir góðir í að slást. Og svo var það þriðji hóp- urinn sem var góður á skíðum. Maður þurfti að vera lausnamiðaður þarna því við höfðum ekki efni á að eiga einn búning á hvern. Þetta var mikill tetris-leikur að láta þetta allt ganga upp. Þeir fengu samt að vera í innsta laginu svo þeir þurftu ekki að vera í svitanum af næsta manni,“ segir hún og hlær. Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í? „Ég þurfti einu sinni að sauma saman klofið á einni stórstjörnu sitjandi úti í móa,“ segir hún og skellihlær. Ekki er hægt að toga upp úr henni hver það hafi verið. Viðkomandi hafi sagt henni að fara varlega með nálina. Í annað sinn hafi hún dvalið í Grænlandsstormi uppi á Lang- jökli og þurft að skríða eftir reipi, ásamt sminkunni Kristínu Júllu, til þess að komast á klósett og lögðu þær stöllur sig í lífs- hættu á leiðinni. „Ég var svo sjúklega hrædd að ég fékk hysteríuhláturskast og bað hana að lofa mér því að ef ég myndi deyja þarna myndi hún ekki segja neinum að ég hefði dáið á leiðinni á klósettið,“ segir hún og hlær. Hún rifjar upp enn eiga sögu sem hún á í fórum sínum. „Ég man eftir því þegar við vorum að undirbúa Njálssögu, þá sátum við nokkrar dögum saman og handsaumuðum víkingaskó. Við skiptumst á að sofa kannski tvo tíma í senn. Þetta fannst okk- ur alveg lífsnauðsynlegt; það væri ekki hægt að fara í þetta verk- efni öðruvísi en að hafa víkinga í handsaumuðum skóm. Svo sáust skórnir aldrei í myndinni! Eða afskaplega lítið og þá hefði hvort sem er aldrei sést hvort þeir væru handsaumaðir eða ekki,“ segir hún og skellihlær og bætir við, nú eldri og vitrari: „Maður lærir af reynslunni.“ Mads Mikkelsen leikur aðal- hlutverkið í myndinni Arctic en Margrét sá um búningana. Myndin var tekin upp á Langjökli og dvaldi Margrét þar vikum saman á settinu með Mads. Tökur standa yfir á Flateyjargátu og dvaldi Margrét nokkrar vikur á settinu í Flatey nýlega. Lollo Urbansdottir Wahlström, umboðsmaður Margrétar, Margrét, Mads Mikkelsen, Lilja Ósk Snorradóttir og Ragna Fossberg voru kát á Cannes- kvikmyndahátíðinni þar sem myndin Arctic var frumsýnd fyrir skömmu. Margrét segir að eitt stærsta og skemmtileg- asta verkefnið hafi verið að hanna búninga fyrir sænsku myndina Eld och Lågor í leikstjórn Sví- anna Måns Mårlind og Björn Stein. Myndin er í fantasíustíl og fjallar um forboðnar ástir milli konu og manns sem búa í tívólíum sitt hvorum megin við götu eina. ’Ég var svosjúklegahrædd að égfékk hysteríu- hláturskast og bað hana að lofa mér því að ef ég myndi deyja þarna myndi hún ekki segja neinum að ég hefði dáið á leiðinni á kló- settið. Sena úr Flateyjargátu, nýrri sjónvarpsseríu í fjórum þáttum sem Björn B. Björnsson vinnur að í samvinnu við Sagafilm.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.