Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Page 22
Þrenn hafnfirsk hjón sáu sér leik á borðiþegar veitingahúsnæði losnaði nýlegaí Hafnarborg í Hafnarfirði og opnuðu veitingastaðinn Krydd. Hafnfirðingar og nærsveitungar hafa tekið vel í þetta krydd í tilveruna því fullt er út úr dyrum alla daga. Strax komnir fastakúnnar Hilmar Þór Harðarson, einn eigenda, er yfir- kokkur og framkvæmdastjóri staðarins. Hann er reyndur á sínu sviði en áður starf- aði hann sem yfirmatreiðslumaður hjá Hótel Borealis í Grímsnesi og þar áður sjö ár í Noregi hjá þekktri hótelkeðju. Hilmar er nú kominn aftur heim því hann er innfæddur Hafnfirðingur og er afar ánægður að geta opnað góðan veitingastað í gamla firðinum sínum. „Við viljum fyrst og fremst gera þetta að notalegum stað með stórum matseðli, en matseðillinn er bæði fjölbreyttur og ódýr. Svo erum við með gott úrval af kokteilum og litla álagningu á víni. Við viljum að fólk komi aftur og aftur,“ segir Hilmar. „Það hefur gengið vonum framar og við erum strax komin með fastakúnna,“ segir Hilmar, en staðurinn hefur aðeins verið op- inn í þrjár vikur. Sérlega ljótur eftirréttur „Matseðillinn er mjög breiður. Hér er hægt að fá eitthvað fyrir alla, börn og fullorðna. Við fáum mikið af fjölskyldufólki því hægt er að fá salöt, steikur og hamborgara, eitthvað fyrir alla,“ segir hann. „Einn rétturinn er kleinuhringur fylltur með grísakjöti, sem er næstvinsælasti rétt- urinn okkar. Hljómar undarlega en er mjög gott,“ segir hann og hlær. „Svo erum við með einn sérlega ljótan eft- irrétt; melónusúpu. Þessi réttur er bæði ljót- ur og hljómar illa en er ofboðslega góður.“ Morgunblaðið/Ásdís Vinsæll grís í kleinuhring Það kennir ýmissa grasa hjá Krydd í Hafnarborg sem er nýr staður í Hafnarfirði fyrir alla fjölskylduna. Þar er meðal annars hægt að fá ljóta en afar gómsæta melónusúpu. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Hilmar Þór Harðarson er eigandi, yfirkokkur og framkvæmdastjóri. Hann er kominn aftur heim í fjörðinn sinn. MATUR Ferskari dressing 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.5. 2018 Fyrir 4 1 kg bleikjuflök smá salt og pipar Kryddið með salti og pip- ar og steikið flökin á pönnu úr olífuolíu og setj- ið svo smjörklípu á pönn- una í restina. JARÐSKOKKAMAUK 200 g jarðskokkar 50 g græn epli 50 ml rjómi safi af sítrónu salt Skrælið jarðskokkana og eplin og skerið í kubba. Setjið þau í pott og sjóðið rólega með rjómanum þar til jarðskokkarnir eru eldaðir í gegn. Setjið allt í blandara og smakkað til með sítrónusafa og salti. ANNAÐ MEÐLÆTI 600 g smælki 300 g gulrætur 300 g sellerírót Allt soðið eða bakað í ofni þar til grænmetið er orðið mjúkt. SÓSA FYRIR BLEIKJU 2 saxaðir skallottlaukar 1 hvítlauksrif, rifið 1 dl hvítvín 400 ml rjómi 50 g smjör ferskt dill Steikið lauk og hvítlauk þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Hellið þá hvítvíni út í og sjóðið niður um helming. Að því loknu er rjómanum bætt við. Sós- an er þá soðin við vægan hita og að lokum er smjöri og dilli bætt við. Þegar rétturinn er bor- inn fram er sósan hituð og grænmetið sett út í sós- una. Bleikja a la KryddStaðurinn var allur tekinn ígegn og er afar smekklegur. Þegar búa á til góða salatdressingu eða rækju- eða túnfisksalat, prófið að nota gríska jógúrt í staðinn fyrir majónes, eða blanda það til helminga. Það er skemmtileg og bragðgóð tilbreyting.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.