Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Side 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Side 26
TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.5. 2018 Forsíðumyndataka Christinu Aguilera fyrir tímaritið Paper hefur vakið mikla athygli. Þar sýnir Aguilera á sér nýja hlið en hún er orðin leið á varalitnum og augnblýantinum og leyfir nú náttúrulegri förðun að ráða ríkjum við góðar undirtektir aðdáenda. Ný hlið á Aguilera Þegar Josh Kennedy hristir hausinndansa litlir svartir dreddar um ennið áhonum. Við sitjum á kaffihúsi í Oakland, Kaliforníu, þar sem hann þráast við að deila innsýn sinni í skókúltúr Bandaríkjamanna. „Ég er ekki rétti maðurinn til að spyrja um strigaskó,“ segir hann. „Ég er hættur í leikn- um.“ Nokkrum mínútum síðar flettir hann upp bolnum sínum og sýnir flennistóran Vans- strigaskó, flúraðan þvert yfir hægri rifbeinin. Hann hlær þegar ég lyfti brúnum. „Ég elska Vans þetta mikið,“ segir hann. „Ég vildi Vans á mér að eilífu.“ Þegar kemur að ungum svörtum Banda- ríkjamönnum er nánast ekki hægt að spyrja „rangan“ aðila um strigaskó. Allavega ekki hvað varðar innfædda í Oakland. Borgin býr yfir ríkri hipphopp- og körfuboltasögu en báðir menning- arkimar hafa verið stökkpallur striga- skótískunnar, sérstaklega fyrir svarta karl- menn sem nota margir hverjir strigaskó til að tjá persónuleika sinn. „Ef þú ert í flottum strigaskóm skiptir engu hverju öðru þú klæðist,“ segir Josh. Hann sýn- ir mér mynd sem vinkona hans tók af honum með ókunnugum manni í San Francisco fyrr í vikunni. Sá er með gulan og bláan pólýester- hatt í skítugum bol og sjúskuðum gallabuxum en í rauðum, brakandi ferskum Nike LeBron 13 strigaskóm. Ef ekki væri fyrir óhirt hvítt skeggið mætti vart á milli sjá hvort maðurinn er hipster eða heimilislaus. Strigaskó-kúltúr er þó engan veginn bund- inn við Bandaríkin ein og sér enda hefur þess- um menningarafkima vaxið fiskur um hrygg víða um heim á síðustu árum. Meira en „bara“ skór Gera má ráð fyrir að alþjóðleg strigaskósala nái 130 milljörðum dala á þessu ári, að mati markaðsrannsóknarfyrirtækisins Statista. Í Bandaríkjunum seldust strigaskór fyrir um 38 milljarða á síðasta ári en efstu skór á lista, Nike Tanjun, eru þó ekki endilega hæst skrif- aðir hjá alvöru strigaskó-spekúlöntum. Tanjun eru þegar öllu er á botninn hvolft fyrst og fremst þægilegir og flottir götuskór. Fyrir al- vöru „sneakerheads“ eru strigaskór hinsvegar svo miklu meira. „Þessi hópur fólks notar fótabúnað sinn til listrænnar tjáningar,“ skrifar Katie Morgan fyrir The Torch. „Strigaskór eru list og þau eru sýningarstjórarnir.“ Það fæðast sumsé ekki allir strigaskór jafnir. Ákveðnar upprunalegar útgáfur, viðhafn- arútgáfur og sérlínur fara þannig á svo háar fjárhæðir í endursölu að sérfræðingar telja markaðinn velta hundruðum þúsunda dala. Hugsanlega er það að einhverju leyti sú stað- reynd, sem rekur fólk í raðir á við þær sem reglulega myndast utan við Hverfisgötu 50. Þar er verslunin Húrra Reykjavík til húsa en hvað strigaskó varðar komast fáar verslanir á Íslandi þangað sem Húrra hefur gúmmísólaða hælana. Í fyrsta skipti sem verslunin bauð upp á skó úr Yeezy-línu Adidas tjölduðu kaupendur á gangstéttinni í hátt í tvo sólarhringa. Það var miður febrúar og snjóbylur. „Ég held að þegar litið er til baka verði þetta stór kafli í íslensku „retail“,“ segir Sindri Snær Jensson, annar eigenda verslunarinnar. „Þetta var næsta stigs klikkun. Skór á svona háu „le- veli“ höfðu ekki fengist hér áður.“ Verslunin reynir reglulega að koma í veg fyrir raðir og setur þess í stað upp happdrætti á netinu þar sem dregið er um hverjir fá að kaupa tiltekin pör. Í nýlegu happdrætti um Nike Air Max 1/97 VF SW bárust 4.000 um- sóknir. Húrra hafði aðeins nokkra tugi para til sölu. „Þetta eru mjög sjaldgæfir skór, þú getur keypt þá á 25 þúsund en selt strax aftur á 100.000,“ segir Sindri. „Það eru ekki margar vörur í heiminum sem hækka svona í verði um leið og þú ert búinn að kaupa þær.“ Karllægur menningarkimi Í fyrnefndum snjóbyl voru það nær eingöngu ungir karlmenn sem sátu og biðu nýju skónna, enda tæknilega séð um karlmannsskó að ræða. Sindri segir konur vissulega áhugasamar um strigaskó en að þær sækist fremur eftir ákveðnum litum og merkjum en sértæku raða- myndandi útgáfunum sem karlpeningurinn slefar yfir. Það rímar vel við lýsingar tísku- ljósmyndarans Bill Cunningham á listrænum skó-tilburðum ungra karlmanna í New York. „Ég get ekki varist því að hugsa að striga- skór ungra manna séu það sem vandaðar hand- töskur voru fyrir konum á þessari öld,“ sagði hann í myndbandi fyrir New York Times. „Það eru sveiflur en þetta er karllægt fyrirbæri.“ Strigaskór sem hönnunarvara eru fyrst og fremst markaðssettir til karla. Þeir eru oftast hannaðir af körlum og jafnvel aðeins fáanlegir í karlastærðum. Sala á kvenstrigaskóm jókst þó um 37 prósent í Bandaríkjunum í fyrra á með- an sala á hælaskóm féll um 11 prósent. Fjölmörg merki hafa í auknum mæli reynt að bregðast við. Nike, sem gerði strigaskó að alþjóðlegum smelli með Air Jordan’s á níunda áratugnum, kynnti þannig nýja kvenlínu ætl- aða „sneakerheads“ á tískuvikunni í París fyrr á árinu. Hönnun söngkonunnar Rihönnu fyrir Puma selst eins og heitar lummur og um síð- Á gúmmísólum um tískuheiminn Enska orðið „sneakers“ er oft sagt eiga uppruna sinn í auglýsinga- herferð snemma á 20. öldinni þar sem strigaskóm var lýst sem svo hljóðlátum að þeir væru tilvaldir til að læðast upp að fólki. Strigaskór urðu raunar vinsælir til íþróttaiðkunar síðla á 19. öld en nú til dags má finna þá jafnt á götum úti sem í konunglegum brúðkaupum. Anna Marsibil Clausen anna_clausen@berkeley.edu Nike Air Max 1/97 VF SW voru hannaðir af skó-spekúlantinum Sean Wotherspoon og framleiddir í takmörkuðu upplagi. Vængjuðu Adidas strigaskórnir hafa komið út í mörgum litum og útgáfum. Litasamsetning upprunalegu Jordan skónna féll ekki að reglugerð NBA deildarinnar. Michael Jordan lék þó í þeim heilt tímabil og Nike borg- aði sektina eftir hvern leik með glöðu geði. Serena Williams klæddist strigaskóm frá Valentino í brúð- kaupi síðustu helgar en hún var í Nike skóm skreyttum Swarovski kristöllum í eigin brúðkaupi. Ökklajárnin á Roundhouse Mid Handcuffs skónum frá Adidas þóttu bera rasíska undirtóna og þeir voru fljótt teknir úr framleiðslu. Kanye West hefur framleitt skó með bæði Nike og Adidas undir nafninu Yeezy en hann hefur einnig unnið með Luis Vuitton. Sindri Snær Jensson í Húrra á ansi veglegt safn af strigaskóm en vill síður gefa upp hvað dýrasta parið kostaði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.