Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Síða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Síða 31
sakað í heilt ár en samt ekkert handfast komið fram sem styður samsæriskenningarnar, svo eitthvert vit sé í. Slegist á hinum vallarhelmingnum Reyndar hefur það ótrúlega gerst seinustu vikur að demókratar sýnast komnir í bullandi vörn í málinu. Helsta gagnið í málinu, Trump-skýrslan mikla, „The Trump Dossier“ sem yfirmenn alríkislögreglunnar FBI og dómsmálaráðuneytis Obama forseta létu lengi vel eins og væri trúverðugt gagn, er að verða þessum stofnunum og demókrötum óþolandi byrði. Þessi svokallaða „skýrsla“ minnir sífellt meir á kjaftasögu sem fjölmiðlar á lægstu tröppu þykjast taka trúanlega og velta sér upp úr vikum saman. En jafnvel slíkir myndu varla láta sig hafa að semja sor- ann sjálfir að verulegu leyti eða kosta hann. Þessi samsuða sem flestir hafa nú hlaupið frá til að sökkva ekki með henni var, svo ótrúlega sem það hljómar, notuð af alríkislögreglunni og dómsmálaráðuneytinu til að fá leynilega dómstóla til að veita heimildir til rannsókna og hlerunar á einstaklingum sem tengd- ust kosningabaráttu Trumps þótt þeir stæðu nærri gólfinu. Því var leynt fyrir dómurunum að „skýrslan“ var pöntuð frá breskum leyniþjónustumanni sem settur hafði verið á „eftirlaun“ grunsamlega ungur að árum. Ekki var það allt því aðkeyptar fjölmiðla- og áróðursveitur demókrata höfðu yfirumsjón með sam- tíningnum og kosningasjóðir Hillary borguðu brús- ann. Ekkert af þessu voru dómstólar upplýstir um! Og nú síðast hefur komið fram að CIA og FBI hafi haft njósnara einn eða fleiri á sínum snærum, í tengslum við kosningasveit Trumps. Þeir leyni- lögregluforingjar Clapper og Comey segja nú að þetta hafi verið gert til að verja Trump og hans menn gegn hugsanlegum aðgerðum Rússa! Spurðir hvers vegna þeir hafi þá ekki upplýst kosningastjórn Trumps eða frambjóðandann sjálfan um hættuna og sagt honum af „verndarenglunum“ hafa þeir tekið sér frest til að svara. Ósköp sem erfitt er að trúa Margir telja óhugsandi að í þetta hafi verið farið án vitn- eskju Obama forseta og samþykkis hans eða að minnsta kosti frá Eric Holder dómsmálaráðherra hans. trúnaðarpóstum tveggja háttsettra starfsmanna alrík- islögreglunnar sín á milli kemur fram að Obama hafi fylgst náið með málinu og hafi viljað fá um það allar upp- lýsingar. Reynt var að koma í veg fyrir að þeir sem rann- saka málið kæmust yfir þessa pósta og yfirstjórn FBI fullyrti að þeir hefðu allir eyðilagst vegna galla í tækni- búnaði. Það var því mikið áfall fyrir samsærismenn þeg- ar óháður eftirlitsmaður dómsmálaráðuneytisins, ásamt 500 starfsmönnum sínum, náði að grafa upp tugþúsundir pósta sem áttu ekki að vera horfnir, rétt eins og 30 þús- und tölvupóstar Hillary. Demókratar viðurkenna að kjósendur þeirra séu mjög órólegir og krefjist þess nú að fundið verði eitthvert ann- að umræðuefni og málefnalegra en þetta furðuverk um samsæri þeirra Pútíns og Trumps. En flokkurinn hafði lagt svo mikið undir að það er ekki auðgert þegar svo skammt er til kosninga. Geithafur hjá kiðlingi Verði niðurstaðan sú að sannað þyki að stjórnarflokkur í Bandaríkjunum hafi notað hinar voldugu stofnanir alrík- isins til að njósna um andstæðinga sína í aðdraganda kosninga, þá geta frægir bandarískir fjölmiðlar ekki haldið áfram að haga sér eins og þeir hafa leyft sér vegna fyrirlitningar og haturs á Trump. Því ef svo fer er það einfaldlega rétt að ekkert mál sem nálgast það að stærð né alvöru hefur áður komið upp í Bandaríkjunum. Ekki þarf að fara í grafgötur með hvílíkt álitsfall það yrði. Það voru menn með tengsl við Repúblikanaflokk- inn sem stóðu fyrir hinu fræga og skrítna innbroti í skrif- stofur Demókrataflokksins. Þeir gátu aldrei upplýst um í hvað þeir væru að hnýsast. Engar opinberar stofnanir voru notaðar til þessa furðuverknaðar og ekki var verið að gera tilraun til að ljúga landráðasögum upp á póli- tíska andstæðinga með atbeina þeirra stofnana sem Bandaríkjamenn virða hvað mest. Nixon forseti kom hvergi nærri þessu innbroti enda var slíku ekki haldið fram. En ekki löngu eftir að málið komst í fjölmiðla var forsetinn upplýstur um þátt þessara manna og hvaða tengsl þeir hefðu við flokk forsetans. Hans sök var sú að hafa ekki brugðist rétt við og krafist þess að öll spil væru lögð upp á borðið og þeir sem bæru ábyrgð sóttir til saka. Þvert á móti reyndi hann að gera sitt til þess að málið yrði ekki upplýst. Fyrir það var hann hrakinn úr embætti enda ekki sætt. Nixon viðurkenndi loks í frægu viðtali við David Frost að hann hefði brugðist þjóð sinni og embættinu sem hann gegndi. Því miður virðast lekar og lygar háttsettustu yfir- manna þriggja helstu leynistofnana landsins, jafnvel eið- svarnir, benda ótvírætt til þess að menn séu að rannsaka rangt samsæri vestra. Annars vegar meint samsæri í að- draganda kosninga, sem eftir rannsókn í heilt ár situr enn á byrjunarpunkti með ekkert sem heldur vatni, og hins vegar hugsanlega misbeitingu valds, ógnarvalds á æðstu stigum þess af forráðamönnum eins framboðs gegn öðru! Í því hrúgast upp sönnunargögn bæði fram- burður og skjöl sem reynt var að fela, en virðast óneit- anlega styðja, langt umfram eðlilegan vafa, grunsemdir um undirmál og stórbrotna misbeitingu valds. Þeir, sem þykir vænt um Bandaríkin, hljóta að vona að þegar rannsókn hefst á því máli fyrir alvöru, sem varla verður lengur komist hjá, verði niðurstaðan samt sem áður sú að þetta sé ekki eins hroðalega slæmt og það lítur í augnablikinu út fyrir að vera. En það er þó ekki líklegt. Því miður. Morgunblaðið/RAX 27.5. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.