Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.05.2018, Blaðsíða 36
Vinsælir sjónvarpsþættir fráþví fyrir eða um aldamóthafa gengið í endurnýjun líf-
daga undanfarið eins og Gilmore
Girls og Will og Grace en nú síðast
er komið að Roseanne; sem segir frá
lífi lágstéttarfjölskyldu og þeim
áskorunum sem hún mætir.
Aðalsöguhetjurnar eru hjónin
Roseanne og Dan Conner, þrjú börn
þeirra, Becky, Darlene og D.J.
Einnig kemur við sögu Jackie, systir
Roseanne.
Mesta áhorf lengi á
gamanþátt
Þættirnir nutu mikilla vinsælda á
sínum tíma en þeir hófu göngu sína
árið 1988 og voru framleiddir sam-
fleytt til ársins 1997. Nú hefur ABC-
sjónvarpsstöðin framleitt nýja
þáttaröð af Roseanne og það virðist
aldeilis hafa heppnast hjá stöðinni að
lokka gamla og nýja aðdáendur að
skjánum. Dagsáhorf á fyrsta þáttinn
var 18,45 milljónir manns en samtals
27,26 milljónir ef allt áhorf á hinum
mismunandi stöðum er talið saman.
Þetta er mesta áhorf sem bandarísk-
ur gamanþáttur hefur fengið í yfir
fjögur ár en áhorfið hefur reyndar
dalað frá upphafsþættinum. Sumir
áhorfendur sem kunnu að meta upp-
reisnargirnirna í Roseanne áður fyrr
finnst þeir sviknir yfir því að hún sé
nú orðin stuðningsmaður Trump
Bandaríkjaforseta.
Rödd Trump-kjósandans
„Mér fannst að rödd Trump-
kjósandans þyrfti að heyrast og
fannst að það ætti að vera ég,“ sagði
Barr í nýju viðtali við Vanity Fair
þar sem hún bendir á að sumt af
gríni í nýju þáttunum skapist vegna
spennu á milli hennar sjálfrar og
frjálslyndari handritshöfunda þátt-
anna.
„Ég segi: Ég á byssu. Ég elska að
skjóta af byssunum mínum,“ segir
hún og bætir við að hún komi stund-
um með svona athugasemdir til að
sjá viðbrögð annarra.
Staðreyndin er sú að það er mikil
spenna á milli fylgjenda Trump og
hinna í Bandaríkjunum og það er
eitthvað sem þættirnir endurspegla.
Jackie, systir hennar í þáttunum,
er til að mynda gallharður stuðn-
ingsmaður Hillary Clinton.
Það er samt ljóst að hin 65 ára
gamla Barr hefur breyst á síðustu
árum. Það eru aðeins sex ár liðin frá
því að hún vildi verða forsetaefni
Græningja í Bandaríkjunum og
mætti á Occupy Wall Street-
mótmæli. Núna styður hún Trump
og notar Twitter til þess en hún er
með 636.000 fylgjendur þar sem hún
deilir m.a. samsæriskenningum af
hægri vængnum.
Frá vinstri til hægri
Samskonar umskipti hafa orðið í
lífi Barr rétt eins og hjá hinni til-
búnu Conner-fjölskyldu og svo fjöl-
mörgum öðrum fjölskyldum
vestra. „Ef þú hefðir sagt mér fyrir
tuttugu árum að Roseanne Conner
ætti eftir að kjósa repúblikana […]
þá hefði ég sagt að það væri ekki
möguleiki,“ segir einn höfundur
þáttanna, Whitney Cummings.
Annar höfundur, Bruce Helford,
Sófinn er sá sami en með-
limir Conner-fjölskyld-
unnar eru orðnir eldri og
fleiri hafa bæst við.
AFP
Ný mynd af
Roseanne Barr
sem nú er
65 ára gömul.
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.5. 2018
LESBÓK
FÓLK Bandaríski leikarinn Morgan Freeman hefur
beðist afsökunar í kjölfar ásakana frá átta konum um
óviðeigandi kynferðislega hegðun. Ein konan sagði að
Freeman hefði áreitt hana mánuðum saman á tökustað
kvikmyndarinnar Going in Style. Hún sagði að Freem-
an, sem er áttræður, hefði margoft snert hana, reynt að
lyfta upp pilsi hennar og spurt hvort hún væri í nær-
fötum. Morgan er líka sagður hafa starað á brjóstin á
konum og beðið þær að snúa sér í hring fyrir sig.
Freeman hefur beðið alla sem hann hafi valdið óþæg-
indum eða sýnt vanvirðingu afsökunar.
„Þeir sem þekkja mig eða hafa unnið með mér vita að
ég er ekki maður sem myndi viljandi móðga fólk eða
láta því líða illa,“ segir í yfirlýsingu frá Freeman.
Freeman biðst afsökunar
Morgan
Freeman.
AFP
SJÓNVARP Leikkonan Eleanor Tomlinson sagði í við-
tali við Red Magazine að hún yrði „frekar miður sín“
ef það kæmi í ljós að hún væri á lægri launum en Aid-
an Turner sem leikur Ross Poldark. Tomlinson, sem
leikur Demelzu, eiginkonu Poldark, giskar þó á að
hún fái ekki jöfn laun á við Turner. Hún segir að það
hafi kannski verið í lagi í byrjun þegar hann var stærri
stjarna en hún en það sé ekki lengur raunin. „Við er-
um bæði í aðalhlutverki svo ég yrði frekar miður mín
ef það væri ekki búið að loka þessum launamun.“
Talsmaður framleiðandans Mammoth Screen stað-
festir hinsvegar að Turner sé hæst launaði leikari
þáttanna. Talsmaður Tomlinson segir að hún ætli ekki
að tjá sig frekar um málið.
Tomlinson fær minna borgað
Eleanor Tomlinson leikur Demelzu,
eiginkonu Ross Poldark.
Alison Bell sem Audrey í The Letdown.
Ástralskt
mömmugrín
SJÓNVARP The Letdown eru ástr-
alskir gamanþættir sem nýlega eru
komnir inn á Netflix. Vel er hægt
að mæla með þáttunum. Höfundar
þáttanna eru Alison Bell, sem leik-
ur jafnframt aðalhlutverkið, og Sa-
rah Scheller.
Þættirnir taka á gamanasaman
hátt á mörgu því sem nýbakaðir
foreldrar þurfa að kljást við, eins
og svefnleysi, breyttu sambandi
foreldranna, vinasamböndum og
sjálfsmynd.
TÓNLIST Kanye
West borgaði níu
milljónir króna
fyrir að fá að nota
mynd af baðher-
bergi Whitney
Houston á plötu-
umslag nýrrar
plötu Pusha T.
Myndin var tekin
þegar Houston átti í mikilli baráttu
við fíkn sína árið 2006 og sýnir
eiturlyf og tæki til notkunar út um
allt á baðherberginu.
Níu milljónir
fyrir mynd
Kanye West.
FÓLK Breska leikkonan Emilia
Clarke, sem þekkt er fyrir leik sinn
í Game of Thrones, hefur gaman af
því að persóna hennar úr þáttunum
hafi fengið svo margar nöfnur. Á
síðasta ári fengu 69 börn nafnið
Khaleesi í Englandi og Wales, sem
eru fleiri en fengu nafnið Helen.
„Þetta er klikkað. Hvað á að kalla
barnið? Spáðu í það. Það er ekki
auðvelt að segja þetta nafn,“ sagði
hún í viðtali við BBC.
Margar nöfnur
Emilia Clarke.
Roseanne Barr er mætt aftur í sjónvarpið sem hin meinfyndna Roseanne Conner, sem
nú er orðin stuðningskona Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rétt eins og leikkonan.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Bandaríki Roseanne