Peningamál - 01.11.2004, Blaðsíða 33
aðarþrýsting. Af hækkun vísitölu neysluverðs skýrast
0,6 prósent af verðhækkun bensíns, en breytingar á
bensínverði á heimsmarkaði koma skjótt fram í
bensínverði hér á landi. Þá hefur verð opinberrar
þjónustu einnig hækkað meira en vísitalan í heild.
Rúmlega tveir þriðju hlutar verðbólgunnar undan-
farna tólf mánuði skýrast af verðhækkun húsnæðis,
bensíns og opinberrar þjónustu.
Að ofangreindum liðum frátöldum hafa verðlags-
hækkanir verið hóflegar. Verðlag þjónustu á al-
mennum markaði hafði í byrjun nóvember hækkað
um 2,3% á tólf mánuðum, verðlag innfluttrar vöru án
áfengis og tóbaks um 2,5% og innlendrar vöru án
búvöru og grænmetis um 1,6%.
Verðlag opinberrar þjónustu hefur hækkað tvöfalt
meira en verðlag annarrar þjónustu
Verðlag opinberrar þjónustu hefur hækkað um
rúmlega 5% undanfarna tólf mánuði, eða tvöfalt
meira en verðlag annarrar þjónustu. Hlutur almenn-
ings í greiðslum fyrir opinbera þjónustu virðist fara
vaxandi, en hafa verður í huga að verðlag þjónustu
hins opinbera hækkaði hægar en verðlag þjónustu
einkaaðila á árunun 1999-2002. Ef lægri tekjum
ríkissjóðs vegna skattalækkana verður að einhverju
leyti mætt með aukinni þátttöku almennings í
greiðslum fyrir opinbera þjónustu má búast við að
verðlag opinberrar þjónustu haldi áfram að hækka
hraðar en almennt verðlag.
Húsnæðisverðbólga tekur við sér á ný
Lítið lát hefur orðið á hækkun markaðsverðs íbúðar-
húsnæðis frá aprílmánuði. Yfir sumarmánuðina
hægði reyndar örlítið á hækkun íbúðaverðs, en þegar
áhrifa aukinnar samkeppni á íbúðalánamarkaði og
lækkunar vaxta á fasteignaveðlánum tók að gæta í
haustbyrjun hækkaði verð íbúðarhúsnæðis hröðum
skrefum (sjá nánar í rammagrein 1). Í nóvember hafði
húsnæðisliður vísitölu neysluverðs hækkað um 8,8%
á tólf mánuðum, sem leiddi til 1,6% hækkunar
vísitölu neysluverðs.
Hækkun íbúðaverðs undanfarna tólf mánuði hefur
verið hröðust á höfuðborgarsvæðinu, en hefur verið
umtalsverð á landsbyggðinni einnig. Á landinu öllu
hækkaði markaðsverð íbúða að meðaltali um 12%, en
tæplega 8% á landsbyggðinni. Hraðast hefur verðlag
einbýlishúsa og stærri eigna á höfuðborgarsvæðinu
hækkað, eða um rúmlega 20% undanfarna tólf
mánuði, samanborið við 12% verðhækkun íbúða í
fjölbýli á sama tíma. Undanfarna fjóra mánuði hefur
hækkun á verði stærri eigna verið sérlega hröð, eða
að jafnaði 2-3,5% á mánuði.
Hækkun eldsneytisverðs skýrir hækkun innflutnings-
verðlags að töluverðu leyti en styrking krónunnar
hefur enn ekki komið fram í verðlagi sumra flokka
innfluttrar vöru
Verðlag innfluttrar vöru hækkaði sem fyrr segir um
2,5% á tólf mánuðum til nóvembermánaðar. Að
frátöldum áhrifum hærra bensínverðs, sem hækkaði
um 16,6%, hækkaði verðlag innfluttrar vöru um
0,4%. Þótt verðbólguþrýstingur af völdum ört vax-
andi innlendrar eftirspurnar hafi til þessa einkum
birst í hækkun íbúðaverðs virðist vöruverð til neyt-
enda vera ívið hærra en breytingar á gengi og erlendu
Verðlag þjónustu
janúar 1999 - nóvember 2004
Mynd 39
Heimild: Hagstofa Íslands.
1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004
0
2
4
6
8
10
12
12 mánaða breyting vísitölu (%)
Opinber
þjónusta
Þjónusta á
almennum markaði
Markaðsverð íbúðarhúsnæðis
mars 2001 - nóvember 2004
Mynd 40
Heimild: Hagstofa Íslands.
M M J S N J M M J S N J M M J S N J M M J S N
2001 2002 2003 2004
0
5
10
15
20
25
-5
12 mánaða breyting vísitölu (%)
Landsbyggðin
Höfuð-
borgarsvæði:
einbýli
Höfuðborgarsvæði:
fjölbýli
Landið allt
32 PENINGAMÁL 2004/4