Peningamál - 01.11.2004, Page 78

Peningamál - 01.11.2004, Page 78
PENINGAMÁL 2004/4 77 Peningastefnan og stjórntæki hennar Markmið peningastefnunnar Markmið stefnunnar í peningamálum er stöðugt verðlag. Hinn 27. mars 2001 var tekið upp formlegt verðbólgumarkmið sem hér segir: • Seðlabankinn stefnir að því að árleg verðbólga, reiknuð sem árleg hækkun vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum, verði að jafnaði sem næst 2½%. • Víki verðbólga meira en ±1½% frá settu marki ber bankanum að gera ríkisstjórninni grein fyrir ástæðu fráviksins, hvernig bankinn hyggst bregð- ast við og hvenær hann telur að verðbólgumark- miðinu verði náð að nýju. Greinargerðina skal birta opinberlega. • Ársfjórðungslega birtir Seðlabankinn verðbólgu- spá tvö ár fram í tímann og gerir grein fyrir henni í Peningamálum. Með peningastefnunni er miðað að því að halda verð- lagi stöðugu og því verður henni ekki beitt til þess að ná öðrum efnahagslegum markmiðum, svo sem jöfnuði í viðskiptum við útlönd eða mikilli atvinnu, nema að því marki sem slíkt samrýmist verðbólgu- markmiði bankans. Helstu stjórntæki peningastefnunnar Seðlabankinn framfylgir peningastefnunni einkum með því að stýra vöxtum á peningamarkaði, fyrst og fremst með ákvörðun ávöxtunar í endurhverfum viðskiptum sínum við lánastofnanir. Ávöxtun á peningamarkaði hefur sterk áhrif á gjaldeyrisstrauma og þar með á gengi krónunnar og til lengdar innlenda eftirspurn. Viðskiptum við lánastofnanir má í grófum dráttum skipta í föst viðskiptaform annars vegar og markaðsaðgerðir hins vegar. Föst viðskiptaform: • Viðskiptareikningar geyma óráðstafað fé lána- stofnana. Þeir eru uppgjörsreikningar vegna greiðslujöfnunar milli innlánsstofnana og milli- bankaviðskipta, þar á meðal viðskipta við Seðla- bankann. Vextir þessara reikninga mynda gólf fyrir daglánavexti á millibankamarkaði. • Daglán eru veitt að ósk lánastofnana og tryggð með sömu verðbréfum og hæf eru í endurhverfum viðskiptum (sjá síðar). Vextir daglána mynda þak yfir daglánavexti á millibankamarkaði. • Innstæðubréf eru veitt til 90 daga, að ósk lána- stofnana. Þau eru ekki skráð en þó hæf í endur- hverfum viðskiptum. Hlutverk þeirra er að setja gólf undir ávöxtun þriggja mánaða vaxta á peningamarkaði. • Bindiskylda er lögð á lánastofnanir sem ekki eru háðar fjárlögum í rekstri sínum. Hún miðast við bindigrunn sem er innstæður, útgefin skuldabréf og peningamarkaðsbréf. Bindihlutfall er 2% fyrir þann hluta bindigrunns sem bundinn er til tveggja ára eða skemur. Binditímabil telst frá 21. degi hvers mánaðar til 20. dags næsta mánaðar og skal innstæða á bindireikningi ná tilskildu hlutfalli af meðaltali tveggja síðustu binditímabila. Markaðsaðgerðir: • Endurhverf viðskipti eru helsta stjórntæki Seðla- bankans. Vikulega eru haldin uppboð á 7 daga samningum. Lánastofnanir þurfa að leggja fram hæf verðbréf, þ.e.a.s. ríkistryggð bréf með virkri viðskiptavakt í Kauphöll Íslands. Uppboðin geta verið ýmist fastverðsuppboð eða uppboð þar sem heildarfjárhæð framboðinna samninga er tilkynnt. Fastverðsuppboð hafa verið reglan til þessa. • Innstæðubréf til 7 daga eru boðin upp vikulega. Hlutverk þeirra er að mynda mótvægi við tíma- bundna lausafjárgnótt. Uppboðsaðferð er svo- kölluð „hollensk aðferð“ (sbr. reglur um viðskipti við bindiskyldar lánastofnanir). • Viðskipti á verðbréfamarkaði takmarkast við ríkistryggð verðbréf. • Inngripum á gjaldeyrismarkaði er einungis beitt telji Seðlabankinn það nauðsynlegt til þess að stuðla að verðbólgumarkmiði sínu eða ef hann telur að gengissveiflur geti ógnað stöðugleika fjár- málakerfisins. Yfirlit vaxta Seðlabankans 30. nóvember 2004 Breyting Vextir Vextir Síðast (pró- fyrir Viðskiptaform nú (%) breytt sentur) ári (%) Viðskiptareikningar .......... Daglán .............................. Innstæðubréf (til 90 daga)... Bindiskylda....................... Endurhverf viðskipti......... 5,00 1. nóv. ’04 0,75 2,8 9,25 1. nóv. ’04 0,50 7,7 6,75 1. nóv. ’04 0,50 4,8 6,00 1. nóv. ’04 0,50 4,1 7,25 2. nóv. ’04 0,50 5,3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.