Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Í ár er sjómannadagurinn til- einkaður 100 ára fullveld- isafmæli Íslands, enda órjúf- anlegur hluti af sögu lands og þjóðar,“ segir Dagmar um við- burðinn í ár. „Hátíðarsvæðið nær frá Hörpu, um gömlu höfnina, út á Grandagarð og að HB Granda. Einnig verður útisvið á Granda- garði með skipulögðum viðburðum, bæði laugardag og sunnudag.“ Þó margt sé með svipuðu sniði milli ára þá er af nógu að taka hvað nýja viðburði varðar á Hátíð hafs- ins í ár, eins og Dagmar rekur. Hundrað furðufiskar á færibandinu færast nær! „Í tilefni af 100 ára fullveldis- afmælinu ætlum við í samvinnu við yngri gesti hátíðarinnar að búa til listaverk sem við nefnum 100 furðufiskar á færibandinu,“ út- skýrir hún. „Stefnan er tekin á að það verði hannaðir 100 furðufiskar, einn fyrir hvert lýðveldisár og úr þeim hannaður glæsilegur skúlptúr. Þetta verk vísar ekki síður í það sem hátíðin er einna þekktust fyrir, en það er furðufiskasýningin. Vegg- urinn með listaverkinu verður á bryggjusprellinu á Bótarbryggju.“ Þá verður sannkallaður stelpu- slagur þegar sex stólpakvenmenn etja kappi á plankanum við Vest- urbugt á sjómannadeginum 3. júní 2017, kl. 15:10. „Þá fæst úr því skorið hver er vöskust og hver er fræknust þegar þær láta kodda- höggin dynja hver á annarri þar til önnur skellur á sænum við sára skömm,“ segir Dagmar og kímir við. Konurnar sem þar etja kappi eru heldur engir aukvisar en þeirra á meðal eru Saga Garðarsdóttir, leikkona og uppistandari, Þórunn Antonía Magnúsdóttir söngkona og Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leik- kona og Reykjavíkurdóttir. „Því má bæta við að kynnir verður enginn annar en garpurinn Halldór Hall- dórsson, eða Dóri DNA,“ bætir Dagmar við. Klukkan 14.00 á laugardag verð- ur svo opnað nýtt smáforrit um sögu Reykjavíkurhafnar sem hlotið hefur nafnið Minjaslóð. Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mun opna það formlega. Í tilefni alþjóðlega hjólreiðadags- ins verður Dr. BÆK við há- fjallagám slysavarnafélagsins Landsbjargar á Bótarbryggju og leiðbeinir um helstu vorverk hjól- reiðamannsins laugardag og sunnu- dag kl. 13.00 – 16.00. Heilsum gesti á þriggja ára fresti Þriðja hvert ár kemur færeyski kútterinn Westward Ho til Íslands til að taka þátt í hátíðarhöldunum og í ár er komið að heimsókn. „Það gleður okkur alltaf mikið að fá hann hingað til lands enda setur hann óneitanlega alltaf jafn fal- legan svip á hátíðarsvæðið,“ bendir Dagmar á. „Allir gestir hátíð- arinnar eru velkomnir um borð til að skoða skipið á laugardeginum. Í tilefni af komu skipsins mun Marin Frýdal, sem er „býráðslimur“ í Færeyjum, verða einn af ræðu- mönnum sjómannadagsins í heiðr- un sjómanna á sunnudeginum kl. 14.00. Af öðrum föstum og sívinsæl- um liðum má nefna okkar æv- intýralega sjávartívóli á Bót- arbryggju sem hefur alveg slegið í gegn hjá yngri sem eldri kynslóð- inni. Hafrannsóknastofnun Íslands sýnir helstu nytjafiska við Ísland auk fjölmargra fisktegunda sem finnast í úthafinu og koma sjaldan fyrir sjónir almennings á Granda- garði á furðufiskasýningunni og þá fá gestir hátíðarinnar að bragða á lostæti úr hafinu í boði Faxaflóa- hafna og Sjómannadagsráðs í tjöld- unum á Grandagarði. Á borðstólum verða þrjár tegundir af síld ásamt einstöku makrílpate, súrum hval og þorskalifrapate. Skrúðganga með- fram höfninni fer fram á sjó- mannadaginn kl. 13.00 frá Hörpu. Skoppa og Skrítla hefja þar leika með því að taka á móti gestum fyrir framan Hörpu kl. 12.30 ásamt Skólahljómsveit Austurbæjar. Það verður því nóg um að vera og við kappkostum eins og vanalega að allir finni sér eitthvað við hæfi, ungir sem aldnir. Hátið hafsins er ætluð allri fjölskyldunni.“ Minnumst þess hvaðan við komum á sjómannadaginn Dagmar er fljót til svars þegar hún er innt eftir því hvers vegna það er að hennar mati mikilvægt að halda sjómannadaginn hátíðlegan. „Sjó- mannadagurinn minnir okkur á það að við værum ekki sú þjóð sem við erum í dag ef við hefðum ekki get- að sótt okkur fisk í sjó og er órjúf- anlegur hluti af sögu lands og þjóð- ar,“ segir Dagmar. „Því er svo mikilvægt að halda þennan dag há- tíðlegan og minnast þess hvaðan við komum, heiðra aldraða sjó- menn og minnast þeirra sem fór- ust. Þetta voru miklar hetjur sem oft á tíðum lögðu sig í mikla hættu. En líka að minnast ekki síður þeirra sem heima voru. Eig- inkonur, börn og fjölskyldur þeirra sem héldu hjólunum gangandi meðan mennirnir voru kannski vik- ur og mánuði úti á sjó. Þetta eru forfeður okkar sem lögðu drög að því að gera Ísland að því sem það er í dag og eru enn að þó aðstæður séu sannarlega öðruvísi í dag. Því er svo mikilvægt að viðhalda sjó- mannadeginum, fræða og upplýsa og minnast þess hvaðan við kom- um.“ Dagmar minnir á að í ár er 100 ára fullveldisafmæli Íslands – „þökk sé þeim sem færðu okkur björg í bú og lögðu drög að upp- byggingu lands og þjóðar, þ.e. sjó- mennirnir og fjölskyldur þeirra.“ Þá má að sögn Dagmarar heldur ekki gleyma því að án byggingar hafnarinnar hefðu aðstæður verið allt aðrar. „Þess vegna er Hátíð hafsins gleðilegur viðburður og samanstendur af hafnardeginum, sem er laugardagurinn og sjó- mannadeginum sem er sunnudag- urinn en þessir tveir þættir eru órjúfanlegir fyrir uppgang og vel- sæld sjómennsku í Reykjavík.“ Það sem Dagmar ætlar að sjá Að eigin sögn fer helgin aðallega í umsjón og utanumhald hjá Dag- mar en þó ætlar hún að gera sitt besta til að upplifa eitt og annað um helgina. „Ég verð á fleygiferð um allt svæðið en vil helst ekki missa af björgun úr sjó sem Landhelgis- gæslan sér um. Mér finnst alltaf svo magnað að horfa á þyrluna yfir haffletinum, og koddaslagnum sem verður á Bótarbryggju kl. rúmlega 3 vil ég ekki missa af en í ár munu stelpur slást! Svo ætla KK og fé- lagar að spila á stóra sviðinu og bryggjusprellið verður á sínum stað þar sem hægt er að smíða eig- in bát og búa til furðufisk. Og það sem allir hafa í minningunni um hátíðina er það sem við köllum furðufiskasýningu þar sem eru til sýnis allir helstu sjófiskar við Ís- landsstrendur. Svo fæ ég mér örugglega vöfflukaffi hjá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg í skipinu Sæbjörgu sem mun liggja við Bót- arbryggju. Heiðrun sjómanna sem verður á stóra sviðinu kl. 14:00 er mjög hátíðleg stund sem ég fylgist alltaf með. Annars er eitthvað fyrir alla á hátíðinni og ég mæli með að fólk fari inn á síðuna okkar www.hatidhafsins.is og kynni sér dagskrána,“ segir Dagmar Har- aldsdóttir að lokum. Fagrafley Færeyski kútterinn Westward Ho kemur á Hátíð hafsins. Átök Þó allt sé í gamni gert er ekkert gefið eftir í koddaslagnum.Þyrla Tilkomumikið flug Landhelgisgæslunnar yfir höfninni. Morgunblaðið/Styrmir Kári Kempur Það er til siðs að heiðra hetjur hafsins á sjómannadeginum og á því verður engin breyting í ár. Þeir sem lengi hafa verið til sjós fá heiðursmerki sjómannadagsins, enda má það ekki minna vera eftir áratuga ósérhlífna sókn í greipar Ægis. Morgunblaðið/Golli Spennandi Það er ávallt forvitnilegt, ekki síst fyrir ungviðið, að skoða furðu- fiskana sem veiðast á miðunum í kringum Ísland og taka jafnvel á þeim. Dagmar Haraldsdóttir Viðamikil Hátíð hafsins Hátíðahöld við Reykjavíkurhöfn um sjómannadags- helgina eru sem fyrr kölluð „Hátíð hafsins“ og er það tveggja daga hátíð sem samanstendur af tveimur hátíðardögum, hafnardeginum sem haldinn er á laugardeginum og sjómannadeginum sem haldinn er á sunnudeginum, eins og Dagmar Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Hátíðar hafsins, segir frá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.