Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is H já HB Granda hefur skap- ast sú skemmtilega hefð að efna til veglegrar fjöl- skylduhátíðar úti á Granda á sjómannadag- inn. Hátíðin hefur öðlast ákveðinn sess í bæjarlífinu og segir Kristín Helga Waage að árlega leggi að jafnaði 10-12.000 manns leið sína til félagsins vegna dagskrárinnar. Kristín Helga er aðstoðarmaður forstjóra hjá HB Granda og einn af skipuleggjendum viðburðarins. „Há- tíðin hóf göngu sína í þessari mynd árið 2013 og hefur verið með svipuðu sniði síðustu árin,“ segir Kristín Helga en fjölskylduhátíðin breiðir úr sér um athafnasvæði HB Granda. Viðburðurinn er haldinn samhliða Hátíð hafsins, sem Faxaflóahafnir og Sjómannadagsráð standa fyrir, og margir sem ýmist byrja eða enda heimsókn í miðborgina á sjó- mannadaginn hjá HB Granda. Skemmtikraftar á hálftíma fresti „Svæðið verður opnað kl. 13 og hefj- ast skemmtiatriðin kl. 14 þegar leik- hópurinn Lotta stígur á svið. Þau munu bæði skemmta á sviði og vera á vappi um svæðið og sitja fyrir á myndum með krökkunum,“ segir Kristín Helga en á eftir leikhópnum taka við ný skemmtiatriði á hálftíma fresti. „Sjómannadagsfiskarnir heimsækja okkur í fyrsta skipti kl. 14.30. Ætla þeir að skemmta börn- unum, syngja með þeim og fræða þau um fiskana í sjónum.“ Rapparinn Góði úlfurinn, sem slegið hefur í gegn hjá unga fólkinu, mætir á svæðið kl. 15 og tekur nokk- ur lög. „Svo koma JóiPé og Króli og syngja allt þar til dagskránni lýkur kl. 16,“ segir Kristín Helga en leik- aratvíeykið Jóel og Tryggvi mun kynna viðburðinn. Auk skemmtiatriðanna verður margt um að vera fyrir börnin og geta þau leikið í leiktækjum eins og þau lystir. „Að vanda bjóðum við líka upp á veitingar, s.s. heita fiskisúpu, kökur, kleinuhringi og grillaðar pylsur og geta allir fengið sér,“ segir Kristín Helga. „Það myndast alltaf mjög hátíðleg stemning og gaman að sjá hvað krakkarnir eru kátir.“ Til viðbótar við leiktækin, skemmtiatriðin og veitingarnar fá gestir líka að líta um borð í nýjustu skipin í flota HB Granda. „Tvö ný skip verða opin og gefst fólki kostur á að skoða sig um bæði í borðsal þeirra og brú.“ Lifandi bæjarhluti Margt er um manninn í kringum Reykjavíkurhöfn á sjómannadag og segir Kristín Helga að svæðið muni iða af lífi. „Hér er margt að sjá, og mikil hátíðahöld. Úti á Granda hafa líka sprottið upp verslanir og veit- ingastaðir sem gaman er að sækja heim, og vert að vekja sérstaka at- hygli á Marshallhúsinu þar sem finna má bæði frábæran veitinga- stað og listarými sem verða opin á sunnudag.“ Kristín Helga brýnir fyrir gestum að leggja bifreiðum fyrir utan hafn- arsvæðið eða taka strætó niður í bæ. „Umferðin í hjarta miðborgarinnar getur orðið þung á sjómannadaginn og ekki alltaf að því hlaupið að finna laust bílastæði næst hátíðahöld- unum,“ segir hún. „Biðjum við gesti líka um að hjálpa okkur að ganga vel um svæðið, en í samræmi við áherslur HB Grandi í umhverf- ismálum munum við flokka allt sorp sem fellur til vegna hátíðarinnar.“ Húllumhæ hjá HB Granda Gestir geta fengið að smakka dýrindis fiski- súpu, skemmt sér í hoppuköstulum og horft á spræka skemmtikrafta á fjölskylduhátíð á besta stað úti á Granda. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vinsældir Kristín Helga segir von á meira en 10.000 manns á hátíðina. Veisla Góðar minningar verða til á bryggjukantinum. Fjöldi Ráðlegt er að leggja fjarri höfninni vegna þungrar umferðar. Forvitni Fiskarnir vekja yfirleitt mikla forvitni ungviðisins.Þekking Börnin geta fengið að skoða fiskana í návígi. Úrval Á hálftíma fresti verður eitthvað nýtt í gangi á sviðinu. Stuð Tónlistin mun óma og ilmur af fiskisúpu í loftinu. Ljósmynd / HB Grandi Heimsókn Gestir geta fengið að svipa sig um í nýju skipum félagsins. Blíða Hafnarsvæðið verður líflegt á sjómannadaginn og margt að sjá. Leggir Skemmtikraftar eru á ferð um svæðið og bregða á leik með börnunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.