Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 30

Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 30
S tundum getur það gerst að allir heimsins fiskar virðast forðast skipin eins og heitan eldinn. Þá er líkt og veiðarfærin verði að skrautbúnaði á skipinu og tíminn varla líður. Ef svo ber undir er gott að hafa eitthvað að gera til að stytta stundirnar á meðan beðið er eftir næstu torfu. Hér eru nokkrir hlutir sem eru ómissandi í langan túr. Spjaldtölva Góð spjald- eða fartölva er staðalbúnaður fyrir hvern mann og konu nú á gervihnattaöld. Gott er að hafa nokkrar góðar kvikmyndir eða þáttaseríur til reiðu þegar maður hefur stund aflögu. Melódíka Ef listamaðurinn vill láta ljós sitt skína er sniðugt að hafa hljóðfæri til staðar til að svala þörfinni. Þá er gam- an að geta slegið gítarleikurunum við með góðu melódíku- spili í matsalnum. Pípa Það er fyrir löngu vitað að allir sjómenn reykja pípu eins og strompur. Gott er að mæta klyfjaður af hágæða tóbaki svo birgðirnar klárist ekki á leiðinni. Útvegsspilið Ef öll áhöfnin er í pásu er tilvalið að taka spil. Gamla góða út- vegsspilið hefur aldrei klikkað enda tímalaus klassík. Prjónar og garn Það er upplagt að nota langar stundir til að prjóna flíkur á vini og vandamenn. Bestur er íslenski plötulopinn ætli maður að prjóna peysu. Ritsafn Þorsteins frá Hamri Ef bíómyndagláp, tónlist eða reykingar vekja ekki áhug- ann er lestur eina leiðin. Ritsafn Þorsteins frá Hamri er úrvals lesning en safnið inniheldur þrettán ljóðabækur, þrjár skáld- sögur og þjóðlegan sagna- hátt. teitur@mbl.is Ómissandi hlutir í túrinn 30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Atvinna Egersund Ísland var stofnað árið 2004 og hefur síðan þá framleitt og þróað veiðarfæri og búnað til uppsjávarveiða. Egersund Ísland er hluti af Egersund Group sem stofnað var árið 1952. Egersund og dótturfyrirtæki þess eru leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu og þróunar veiðarfæra. www.egersund.is OKKAR HÆFNI – ÞINN HAGUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.