Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 59

Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 59
um sautján sólarhringa. Reynir seg- ir að þrátt fyrir að siglingin hafi gengið mjög vel sé honum og öðrum skipverjum gjarnan minnisstætt hversu lítil fjölbreytni hafi verið í matseld um borð í skipinu. „Kokk- urinn sem átti að koma með okkur komst einhverra hluta vegna ekki með og því þurfti Gylfi bróðir að elda,“ segir Reynir en um borð voru tveir bræður hans, Gylfi og Árni Sigurðssynir. „Við Árni vissum náttúrlega að Gylfi kunni ekki einu sinni að sjóða kartöflur,“ segir Reynir og hlær. „Svo stóð hann í eldhúsinu með sleifina í annarri hendinni og Ungu stúlkuna og eld- hússtörfin í hinni,“ segir Reynir en bendir á að Gylfi bróðir hans hafi þrátt fyrir allt staðið sig nokkuð vel. „Hann gerði þetta ágætlega, en það voru bara þrjár tegundir; kjúkling- ur, svínakjöt og nautakjöt. Allt í potti,“ segir Reynir og bætir við: „Ég gat ekki séð hænu á vappi í mörg ár á eftir án þess að fá fiðring í magann.“ Eins og áður segir sigldu Reynir og félagar til Panama og í gegnum hinn fræga skurð sem gjarnan er kenndur við landið. „Það var nátt- úrlega svakalegt mannvirki og mikil upplifun,“ segir Reynir en áhöfnin eyddi tæpum tveimur sólarhringum í borginni Cristobal á meðan olíu og vatni var bætt á skipið. Þetta átti eftir að verða síðasta stopp skipsins en eftir að hafa siglt í gegnum sund- ið milli Dóminíska lýðveldisins og Púertó Ríkó var stefnan sett á Ís- land. Hinn 15. október kom Arnar HU1 í höfn á Skagaströnd en við komuna var mikil viðhöfn í bænum. „Við vor- um komnir um miðnætti kvöldið áð- ur,“ segir Reynir en skipverjarnir þurftu að bíða nóttina vegna hátíð- arinnar morguninn eftir. „Þeir voru nú nokkrir orðnir svolítið pirraðir. Margir voru með fjölskyldur í landi en við þurftum að bíða yfir nóttina,“ segir Reynir og bætir við: „Það var búið að skipuleggja að fólkið myndi fylgjast með okkur sigla inn Húna- flóann.“ Reynir segir þó að menn hafi fljótt jafnað sig á biðinni og seg- ist ennþá muna eftir mannfjöld- anum og borðunum í höfninni sem buðu togarann og áhöfnina vel- komna heim. Með aflamestu skipum landsins Reynir segir að útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtæki Skagstrendinga, Skagstrendingur hf., hafi verið sannkallaður bjargvættur þorpsins. „Íbúafjöldi var á miklu undanhaldi á þessum tíma enda lítið um atvinnu,“ segir Reynir en félagið var stofnað 1968. Þá segir hann að mikið hafi breyst enda hafi staðurinn í kjölfar- ið orðið mun vænlegri kostur til bú- setu. „Íbúarnir áttu flestir hluta í fé- laginu. Þar á meðal ég,“ segir Reynir en upphaflegir hluthafar voru 112 talsins. Reynir segir að hinn nýi japanski togari hafi sann- arlega staðið sig með prýði í íslensk- um sjó en Arnar HU1 var um langa hríð með aflamestu skipum lands- ins. „Reksturinn á þessu skipi gekk mjög vel,“ segir Reynir en hann hélt áfram sem vélstjóri á skipinu eftir að það kom til landsins. Þó að Reynir sé fyrir löngu hætt- ur sjómennsku heldur hann alltaf sjómannadaginn hátíðlegan. Þá ætl- ar hann að syngja með Karlakór sjó- manna um daginn en um kvöldið syngur hann með hljómsveitinni Tíglum, sem stofnuð var fyrir 45 ár- um. „Ég fer alltaf heim ef ég get,“ segir Reynir en þrátt fyrir að búa í Kópavogi ætlar hann að halda upp á daginn í sínum gamla heimabæ, Skagaströnd. heim „Svo stóð hann í eldhúsinu með sleifina í annarri hendinni og Ungu stúlkuna og eldhússtörfin í hinni“ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 59 TIL HAMINGJUMEÐ DAGINN SJÓMENN Í 75 ÁR Á RN A SY N IR Í áratugi hefur starfsfólk Odda þróað og hannað umbúðir fyrir fjölda íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi, þar sem áratuga reynsla og þekking okkar tryggir að varan skili sér á áfangastað jafn fersk og hún var þegar hún lagðiafstað.Viðveitumþérfyrsta flokks ráðgjöf og aðstoðum þig viðaðveljaréttuumbúðirnarfyrir þínar vörur. Hafðu samband og kynntuþérmálið. Ráðgjöf Vandaðar umbúðir tryggja örugga meðferð og afhendingu þinnar vöru. Því er mikilvægt að þær séu valdar af kostgæfni. Við framleiðum úrval umbúða auk þess sem við bjóðum fjölbreyttar lausnir frá traustum og viður- kenndum samstarfsaðilum okkar. Þannig tryggjum við einstakt vöru- framboð sem uppfyllir allar þínar þarfir þegar kemur að umbúðum. Umbúðir Við erum þínir ráðgjafar í umbúðum www.oddi.is5155000 Á sjómannadaginn sletta sumir meira úr klaufunum en aðrir og dansa bæði vals og ræl á tá og hæl. Þá er ekki úr vegi að hafa nokkur vel valin sjó- mannalög í handraðanum til að stilla taktinn. Hér koma nokkrar tillögur: „Á sjó“ – Hljómsveit Ingimars Eydal Lagið er að sjálfsögðu fyrir löngu orðið sígilt enda fjallar textinn frekar blátt áfram um störf og raunir sjómanna. „Ó, María, mig langar heim“ – Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar Þrátt fyrir að textinn sé í sjálfu sér sorglegur er lagið grípandi og gott til að dansa við. „Simbi sjómaður“ – Haukur Morthens Þeir eru eflaust margir sem hafa haldið til sjós með sömu ævintýraþrá og Simbi sjómaður. Hvort þau rættust veit enginn. „Sjúddírarírei“ – Gylfi Ægisson Gylfi á mörg góð sjómannalög og má þar sérstaklega nefna „Stolt siglir fleyið mitt“, sem allir sjómenn þekkja. „Sjúddírarírei“ er hins vegar besta lag- ið til að syngja þegar liðið er á kvöldið. teitur@mbl.is Hvað skal setja á fóninn? Morgunblaðið/hag Sjóaður Gylfi Ægisson Morgunblaðið/Golli Bassi Þorvaldur Halldórsson söng lengi með hljómsveit Ingimars Eydal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.