Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á
rið 1978 hóf ungur og
metnaðarfullur maður
störf hjá Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins (Rf),
sem síðar varð hluti af
Matís. Sigurjón Arason vinnur enn á
sama stað og brennur enn af eldmóði
og áhuga á 40 ára starfsafmælinu.
Hann segir varla hægt að þreytast á
rannsóknum tengdum sjávarútvegi
enda greinin kröftug og einhuga um
að þróa nýjar aðferðir og nýjar
vörur sem stuðla að bættri verð-
mætasköpun og um leið betri af-
komu.
Auk þess að vera yfirverkfræð-
ingur hjá Matís er Sigurjón prófess-
or í matvælaverkfræði við Háskóla
Íslands og þar að auki kennari við al-
þjóðlegan Sjávarútvegsskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna og
Jarðhitaháskóla Sameinuðu þjóð-
anna. Undanfarinn áratug hefur
hann útskrifað tíu doktorsnema,
bæði innlenda og erlenda, og í dag
kemur hann að verkefnum fimm
doktorsnemenda.
Nánast frá því að hann man eftir
sér hefur Sigurjón unnið störf með
einhverja tengingu við sjávarútveg-
inn. „Ég var tíu ára þegar ég hóf
störf hjá frystihúsi við að mata roð-
flettivél og vann líka á síldarplani.
Svo veiddi ég humar með pabba í
fimm ár með menntaskólanáminu og
meðfram háskólanámi starfaði ég í
hreinlætis- og búnaðardeild hjá
Fiskmati ríkisins. Allan þennan tíma
ætlaði ég mér samt að verða læknir,
en áttaði mig síðan á því eftir stúd-
entspróf að ég myndi una mér best á
kafi í fiskinum.“
Flétta saman jarðhita
og fiskvinnslu
Þau fjörutíu ár sem Sigurjón hefur
verið hjá Rf og Matís hafa verið tími
mikilla framfara í veiðum og vinnslu
í íslenskum sjávarútvegi. Hann segir
bætta hráefnisnýtingu og aukin
gæði hafa verið helsta markmiðið öll
þessi ár, en eitt af fyrstu tímamóta-
verkefnunum sem Sigurjón vann
snerist um að nota jarðhita til að
þurrka afurðir sem féllu til við fisk-
vinnsluna: „Fyrst var settur upp
grindarklefi með þurrkunarkerfi í
Hafnarfirði og síðar færibanda-
þurrkari í Hveragerði, til að þurrka
hausa og hryggi, og búnaðurinn síð-
an fluttur í Haustak á Reykjanesi.
Fyrir herta hausa má fá á bilinu 5-10
dali á kílóið á meðan kílóverðið á
mjöli er 1-2 dalir og því tókst með
þessu að búa til fimmfalt verðmæt-
ari afurð.“
Mælingar á nýtingu afla sýna
hversu miklar framfarir hafa orðið.
„Áður fyrr nýtti sjávarútvegurinn í
kringum 40-45% af þyngd fisksins í
flök og afgangurinn fór ýmist í hafið
sem afskurður eða var nýttur sem
fiskmjölshráefni í landi. Í dag nýtum
við um það bil 80% af fiskinum í að
gera verðmætar vörur og nokkur
vinnsluskip eru komin með fisk-
mjölsverksmiðjur um borð svo að
ekkert fer til spillis.“
Æ verðmætari vara
Með betri nýtingu og auknum gæð-
um hefur líka tekist að gera aflann
margfalt verðmætari. „Ein stærsta
byltingin kom með bættri kælitækni
sem þýddi að hægt var að kæla fisk-
inn mun betur og af meiri nákvæmni
úti á sjó og fyrir vikið koma með
langtum betra hráefni að landi.
Betri kæling hefur þýtt að tegundir
eins og síld og makríll, sem áður
fóru að einhverju leyti í fiskmjöl, má
núna nýta sem ofurferskt hráefni í
vörur til manneldis. Samhliða hefur
skráning á uppruna aflans batnað
verulega og geta útgerðir tengt gal-
latíðni við það hvar fiskurinn veiðist.
Með því að beina skipunum á djúp-
slóð, þar sem minna ber á hringormi,
hefur tekist að veiða mun betri fisk
sem bæði tekur miklu skemmri tíma
að snyrta og nýtist
betur til að gera
falleg flök og
bita.“
Allar framfarir
síðustu áratuga
hafa orðið til þess
að hver fiskur er
orðinn allt að fjór-
um sinnum verð-
mætari en áður.
„Fiskveiðar hafa dregist mikið sam-
an síðan kvótakerfið var sett á og
t.d. þorskkvótinn verið skorinn niður
um 50%. Þrátt fyrir það er heild-
arvirði aflans mun meira en það
var,“ segir Sigurjón. „Greinin sá það
strax og kvótaþak var sett á fisk-
veiðar að það þyrfti að spýta í lófana
og leita allra leiða til að skapa sem
mest verðmæti úr aflanum frekar en
að veiða sem mest.“
Getum gert enn betur
Sigurjón segir það eiga að vera
mögulegt að auka virði sjávarafurða
um annað eins á komandi áratugum,
að því gefnu að nægilegum fjár-
munum sé varið í rannsóknir og þró-
un. „Áhugaverðustu tækifærin eru
fólgin í því að nýta betur lífvirku efn-
in í fiskinum til að þróa vörur sem
hjálpa okkur að lifa betur og jafnvel
lengur. Doktorsnemendur sem ég
aðstoða um þessar mundir eru allir
að vinna að rannsóknum af þessum
toga og stefna á sóknarfæri í lyfja-
iðnaði eða snyrtivörugeiranum,“
segr Sigurjón. „Við þurfum líka að
halda áfram að framleiða ný og betri
matvæli og búa til sjávarafurðir sem
auðveldara er fyrir neytendur að
matreiða og snæða og þannig hægt
að selja á hærra verði.“
Að mati Sigurjóns hefur íslenskur
sjávarútvegur alla burði til að vera
leiðandi á þessu sviði, því þrátt fyrir
mannfæðina er fræða- og nýsköp-
unarsamfélagið öflugt og vinnur sem
ein heild. Hann segir að í mörgum
samkeppnislöndum okkar sé rann-
sóknum og vöruþróun vel sinnt en
þekkingin og mannauðurinn sé
dreifðari. „Það er eitt helsta ein-
kenni Íslands hve stutt er á milli
manna og stutt á milli háskólasamfé-
lagsins og iðnaðarins. Vegalengd-
irnar eru ekki meiri en svo að ég get
t.d. unnið að rannsóknum og fræða-
störfum á virkum dögum og svo
haldið út á land um helgi til að kenna
sjómönnum og fiskvinnslufólki
hvernig á að kæla fiskinn betur eða
ná meiri árangri í rækjuveiðum og
verið síðan kominn aftur á rann-
sóknarstofuna næsta mánudag.“
Þörf á öflugri sjóðum
Það sem helst veldur Sigurjóni
áhyggjum er að framlög hins op-
inbera til sjávarútvegstengdra rann-
sókna hafa farið minnkandi á meðan
sjóðir í löndum á borð við Noreg fara
stækkandi. „Það var bylting þegar
AVS-rannsóknasjóðurinn í sjávar-
útvegi var settur á laggirnar fyrir
tólf árum. Sjóðurinn fór vel af stað
og þegar mest var hafði hann úr
rúmlega 400 milljónum króna að
spila árlega.
Núna eru fjár-
framlög til AVS
komin niður í um
200 milljónir. Á
sama tíma hefur
t.d. FHF-
sjóðurinn (n.
Fiskeri- og hav-
bruksnæringens
forskningsfond)
stækkað og úthlutar núna um það bil
300 milljónum norskra króna, eða
nærri 20 sinnum meira fjármagni en
íslenski sjóðurinn.“
Sigurjón segir að reynslan kenni
okkur að því fjármagni sem varið er
til rannsókna í sjávarútvegi sé vel
varið og hafi aukin þekking á veiðum
og vinnslu verið lyftistöng fyrir allar
tegundir fiskveiða. „Bara þær fram-
farir sem orðið hafa í kælingu, sem
lengt hafa geymsluþol ferska fisks-
ins úr sex dögum í allt að tvær vikur,
hafa verið ómetanlegar fyrir grein-
ina. Þess ber að geta að tækjafram-
leiðendur eins og Marel, Valka,
Skaginn-3X, Sæplast-Tempra o.fl.
hafa tekið virkan þátt í þróuninni og
hefur það stutt þessa öru þróun síð-
ustu árin, bæði hjá framleiðendum
sjávarafurða, í þróun veiðiskipa og
vinnslubúnaðar. Þessi góða sam-
vinna innan greinarinnar hefur
gagnast öllum og stuðlað að þeirri
verðmætasköpun sem blasir við.“
Aukin verðmætasköpun byggist á rannsóknum
Flök Á löngum og farsælum ferli hefur afskaplega fátt tengt fiski verið Sigurjóni óviðkomandi.
Ljósmynd/HÍ/Kristinn Ingvarsson
Tækifæri „Bara þær framfarir sem orðið hafa í kælingu, sem lengt hafa geymsluþol ferska fisksins úr sex dögum í allt að
tvær vikur, hafa verið ómetanlegar fyrir greinina,“ segir Sigurjón um mikilvægi rannsókna og þróunar í sjávarútvegi.
Viska Dang Thi Thu Huong doktorsnemi frá Víetnam undir leiðsögn Sigurjóns.
Athugun Sigurjón að störfum með Gísla Kristjánsyni hjá HB Granda
Sigurjón Arason á 40
ára starfsafmæli hjá
Matís, en þar hefur
hann unnið að fjölda
verkefna tengdra veið-
um og vinnslu á fiski.
Hann hefur áhyggjur
af minnkandi fram-
lögum til rannsókna á
þessu sviði og segir
tækifæri til að búa til
enn meiri verðmæti úr
íslenska fiskinum og
nýta t.d. í snyrtivörur
eða lyf.
„Allan þennan tíma ætlaði
ég mér samt að verða
læknir, en áttaði mig síðan
á því eftir stúdentspróf
að ég myndi una mér
best á kafi í fiskinum“