Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 8

Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið: Mán. - fimmt. kl. 09-18 / Föst. 09-17. Lokað á laugardögum í sumar. INNRÉTTINGAR DANSKAR Í ÖLLHERBERGIHEIMILISINS FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM, FRAMHLIÐUM,KLÆÐNINGUMOGEININGUM, GEFAÞÉR ENDALAUSAMÖGULEIKAÁ AÐSETJASAMANÞITTEIGIÐ RÝMI. STERKAR OG GLÆSILEGAR Samkomulag umvegtyllur í borgarstjórn, en um fátt annað sem festa má hönd á, vakti furðu. Svo sem að halda skuli áfram athugun sem staðið hefur lengi á hvort leysa megi húsnæð- isvanda ungs fólks með því að byggja í holum miðbæjarins.    Talsmenn meirihlutans ítrek-uðu þetta: „Það er það sem við erum að fara að skoða í tengslum við borgarlínuna!“ Enginn veit um hvað „borg- arlína“ snýst. Þannig að hin nýja athugun mun því standa í ára- tugi. Þá verður vandinn horfinn með því að unga húsnæðislausa fólkið er orðið gamalt.    Skrítinn kafli í „sáttmálanum“vekur spurningar. Á blað- síðu 5 segir: Rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar verður tryggt meðan unnið er að und- irbúningi nýs flugvallar í ná- grenni borgarinnar. Að- alskipulagi Vatnsmýrar verði breytt og lokun flugvallarins seinkað þegar samningar hafa náðst við ríkið um borgarlínu sem styður við nauðsynlega upp- byggingu á Ártúnshöfða, í Elliðavogi, á Keldum og í Keldnaholti.“    Þótt þessi texti sé ekki sérlegaskýr, liggur beinast við að skilja hann þannig að borg- arstjórnarmeirihlutinn ætli að gera það að skilyrði fyrir því að lokun Reykjavíkurflugvallar verði frestað tímabundið að ríkið semji um aðkomu að borgarlínu, væntanlega með verulegri kostn- aðarhlutdeild.    Einhvern tíma hefði slík upp-setning kallast fjárkúgun. Dagur B. Eggertsson Fjárkúgun? STAKSTEINAR Veður víða um heim 13.6., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 10 skýjað Nuuk 7 léttskýjað Þórshöfn 9 rigning Ósló 21 léttskýjað Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 14 rigning Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 15 skýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 14 rigning London 20 skýjað París 17 alskýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 16 skýjað Berlín 16 skýjað Vín 21 skúrir Moskva 19 léttskýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 23 heiðskírt Barcelona 25 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Róm 22 rigning Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 22 skýjað Montreal 24 skýjað New York 20 rigning Chicago 24 skýjað Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:58 23:59 ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33 SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16 DJÚPIVOGUR 2:13 23:43 Fjögur tilboð bárust í gerð hring- torgs á Vesturlandsvegi við Esju- mela á Kjalarnesi. Þau voru öll yfir áætluðum verktakakostnaði. Tilboð- in voru opnuð hjá Vegagerðinni í vik- unni. PK verk ehf., Kópavogi, átti lægsta tilboðið, 433 milljónir. Loft- orka ehf., Garðabæ, bauð 457 millj- ónir, Ístak hf., Mosfellsbæ, 488 millj- ónir og Bjössi ehf., Hafnarfirði, 546 milljónir. Lægsta tilboðið var 42 milljónir yfir áætluðum verktaka- kostnaði, sem var 391 milljón. Sem fyrr segir felst verkið í gerð hringtorgs á hringveginum við Esju- mela auk allra vega og stíga sem nauðsynlegt er til að ljúka gerð vegaframkvæmdanna endanlega. Til framkvæmdanna teljast einnig und- irgöng undir Hringveg, strætóbið- stöðvar við Hringveg, gerð Víðines- vegar á um 600 metra kafla og gerð Norðurgrafarvegar að Lækjarmel/ Esjumel. Einnig er innifalin gerð göngu- og reiðstíga. Þá er gerð heimkeyrslna við Víðinesveg hluti verksins. Loks eru innifaldar breyt- ingar á lagnakerfum veitufyrir- tækja, m.a. færsla rafstrengja með háspennu á um 500 metra kafla, sem og nýlagnir. Verkinu skal að fullu lokið eigi síð- ar en 1. nóvember 2018. sisi@mbl.is Öll tilboð í hringtorg yfir áætlun  Nýtt hringtorg á Vesturlandsvegi við Esjumela á að vera tilbúið í nóvember Morgunblaðið/Brynjar Gauti Framkvæmd Nýtt hringtorg á að vera tilbúið fyrir næsta vetur. Ólafur Á Torfason rakst á margæs og hreiður hennar með þremur eggj- um í á Álftanesi nýverið. Ekki er vit- að til þess að fuglinn hafi áður verpt hér á landi. Margæsir eru fargestir á Íslandi en þær koma hér við á leið sinni til og frá varpstöðvum sínum í NA-Kanada til þess að safna forða. Dr. Arnór Þórir Sigfússon, dýra- fræðingur og gæsasérfræðingur, segir sérstakt að gæsin skuli verpa hér en ekki stórundarlegt. ,,Það get- ur alltaf gerst að fuglar verpi á far- leiðinni.“ Hvort það hafi einhverja þýðingu að fuglinn verpi hér á landi segir Ólafur óvíst. ,,Það er of snemmt að segja til um það. Það er samt mjög spennandi að fylgjast með þessu og sjá hvort gæsin nái að klekja út ungum.“ ragnhildur@mbl.is Margæs Gæsin verpti á Álftanesi. Spenn- andi varp  Margæs verpir á Íslandi í fyrsta sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.