Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 yrði eftir í Eyjum. Við fórum um borð í Arnar ÁR, sem var fyrstur báta til Þorlákshafnar,“ segir Halla. Hún seg- ir að ferðin í Þorlákshöfn hafi ekki verið sú besta. „Við vorum úti á dekki alla leiðina. Ég man ekki eftir að hafa hugsað neitt né haft áhyggjur af framtíðinni. Það eina sem ég hugsaði um var að halda börnunum saman svo að enginn týndist. Það var kalt og mikil sjó- veiki,“ segir Halla. „Það var erfitt þegar við Addi kvöddumst á bryggjunni. En svona var þetta bara og það varð að taka því.“ Halla og Dagfríður Finnsdóttir á Kirkjubæ voru samferða til Þorláks- hafnar en Guðjón Pétursson, eig- inmaður Dagfríðar, varð eftir í Eyj- um. Áður en lagt var af stað hafði Dagfríður hringt á Selfoss til fólks sem hún þekkti og sagt því frá því sem gerst hafði. Þetta voru Þórunn Einarsdóttir og Jón Guðbrandsson dýralæknir en þau ætluðu að koma á tveimur bílum til Þorlákshafnar og sækja Dagfríði. „Þegar hjónin komu að sækja Dag- fríði stóð ég með börnin mín sjö og spurði Jón hvort ég ætti að koma líka. Jón svaraði: ,,Þú átt það ekki en þú mátt það“ og með þeim fórum við,“ segir Halla með hlýju í röddinni og bætir við að þau hjónin séu yndis- legasta fólk sem til sé á jarðríki. Börn Jóns og Þórunnar voru átta, Halla kom með sín sjö og Dagfríður með tvo syni. Samtals var því 21 á heimilinu. ,,Einhverjir sváfu í húsinu við hlið- ina, hjá þeim heiðurshjónum, Hjalta Gestssyni og Karen Gestsson. Við vorum þar í 3 til 4 daga minnir mig og ég man hreinlega ekki hvernig mér leið. Ég held að mér hafi ekki liðið illa, en það var ekki skemmtilegt að fara að sofa á kvöldin og Addi úti í Eyjum,“ segir Halla. Hún segir að Þórunn hafi séð til þess að þeim leiddist ekki, fór með fjölskyldurnar í Eden og vildi allt fyr- ir þau gera. Fljótlega fékk Halla leigt húsnæði á hestabúi í Austurkoti í Flóa. Matarpöntun einu sinni í viku Að sögn Höllu var húsnæðið ekki gott. Það var kalt og setja þurfti allan mat í ísskáp, annars fraus hann. Það var heldur ekki hægt að fara í bað vegna kulda. „Eins og það var erfitt að vera þarna um veturinn þá var æðislegt að vera í sveitinni um vorið og sumarið,“ segir Halla. ,,Það var erfitt að geta ekki hringt í Adda en svo fengum við síma. Að vísu sveitasíma og allir sem vildu gátu hlustað. Ég fékk bílinn minn ekki strax og hringdi í Kaupfélagið sem sendi mat til okkar en það var aðeins hægt að fá heimsent einu sinni í viku. Það breytist mikið þegar ég fékk bíl- inn,“ segir Halla. Halla segir að sér hafi fundist erf- iðast að búa í Flóanum þegar þokan lagðist yfir. ,,Það var líka hræðilega vond lykt af hestunum, svo við fórum oft niður á Eyrarbakka til þess að finna gúanó- lykt. Ég fór með krakkana sjö á ein- um bíl. Það var skutbíll svo það var bara hlaðið í skottið eins og þurfti,“ segir Halla hlæjandi og bendir á að í þá daga hafi engin belti verið í bílum né öryggisreglur. ,,Ég man þegar sú yngsta, Elísa, veiktist og ég komst ekki með hana til læknis. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera og hringdi í dýralækninn. Jón kom með stauk af pillum sem stóð á ,Just for animals“ (í. aðeins fyrir dýr) og sagði mér að gefa Elísu lyfin þang- að til við næðum í lækni og henni varð ekki meint af þessu.“ Halla segir að fjölskyldan hafi flutt í lok júlí í gám í Hveragerði þar til þau fluttu aftur til Eyja þegar skólinn byrjaði 3. september 1973. Halla minnist þess ekki að hafa hugsað mikið um framtíðina meðan á gosinu stóð. En hún hafði áhyggjur af eldri stelpunum sem nýttu sér frelsið á fastalandinu og fór í heimsóknir til Reykjvíkur. Í upphafi mars losnaði stórt bjarg, Flakkarinn, úr norðurhlíð Eldfells sem flaut ofan á hrauninu og ferðað- ist um 200 metra á dag. ,, Ég hafði miklar áhyggjur af Adda, sérstaklega þegar Flakkarinn fór af stað. Ég og börnin sátum við útvarpið og biðum eftir fréttum en fengum lítið að vita. Húsið okkar fór undir hraun 24. mars minnir mig.“ Hefði frekar viljað vera heima Lífið á fastalandinu reyndi á Eyjamenn og aðra. Ekki voru allir sáttir við þessa óboðnu gesti. Veist var að þeim og börn lentu í einelti í skólum. Bryndís Hrólfsdóttir, þá tvítug, segist hafa orðið fyrir áreitni fyrir það eitt að vera frá Vest- mannaeyjum. „Við hjónin fórum í Hreðavatns- Húsnæðislaus með sjö börn Flóttamenn Halla Guðmundsdóttir og Dagfríður Einarsdóttir halda utan um og gæta barna sinna á bátsdekki á kaldri janúarnótt á leið til Þorlákshafnar. Myndina tók Elías Baldvinsson, eiginmaður Höllu, þegar hann kvaddi konu sína og sjö börn sem sigldu með Arnari ÁR út í óvissuna um hvað tæki við.  Yndislegasta fólk á jarðríki  Fékk leigt á hestabúi  Maturinn fraus í húsinu  Svona var þetta bara  Keyrðu á Eyrarbakka til þess að finna gúanólykt  Sveitin æðisleg um vorið og sumarið FRÉTTASKÝRING Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ýmis vandamál fylgdu móttöku 5.000 flóttamanna frá Heimaey þegar eld- gos braust þar út aðfaranótt 23. jan- úar 1973. Sumir komust strax í hús- næði en aðrir voru nánast á vergangi. Mikill velvilji mætti Eyjamönnum í byrjun en þegar frá leið áttu þeir á köflum undir högg að sækja. Guðjón Ármann Eyjólfsson lýsir þessu ágætlega í bók sinni Vest- mannaeyjar, Byggð og eldgos. „Móttökur Reykvíkinga og skipu- lag Almannavarna á móttökum var með einstökum ágætum, einkum þeg- ar haft er í huga, að lítill tími var til stefnu. Þennan dag og næstu daga komu fram beztu þættir kynstofns okkar og íslenzkrar þjóðar; fórnfýsin og hjálpsemin við náungann. En ekki leið þó á löngu þar til Sturlungaeðlið, flokkadrættir, deilur og þras, gerði aftur vart við sig og náði tökum á okk- ur.“ Halla Guðmundsdóttir og eigin- maður hennar Elías Baldvinsson, kallaður Addi, voru komin upp í en ekki farin að sofa aðfaranótt 23. jan- úar þegar brunasíminn hringdi. „Addi var í slökkviliðinu og símtalið var tilkynning um að gos væri hafið. Addi sagði við þann sem hringdi að slíkt væri ekkert til að fíflast með,“ segir Halla sem var þá 33 ára gömul og bjó á Landagötu 12, á austurhluta Heimaeyjar. „Við áttum ekki nema sjö börn á þessum tíma,“ segir Halla hlæjandi. Hún vakti eldri dæturnar sem byrj- uðu að klæða yngri börnin. „Á meðan börnin klæddu sig smurði ég brauð og hellti upp á kaffi því ég ætlaði með börnin inn í Herj- ólfsdal í útilegu,“ segir Halla og bætir við að mamma hennar og Tóti móð- urbróðir hafi búið í kjallaranum og þeirra fyrsta verk var að fara austur á Urðir til þess að hleypa út hestunum svo þeir brynnu ekki inni. „Addi kom heim og sagði að ég yrði að fara með börnin um borð í næsta bát en hann Staðreyndir um Noregsferðina » 1.020 börnum boðið flug og frítt uppihald í Noregi. » Áætlað að 160 til 300 börn myndu þiggja boðið. » 90% Eyjabarna þáðu boð í 14 daga ferð. » 909 börn 7 til 15 ára fóru til Noregs júní til ágúst 1973. » Gist í sumarbúðum og á einkaheimilum. » Börnin fóru til 11 svæða í Noregi. » 38 unglingar styrktir í skóla- ferðalag til Færeyja. » 18 eldri borgurum boðið til Noregs. » 20 íslenskum fötluðum börnum boðið til Noregs. » Einstaklingi sem slasaðist við björgunarstörf í Vest- mannaeyjum boðið til Noregs með fjölskyldu sinni. Styrktaraðilar: Islandsk-Norsk Samband, Rauði kross Íslands og Noregs. Íslendinga- félagið í Osló, Norsku blaðamannasamtökin, NRK, norskir fjölmiðlar, Flugleiðir og fleiri. Since 1921 Weleda er leiðandi vörumerki í sölu á lífrænum húðvörum síðan 1921 ! Útsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir. Netverslun: heimkaup.is, lyfja.is, heilsuhusid.is, baenduribaenum.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.