Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 59
MINNINGAR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 ✝ Sigríður ErlaHaraldsdóttir var fædd í Næf- urholti á Rang- árvöllum 31. des- ember 1934. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimil- inu Lundi 22. maí 2018. Hún var dóttir hjónanna Haraldar Runólfssonar og Guðrúnar Laufeyjar Ófeigs- dóttur. Erla, eins og hún var oft- ast kölluð, var númer fimm í röðinni af sjö systkinum. Árið 1959 giftist Erla Klem- enzi Erlingssyni bifreiðastjóra Klemenz Geir Klemenzson, fæddur 1969. Maki hans er Svanbjörg Ólafsdóttir. Klemenz Geir á 2 börn og 3 stjúpbörn. Erlingur Reyr Klemenzson, fæddur 1973. Maki hans er Lín- ey María Hjálmarsdóttir. Er- lingur Reyr á 5 börn. Guðrún Hrafnhildur Klem- enzdóttir, fædd 1975. Maki hennar er Róbert Sverrisson og eiga þau 3 börn. Erla ólst upp í Næfurholti en flutti síðar að Hólum. Þar bjó hún þar til hún og Klemmi fluttu á Selfoss árið 1959. Erla vann hin ýmsu störf auk húsmóð- urstarfsins. Hún vann á leik- skóla, í verslun og í grunnskóla að ógleymdu dagmóðurstarfinu sem hún sinnti í rúmlega ára- tug. Á því tímabili gætti hún yfir 60 barna. Útför hennar fór fram 31. maí 2018, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. úr Reykjavík. Hann var fæddur árið 1937 og lést 2006. Klemenz var sonur hjónanna Erlings Klemenssonar og Valgerðar Stefáns- dóttur. Erla og Klemmi eignuðust 5 börn. Þau eru: Katrín Stefanía Klemenz- ardóttir, fædd 1959. Maki hennar er Karl Birg- ir Svavarsson. Katrín á 4 börn og 2 barnabörn. Elín Hekla Klemenzdóttir, fædd 1960. Hún á 3 börn og 3 barnabörn. Elsku mamma mín. Hvernig stendur á því að svo erfitt er að koma minningarorðum um þig á blað. Kannski vegna þess að ég er ekki alveg búin að átta mig á að þú ert ekki lengur hér með okkur. Söknuðurinn er sárari en orð fá lýst. Elsku mamma mín. Takk fyrir að standa með mér alltaf í gegn um þykkt og þunnt, takk fyrir að hugga á erfiðum stundum og takk fyrir allan hláturinn og fíflaganginn á öll- um góðu stundunum og takk fyrir að segja mér til syndanna þegar þess var þörf. Mamma mín var ekki mikið fyrir flakk og ferðalög en hún elskaði að fá fólk í heimsókn, og á Birkivöllum 23 var oftar en ekki fullt hús af fólki á öllum aldri. Það var aldrei neitt kyn- slóðabil þar og oft þegar vinir okkur krakkanna komu í heim- sókn var spjallað við mömmu í eldhúsinu í stað þess að fara inní herbergi og spjalla þar. Mamma hafði nefnilega einlæg- an áhuga á vinum okkar og því sem við öll höfðum fyrir stafni. Mamma starfaði við ýmislegt, s.s. í verslun, á leikskóla, í grunnskóla en lengst af öllu starfaði hún sem dagmóðir og það voru ófá börnin sem hún gætti í því starfi og öll kölluðu þau hana ömmu. Mamma var mikil fjölskyldukona og hagur fjölskyldunnar var alltaf í fyrsta sæti. Fólkið sitt í Hólabæ elsk- aði hún takmarkalaust og tryggð hennar við þau og þeirra við hana var falleg og sönn. Áhugamál mömmu voru ýmis en tónlist var hátt skrifuð. Mamma hafði fallega söngrödd og hún raddaði líka fallega og ég elsk- aði að hlusta á hana syngja. Hún réð líka krossgátur á hraða vindsins og hún hafði ótrúlegan orðaforða sem ég tel mig heppna að hafa að einhverju leyti fengið í arf frá henni. Það var erfitt þegar mamma byrjaði að missa heilsuna og þá var gott að eiga pabba sem stoð og styttu. Það var mömmu hræðilegt áfall þegar pabbi veiktist og lést langt um aldur fram árið 2006, en barnabörnin og barnabarnabörnin og fjöl- skyldan öll glöddu og veittu styrk. Það var gleðilegt hvað mamma gat lengi búið heima og þar naut hún fyrst og fremst að- stoðar Kötu systur og Guðrúnar systur og þeirra fjölskyldna og það verður seint fullþakkað. Síð- ustu mánuðina bjó mamma á dvalarheimilinu Lundi á Hellu og naut þar umönnunar sem hún dásamaði mjög enda ótrú- lega fallegt samband starfsfólks við heimilisfólk þar. Mæðradagurinn síðasti mun verða einn fallegasti dagur ævi minnar, en þá sátum við mamma í góðu yfirlæti og rædd- um allt milli himins og jarðar gamla tíð, nútíð og skeggrædd- um framtíð, og þennan dag var hún uppá sitt allra besta. Að kvöldi þess dags slasaðist hún og náði sér ekki eftir það. Ég hélt í hönd mömmu þegar hún kvaddi þennan heim þann 22. maí sl. og ég er þakklát fyrir að hafa getað verið hjá henni á þeirri stundu ásamt fleirum af hennar nánustu. Elsku mamma mín. Takk fyr- ir allt sem þú varst mér og mín- um, ég mun minnast þín alla mína tíð, við sjáumst svo síðar. Elín Hekla Klemenzdóttir. Elsku amma mín. Það er svo óraunverulegt að þú sért farin frá okkur. Það mun ekki líða sá dagur sem ég mun ekki hugsa til þín og kaffibollans á Birki- völlunum. Þú varst mér svo mikilvæg og áttir stóran þátt í að ala mig upp því ég var svo mikið hjá ykkur afa þegar ég var yngri. Það hefur alltaf verið svo yndislega gaman að koma til þín á Birkivellina. Alltaf mikið hlegið og alls kyns sögur sagð- ar. Mikið kaffi drukkið og kand- ís með. Það er svo margt sem þú hefur kennt mér og mun ég ávallt varðveita það. Þú varst alltaf svo jákvæð og með svo einkennandi skemmtilegan húm- or. Þú vildir alltaf vita allt og alltaf gat maður sagt þér allt. Þú varst aldrei feimin við að segja nákvæmlega það sem þér fannst og það kom fyrir að mað- ur móðgaðist smá en alltaf var eitthvað að marka það sem þú sagðir. Nú ert þú komin á betri stað og ég veit að þú fylgist með okkur og stríðir aðeins. Ég bið að heilsa afa Klemma og afa Óla. Við kveðjum þig, kæra amma, með kinnar votar af tárum á ást þinni enginn vafi til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Elsku amma, ég sakna þín alltaf og ég elska þig. Ragnheiður Katrín Erlingsdóttir. Elsku mamma, það er ein- hvern veginn svo óraunverulegt að þú sért farin. Að hugsa sér að geta ekki lengur kíkt til þín í kaffibolla, knús og spjall er svo endalaust erfið tilhugsun. Það er þó örlítil huggun harmi gegn að eiga allar þær yndislegu minningar sem ég á um þig og okkar ferðalag í gegnum lífið. Við vorum svo góðar saman og bar aldrei skugga á samfylgd okkar. Þú varst svo frábær móð- ir og hefðir vaðið eld og brenni- stein fyrir okkur systkinin hefði þess þurft. Og þú lagðir þig fram um að leyfa mér að gera svo marga skemmtilega og þroskandi hluti því þú treystir mér svo vel. Þú leyfðir mér að fara á sundnámskeið þegar ég var bara þriggja ára af því að ég gat bjargað mér alveg sjálf í klefanum, því þú vissir að mér þótti svo óskaplega gaman í sundi. Þú leyfðir mér að fara í dansskóla og greiddir síða hárið mitt í hátt tagl, því þú vissir að þannig fannst mér að dansandi stúlkur ættu að vera greiddar. Þú leyfðir mér að hlusta á brot- hættu plöturnar með Elvis Presley, því þú vissir að mér þótti það svo óskaplega spenn- andi. Þú leyfðir mér að keyra bíl löngu áður en ég hafði aldur til, því þú vissir að mér fannst það skemmtilegast í heimi. Þú kenndir mér að spila rommý, því þú vissir að það voru mínar bestu stundir að sitja við eld- húsborðið og spila við þig. Svona gæti ég haldið endalaust áfram. Minningarnar eru ótelj- andi. Ég man að þú settir alltaf á þig munuhring ef þú þurftir að muna eitthvað sérstakt. Ég man að þú leyfðir mér að sofna uppi í stóra bóli ef mér gekk illa að sofna á kvöldin. Ég man að þú söngst fyrir mig og spilaðir á gítarinn og kenndir mér svo mörg fyndin og skemmtileg lög. Ég man þegar þú spilaðir á org- elið og söngst uppáhaldslögin þín. Ég man að þú leyfðir mér alltaf að fá kaffijógúrt á meðan þú settir fléttuna í hárið mitt fyrir skólann. Ég man að þú leyfðir mér að borða eins mikið suðusúkkulaði og ég vildi ef ég var lasin. Ég man að þú lánaðir mér alltaf bílinn þinn, þó að ég þyrfti bara að fara örstutta leið. Ég man þegar ég kom á Birkivell- ina og við stimpluðum okkur og snyrtum á okkur neglurnar. Ég man að ég gat alltaf beðið þig að passa stelpurnar mínar ef ég þurfti eitthvað að skreppa. Og ég man þegar ég sat hjá þér á þínum síðustu andartökum í þessu lífi, hélt í höndina þína og hvíslaði að þér: „Góða ferð, elsku mamma, knúsaðu pabba frá mér.“ Takk, elsku mamma, fyrir allt sem þú gafst mér, kenndir mér og treystir mér fyrir. Takk fyrir að taka Róberti mínum sem einu af börnunum þínum, kæta hann endalaust með þínum frábæra orðaforða og treysta honum í einu og öllu. Takk fyrir að reynast stelpun- um mínum endalaust vel í gegn- um tíðina og leyfa þeim finna að þær áttu bestu ömmu í heimi. Takk fyrir allt. Sorgin nístir inn að beini en ég reyni að hugga mig við að nú eruð þið pabbi saman á ný, drekkið kaffi, borð- ið ritzkex með síldarsalati og spilið rommý eins og ykkur ein- um var lagið. Ég elska þig, mamma, og geymi allar yndislegu minning- arnar um þig í hjarta mínu um ókomna tíð. Þín, Guðrún Hrafnhildur. Elsku Erla tengdamamma, nú ert þú farin frá okkur og kemur ekki aftur. Mikið ofboðs- lega er skrítið og tómlegt að hugsa til þess hversu endanlegt það er. Takk fyrir allt sem þú hefur gert og gefið mér, tókst mér opnum örmum fyrir rúm- lega 22 árum og hugsaðir um mig sem einn af sonum þínum alla tíð og ég átti þig að eins og mína aðra mömmu. Þú og Klemmi voruð fljót að gefa grænt ljós á það þegar ég flutti inn til ykkar á Birkivelli 23 til að búa með Guðrúnu, fyrir það get ég seint fullþakkað. Þú tókst okkur svo aftur opnum örmum síðar til að búa með þér þegar við vorum að byggja og þá með tvær litlar dætur okkar, ömmu- stelpurnar þínar. Ég veit að þær hugsa enn til þessa tímabils með mikilli hlýju og þakklæti. Svo eftir að við fluttum frá þér var svo gaman að sjá hvað þú gladdist alltaf þegar við Guðrún komum með stelpurnar í heim- sókn og hvað Skuggi galdraði auðveldlega fram brosið þitt, þó að hann væri mígandi utan í stólinn þinn og innréttingar, þá sagðir þú bara „hvaaaaa“ og ekkert meira vesen með það. Ég elskaði þinn svarta húmor og að það var hægt að segja allt við þig og þú gast sagt allt við mig með 100% hreinskilni, það kunni ég að meta, sem og öll skemmtilegu orðin sem þú not- aðir og ég skildi ekki nema með útskýringum, eins og hvað margt var dólegt og að ég væri spraðurbassi. Manstu að við ætluðum að hjálpast að við að búa einhvern tímann til orðabók saman til að halda utan um öll þessi skemmtilegu orð sem ég heyrði bara hjá þér og þínu fólki? Kannski skelli ég í þessa orðabók á næstunni með aðstoð þeirra sem eftir sitja og eflaust hjálpar þú líka til við þetta verk, það kæmi nú ekki á óvart. Elska þig, Erla mín, og hafðu það sem allra best í sumarland- inu með honum Klemma þínum sem ég veit að tekur vel á móti þér. Takk fyrir allt og allt, elsku Erla. Þinn tengdasonur, Róbert. Sigríður Erla Haraldsdóttir Fallinn er til fold- ar prýðismaður. Við kvöddum hann fyrir nokkrum dögum í Húsavíkurkirkju. Það var sól yfir landi, náttúran skartaði sínu fegursta. Rætur hans að móðurinni, sem hann missti ungur, eru hér á Húsavík, en að föðurnum á Flateyjardal og í Flatey. Á Húsavík ólst hann upp að mestu í stórfjölskyldu hjá föð- ur, ömmu og afa ásamt frænd- fólki. Þar mættust kynslóðir og Júlli fór ekki á mis við lestur góðra bóka og safaríkt málfar sem ein- kenndi hann upp frá því. Eins og títt var um stráklinga þessara ára gekk hann ungur til verka og svo áfram meðan þrek entist, en sjó- mennska varð ævistarf hans. Alltaf var jafn gaman að taka Júlla tali á förnum vegi sökum þess hve snarpur hann var til höf- uðsins, lesinn, skoðanafastur og eftirtektarsamur, alltaf kátur og oftast glaður líka. Þegar ég hér minnist þessa vinar míns örfáum orðum kemst ég ekki hjá því að nefna aðeins ferð ungs fólks í júní 1968 austur á land, en þá var Landsmót UMFÍ haldið á Eiðum. Hafís, sem þrálátt hafði minnst við Hornbjarg þennan vetur og fyllt hér norðanlands flóa og vík- ur, var ekki lengur landfastur, en tíðin var köld. Í þeim hópi vorum við Júlli, ekki sem keppendur í hefðbundnum greinum heldur varð okkar grein fyrir valinu. Þessir dagar urðu þrátt fyrir tíð- arfarið ekki þjáningartími fyrir þann gamla Bakkus. Tíminn leið og þar kom að Júlli Júlíus Jónasson ✝ Júlíus Jón- asson fæddist 11. nóvember 1947. Hann lést 26. maí 2018. Útför Júlíusar fór fram 1. júní 2018. fastnaði sér konu úr Reykjahverfi og gekk tveimur börn- um hennar í föður- stað. Saman eignuð- ust þau svo önnur tvö. Stór þáttur í auðnu manna og kvenna er mót- parturinn og þó þau Stína væru um margt ólík eins og títt er um hjón var þó miklu fleira sem sameinaði þau. Fundum okkar bar ekki oft saman í seinni tíð, þeim síðasta við erfisdrykkju á Húsavík snemma á þessu ári. Það var létt yfir þeim hjónum, margt spjallað gamalt og nýtt. Að því loknu gengum við samferða niður Vall- holtsveginn í blíðskaparveðri uns leiðir skildi við Kaupfélagið. Þessi varð síðasti fundur okkar Júlla, ánægjulegur eins og hinir fyrri því af skiljanlegum ástæð- um renndi ég ekki grun í hve skammt hann átti ófarið vegar- ins. Við dauðans fljót, sem þrumir þungt í þögn á milli landa, við munum síð á sömu strönd í sömu sporum standa. (Guðmundur Böðvarsson) Ég skil ekki við þennan vin minn án þess að nefna þá ríku réttlætiskennd sem hann skart- aði. Hún laut að því að öllu fólki bæri sá réttur að búa við sóma- samlegar aðstæður. Honum var jafnljóst að slíkt gerðist ekki án aukins jöfnuðar. Júlla leiddust jánkarar sem höfðu lítt til mál- anna að leggja annað en að vera sammála einhverjum skoðana- bakara – þessum sömu og gera stjórnmál að leiðindum, því „bæði af honum gustur geðs og gerð- arþokki stóð“. Stína og fjölskyldan á samúð okkar Rannveigar. Kristján Pálsson. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HANNES GARÐARSSON, matreiðslumaður, Tjarnarbóli 4, Seltjarnarnesi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 2. júní. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 19. júní klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimer-samtökin. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Dagný I. Þorfinnsdóttir Margrét Hannesdóttir Engilbert Imsland Berta Hannesdóttir Gunnlaugur Þ. Guðmundsson Eva Hannesdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR, Smárahlíð 5e, Akureyri, lést á sjúkrahúsi Akureyrar miðviku- daginn 6. júní. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 19. júní klukkan 13.30. Sigríður A. Whitt Jónas Veigar Torfason Birna H. Laufdal Þórir Steindórsson Hreinn H. Laufdal Cristiane N. de Andrade Hrönn H. Laufdal Kristján Knútsson barnabörn, langömmu- og langalangömmubörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.