Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 48
48 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Lífrænar mjólkurvörur
í fimmtán ár
Í fimmtán ár hefur Biobú framleitt lífrænar mjólkurvörur sem notið hafa mikilla vinsælda. Vöruflokkum hefur fjölgað ár frá ári
og sífellt bætast við spennandi og girnilegar nýjungar. Öll mjólk í okkar afurðir kemur frá tveimur búum, þ.e. Búlandi í Austur
Landeyjum og Neðra Hálsi í Kjós. Framleiðsla Biobú fer fram samkvæmt ströngustu reglum um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Kynnið ykkur vöruúrvalið á heimasíðu okkar, www.biobu.is.
Lífrænar
mjólkurvörur
www.biobu.is298.1
23
/0
5.
18
Arabar áttu erfitt
með að kyngja ósigrin-
um árið 1948 sem ég
sagði frá í síðustu grein
minni. Árið 1952 efldist
stolt araba þegar Gam-
al Abdel Nasser tók
völdin í byltingu hers-
ins í Egyptalandi og
neyddi Breta til að yfir-
gefa landið. Hann þjóð-
nýtti Súesskurðinn árið
1956 en þá réðust breskar, franskar
og ísraelskar herdeildir á Egypta til
að ná stjórn á þessari mikilvægu
samgönguæð.
Þeir ætluðu sér að steypa Nasser
en urðu að láta undan þrýstingi BNA
og Sovétmanna sem aldrei þessu
vant voru einhuga um að stöðva
stríðið. Nasser sat áfram við völd og
varð stöðugt harðskeyttari í garð Ísr-
aels. „Við munum ganga inn í Palest-
ínu, ekki þakta sandi, heldur þakta
blóði. Markmið okkar er að eyða rík-
inu Ísrael,“ sagði hann. Á þjóðhátíð-
ardegi Ísraels 1967, byrjuðu egypsk-
ar herdeildir að hreyfa sig í átt að
landamærum Ísraels. Nasser rak
burt friðargæsluliða Sameinuðu
þjóðanna sem voru staðsettir við
landamæri ríkjanna. Þremur dögum
síðar voru herdeildir Egypta tilbúnar
að ráðast inn í Ísrael.
Þótt Ísraelsmenn væru aðþrengdir
komu herforingjar Ísraela með
snjalla hernaðaráætlun. Rétt fyrir
sólarupprás þann 5. júní skipuðu þeir
öllum flugher Ísraels að hefja sig til
flugs. Markmiðið var að gera loft-
árásir á flugher Egypta á meðan her-
menn þeirra væru í morgunmat.
Árásin tókst fullkom-
lega. Á innan við tveim-
ur tímum eyðilögðu Ísr-
aelar 300 herflugvélar
Egypta á jörðu niðri.
Skömmu síðar réðst
flugher Ísraels á bæki-
stöðvar flugherja Sýr-
lendinga og Jórdana.
Að kveldi hins fyrsta
dags stríðsins var nærri
allur flugfloti araba í
rúst.
Ísraelsmenn voru
einráðir í loftinu. Átökin héldu nú
áfram á jörðu niðri og stærstu orr-
ustur skriðdreka í sögunni áttu sér
stað milli Egypta og Ísraelsmanna í
Sínaíeyðimörkinni. Aðeins fáeinir
hermenn gættu á meðan landamær-
anna að Sýrlandi og Jórdaníu. Jórd-
anir reyndu í fyrstu að vera hlut-
lausir. En konungur Jórdaníu gerði
þau mistök að láta skjóta á vestur-
hluta Jerúsalem. Ísraelsmenn svör-
uðu með innrás á Vesturbakkann og
það tók þá aðeins þrjá daga að sigra
her Jórdaníu.
Allur Vesturbakki Jórdan féll í
hendur Ísraelsmanna. 7. júní tóku
fallhlífarhermenn Ísraelsmanna
Austur-Jerúsalem og grátmúrinn.
Gleði Ísraelsmanna var mikil. Ísra-
elsmenn þrefölduðu stærð ríkisins og
lögðu undir sig alla Jerúsalem.
320.000 Palestínuarabar lögðu á
flótta.
Allur Sínaískagi var tekinn af
Egyptum auk Gaza-strandarinnar.
Og um leið tók her Ísraels Golan-
hæðirnar af Sýrlendingum. Stríðinu
lauk þann 10. júní, á aðeins sex dög-
um. Austurhluti Jerúsalem var inn-
limaður í ríkið eftir lok stríðsins.
Borgarhlutinn og Vesturbakkinn eru
þó enn talin hernumin svæði af um-
heiminum.
Nasser lést af hjartaáfalli árið
1970. Þremur árum síðar reyndi
eftirmaður hans, Anwar Sadat, að
hefna ófaranna í Sex daga stríðinu. Í
október 1973 réðust herdeildir
Egypta yfir Súesskurðinn og inn á
hið hernumda svæði á Sínaískagan-
um. Samtímis réðust sýrlenskar
brynsveitir á Gólanhæðirnar. Mark-
mið þeirra var að rjúfa víglínuna,
sækja niður að Genesaretvatni og
þaðan að hjarta Ísraels. Árásin kom
Ísraelsmönnum í opna skjöldu, enda
gerð á einni stærstu hátíð gyðinga,
Yom Kippur, eða Friðþægingardeg-
inum. Margir hermenn voru heima í
orlofi og herinn svaf á verðinum.
Engu munaði að Sýrlendingum tæk-
ist að brjótast í gegnum vörnina á
Gólanhæðum. Og í átökunum við
Egypta beið ísraelski flugherinn af-
hroð, enda Egyptar búnir nýjustu
loftvarnarflaugum Sovétmanna. Eft-
ir nokkra daga sneru Ísraelsmenn þó
vörn í sókn og brátt ógnuðu her-
deildir þeirra bæði Damaskus og
Kairó. Þá þvinguðu stórveldin fram
vopnahlé.
Ísrael 70 ára – Sex daga stríðið og
Yom Kippur stríðið
Eftir Þórhall
Heimisson
» 7. júní tóku fallhlíf-
arhermenn Ísraels-
manna Austur-Jerúsal-
em og grátmúrinn. Gleði
Ísraelsmanna var mikil.
Á söguslóðum Greinarhöfundur með hópi Íslendinga í skoðunarferð um gömlu Jerúsalem.
Höfundur er prestur.
Þórhallur Heimisson