Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 48

Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 48
48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Lífrænar mjólkurvörur í fimmtán ár Í fimmtán ár hefur Biobú framleitt lífrænar mjólkurvörur sem notið hafa mikilla vinsælda. Vöruflokkum hefur fjölgað ár frá ári og sífellt bætast við spennandi og girnilegar nýjungar. Öll mjólk í okkar afurðir kemur frá tveimur búum, þ.e. Búlandi í Austur Landeyjum og Neðra Hálsi í Kjós. Framleiðsla Biobú fer fram samkvæmt ströngustu reglum um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Kynnið ykkur vöruúrvalið á heimasíðu okkar, www.biobu.is. Lífrænar mjólkurvörur www.biobu.is298.1 23 /0 5. 18 Arabar áttu erfitt með að kyngja ósigrin- um árið 1948 sem ég sagði frá í síðustu grein minni. Árið 1952 efldist stolt araba þegar Gam- al Abdel Nasser tók völdin í byltingu hers- ins í Egyptalandi og neyddi Breta til að yfir- gefa landið. Hann þjóð- nýtti Súesskurðinn árið 1956 en þá réðust breskar, franskar og ísraelskar herdeildir á Egypta til að ná stjórn á þessari mikilvægu samgönguæð. Þeir ætluðu sér að steypa Nasser en urðu að láta undan þrýstingi BNA og Sovétmanna sem aldrei þessu vant voru einhuga um að stöðva stríðið. Nasser sat áfram við völd og varð stöðugt harðskeyttari í garð Ísr- aels. „Við munum ganga inn í Palest- ínu, ekki þakta sandi, heldur þakta blóði. Markmið okkar er að eyða rík- inu Ísrael,“ sagði hann. Á þjóðhátíð- ardegi Ísraels 1967, byrjuðu egypsk- ar herdeildir að hreyfa sig í átt að landamærum Ísraels. Nasser rak burt friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna sem voru staðsettir við landamæri ríkjanna. Þremur dögum síðar voru herdeildir Egypta tilbúnar að ráðast inn í Ísrael. Þótt Ísraelsmenn væru aðþrengdir komu herforingjar Ísraela með snjalla hernaðaráætlun. Rétt fyrir sólarupprás þann 5. júní skipuðu þeir öllum flugher Ísraels að hefja sig til flugs. Markmiðið var að gera loft- árásir á flugher Egypta á meðan her- menn þeirra væru í morgunmat. Árásin tókst fullkom- lega. Á innan við tveim- ur tímum eyðilögðu Ísr- aelar 300 herflugvélar Egypta á jörðu niðri. Skömmu síðar réðst flugher Ísraels á bæki- stöðvar flugherja Sýr- lendinga og Jórdana. Að kveldi hins fyrsta dags stríðsins var nærri allur flugfloti araba í rúst. Ísraelsmenn voru einráðir í loftinu. Átökin héldu nú áfram á jörðu niðri og stærstu orr- ustur skriðdreka í sögunni áttu sér stað milli Egypta og Ísraelsmanna í Sínaíeyðimörkinni. Aðeins fáeinir hermenn gættu á meðan landamær- anna að Sýrlandi og Jórdaníu. Jórd- anir reyndu í fyrstu að vera hlut- lausir. En konungur Jórdaníu gerði þau mistök að láta skjóta á vestur- hluta Jerúsalem. Ísraelsmenn svör- uðu með innrás á Vesturbakkann og það tók þá aðeins þrjá daga að sigra her Jórdaníu. Allur Vesturbakki Jórdan féll í hendur Ísraelsmanna. 7. júní tóku fallhlífarhermenn Ísraelsmanna Austur-Jerúsalem og grátmúrinn. Gleði Ísraelsmanna var mikil. Ísra- elsmenn þrefölduðu stærð ríkisins og lögðu undir sig alla Jerúsalem. 320.000 Palestínuarabar lögðu á flótta. Allur Sínaískagi var tekinn af Egyptum auk Gaza-strandarinnar. Og um leið tók her Ísraels Golan- hæðirnar af Sýrlendingum. Stríðinu lauk þann 10. júní, á aðeins sex dög- um. Austurhluti Jerúsalem var inn- limaður í ríkið eftir lok stríðsins. Borgarhlutinn og Vesturbakkinn eru þó enn talin hernumin svæði af um- heiminum. Nasser lést af hjartaáfalli árið 1970. Þremur árum síðar reyndi eftirmaður hans, Anwar Sadat, að hefna ófaranna í Sex daga stríðinu. Í október 1973 réðust herdeildir Egypta yfir Súesskurðinn og inn á hið hernumda svæði á Sínaískagan- um. Samtímis réðust sýrlenskar brynsveitir á Gólanhæðirnar. Mark- mið þeirra var að rjúfa víglínuna, sækja niður að Genesaretvatni og þaðan að hjarta Ísraels. Árásin kom Ísraelsmönnum í opna skjöldu, enda gerð á einni stærstu hátíð gyðinga, Yom Kippur, eða Friðþægingardeg- inum. Margir hermenn voru heima í orlofi og herinn svaf á verðinum. Engu munaði að Sýrlendingum tæk- ist að brjótast í gegnum vörnina á Gólanhæðum. Og í átökunum við Egypta beið ísraelski flugherinn af- hroð, enda Egyptar búnir nýjustu loftvarnarflaugum Sovétmanna. Eft- ir nokkra daga sneru Ísraelsmenn þó vörn í sókn og brátt ógnuðu her- deildir þeirra bæði Damaskus og Kairó. Þá þvinguðu stórveldin fram vopnahlé. Ísrael 70 ára – Sex daga stríðið og Yom Kippur stríðið Eftir Þórhall Heimisson » 7. júní tóku fallhlíf- arhermenn Ísraels- manna Austur-Jerúsal- em og grátmúrinn. Gleði Ísraelsmanna var mikil. Á söguslóðum Greinarhöfundur með hópi Íslendinga í skoðunarferð um gömlu Jerúsalem. Höfundur er prestur. Þórhallur Heimisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.