Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Spurð hvort lögmenn eigi ekki ætíð að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna segir Katherine spurninguna athyglisverða. Lögmönnum beri að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna. Sú skylda nái þó ekki til þess að gera fólki kleift að fremja afbrot. Samtímis eigi þeir að tilkynna ef grunur vaknar um peningaþvætti. Slíkur grunur kunni að vakna við óvenjulega löggerninga, t.d. þegar að- ilar láti lögmönnum í té mikið reiðufé eða þegar stofnað er til viðskipta þar sem viðskiptalegar forsendur eru óljósar. Meðal þess sem kemur fram í skýrslu FATF er að íslensk yfirvöld hafi á árunum 2008 til 2015 lagt mikla áherslu á samstarf vegna efnahagsbrota og flókinna úrlausnarefna vegna hrunsins. Þessi áhersla hafi hins vegar ekki náð til aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Séu stóru þrír bankarnir frátaldir hafi fjármálageirinn og aðrar stéttir takmarkaðan skilning á hættunni á peningaþvætti eða fjármögnun hryðju- verka. Þá er bent á það í skýrslunni að óljóst sé hvort íslensk yfirvöld hafi metið hvaða áhrif það hafi á þessa áhættuþætti að afnema fjármagns- höft. Ber að tilkynna um grun SKYLDA LÖGMANNA OG GRUNSEMDIR UM GLÆPI Hún bendir á að varsla slíkra fjármuna sé ólögmæt. Því sé til mikils að vinna fyrir glæpamenn að láta fjármunina líta út fyrir að vera lögmæta. Fara megi ýmsar leiðir í því efni. Lögmenn eru áhættuhópur „Aðferðirnar eru stöðugt að breytast. Ein aðferðin er að koma fjármunum fyrir á reikningi hjá lögmanni. Lögmenn eru áhættu- hópur hvað þetta varðar. Með því einu að taka við fjármunum inn á reikning sinn hefur lögmaður þvætt peningana. Vegna þess að þegar peningarnir eru síðan greiddir út líta þeir út fyrir að vera lögmætir. Lögmaðurinn gæti ekki haft hug- mynd um að fjármunirnir eigi sér ólögmæta uppsprettu. Glæpamaður lætur lögmann hafa fjármuni og segist vilja kaupa tiltekna fasteign. Biður lögmanninn að ganga frá kaupum. Þannig eignast glæpamað- urinn eignina,“ segir Nichols og bendir á að fara mætti sömu leið með hlutabréf. Sendu rúblurnar til London Nýlegt dæmi um slík hlutabréfa- kaup hafi verið til meðferðar hjá yfirvöldum erlendis. Þar hafi rússneskir aðilar keypt hlutabréf með milligöngu útibús Deutsche Bank í London. Greitt hafi verið fyrir bréfin með rúblum. Samtímis hafi tengdir aðilar selt bréf í sama fyrirtæki fyrir sömu fjárhæð en fengið greitt í dollurum. Nichols segir ýmis varnaðar- merki hafa farið á loft hjá Deutsche Bank vegna þessara viðskipta. Til dæmis hafi rússnesku aðilarnir, sem létu af hendi rúblur, viljað kaupa hlutabréf jafnvel þótt það leiddi til taps. Áhuginn hafi vakið grunsemdir. Varnirnar álitnar veikar Spurð hvers vegna erlendir aðilar ættu að sækjast eftir því að þvætta peninga á Íslandi segir Nichols það geta aukið áhuga á landinu ef varn- irnar eru ekki traustar. „Ég veit til þess að yfirvöld segja að hér sé skipulögð glæpastarfsemi. Ef fólk þekkir ekki hætturnar gæti Ísland verið góður staður til að stunda slíkt. Hér er efnahagsupp- gangur. Það er mikið byggt. Það væri auðvelt fyrir slíka aðila að kaupa og selja fasteignir án þess að nokkur tæki eftir því.“ Spurð um fjármögnum hryðju- verkastarfsemi segist Nichols ekki vita til þess að slíkt mál hafi nokkru sinni farið fyrir dómstóla á Íslandi. Ein aðferð til að afla fjár fyrir slíka starfsemi sé að safna fé til góðgerðarmála undir fölsku flaggi. Hún segir lög og reglugerðir allt- af á eftir líðandi stundu. „Glæpa- mennirnir eru sennilega langt á undan okkur og við erum að reyna að ná þeim. Til þess þurfum við grípa til aðgerða. Þeir munu stöð- ugt leita leiða til að vera á undan réttvísinni,“ segir Katherine Nic- hols. Sporna þarf gegn peningaþvætti  Sérfræðingur segir að efla þurfi varnir gegn peningaþvætti á Íslandi  Glæpamenn leiti stöðugt nýrra leiða til að þvætta ólögmæta fjármuni  Séu varnir álitnar veikar á Íslandi bjóði það hættunni heim Morgunblaðið/Hari Sérfræðingur Katherine Nichols, lögmaður hjá Juris lögmannsstofu, hvetur til aðgerða gegn peningaþvætti. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er mjög sennilegt að peninga- þvætti fari fram á Íslandi. Það kall- ar á frekari aðgerðir af hálfu yfir- valda. Þetta segir Katherine Nichols, lögmaður hjá Juris lögmannsstofu, en hún hefur m.a. sérhæft sig í ráð- gjöf varðandi peningaþvætti. Nichols var frummælandi á fyrir- lestri í Háskólanum í Reykjavík um þetta efni nýverið, ásamt Helgu Rut Eysteinsdóttur, lögfræðingi hjá Fjármálaeftirlitinu (FME). Tilefni fundarins var að alþjóð- legur vinnuhópur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (FATF) birti í apríl skýrslu um stöðuna í þessum mála- flokki á Íslandi. Fram kom í skýrsl- unni að stjórnvöld þyrftu að vinna að ýmsum úrbótum á þessu sviði. „Ég held að við þurfum að horf- ast í augu við að það er næstum öruggt að peningaþvætti fari fram hér á landi. Ég tel að við þurfum að takast á við þann vanda og nú er verið að stíga skref í þá átt. Ég held að FATF-skýrslan sem kom út í apríl hafi greint vandamál á nokkrum sviðum. Ég veit að FME er að vinna að þessum málum, sem og önnur stjórnvöld. Því miður eru Íslendingar að dragast inn í þetta [peningaþvætti] án þess að gera sér grein fyrir því. Vandamálið við pen- ingaþvætti er að það fer fram með leynd. Það fer fram neðanjarðar og sést ekki á yfirborðinu. Það er vís- vitandi hulið.“ Ólögmætir fjármunir þvættir Nichols segir markmiðið með peningaþvætti að þvætta fjármuni sem aflað er á ólögmætan hátt. „Það gæti verið þjófnaður. Það gætu verið undanskot frá skatti. Það gæti verið hagnaður af eit- urlyfjum, vændi og mansali. Það gæti verið sérhver ólögmæt starf- semi,“ segir Nichols. af öllum Nicotinell vörum í Farmasíu apóteki út júní Verðdæmi: Nicotinell Fruit 2 mg 204 stk. 2765 kr. Nicotinell Fruit 2 mg 24 stk. 366 kr. Nicotinell Mint 2 mg 204 stk. 3673 kr. Nicotinel munnsogstöflur 1mg 204 stk. 4222 kr. 15% afsláttu r Suðurver, Stigahlíð 45 – 105 Reykjavík – Sími 511 0200 Opnunartími: Mán - fös: 08-20, lau: 10-18, sun: 13-18 Farmasía í alfaraleið, opið alla daga vikunnar Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Farið var yfir kínverskan ferðaþjón- ustumarkað á fundi sem Íslandsstofa hélt sl. þriðjudag. Litið var yfir áhuga kínverskra ferðamanna á Norðurlöndunum, hvaða væntingar þeir hefðu og hvers konar staði þeir sækja í. Samkvæmt nýjustu spá Ox- ford Economics verður um 6% fjölgun kín- verskra ferða- manna á Íslandi árlega næstu tíu ár. Það er ekki samdráttur en þó minni vöxtur en hefur verið. Á fundinum hélt verk- efnastjórinn Daði Guðjónsson erindi ásamt Þorleifi Þór Jónssyni um kín- verska ferðamenn í tengslum við Norðurlöndin. Í erindinu kemur fram að Norðurlöndin eru mjög lítið þekkt í Kína. Vísað sé miklu frekar í Norður-Evrópu sem svæði. ,,Það sem gerir Norður-Evrópu eftirsótta er að hún þykir öruggari áfangastað- ur, er í tísku, vinsæl á samfélags- miðlum og er talin ný og öðruvísi ferðaupplifun,“ segir Daði. ,,Þeir sækja líka í einstaka náttúru og norðurljós eru stór þáttur í því. Það er þessi víðátta, kyrrð og ró í ein- stakri náttúrufegurð.“ Ísland heimsótt allt árið Daði segir Ísland vera með minnstu árstíðarsveifluna í komum kínverskra ferðamanna til landsins og það sé gríðarlega mikilvægt. ,,Það sem er kannski jákvæðast í þessu samhengi er að Ísland er talið vera bæði sumar- og vetraráfangastaður í Kína.“ Hann segir að þeir sem koma frá Kína dvelji meira á Suðurlandi og minna á höfuðborgarsvæðinu en aðr- ar þjóðir. ,,Þeir sækja mest í Reykja- nes og Suðurland. Þeim finnst þetta einstakt land sem er þess virði að heimsækja aftur. Það er þessi dulúð og ævintýri sem þeir hafa væntingar til, jöklar og eldfjöll. Einnig þykja ,,skondin þorp“ og menning þeirra mjög athyglisverð.“ Áhugi á Norð- urlöndunum Íslandsstofa fundaði um kínverskan ferðaþjónustumarkað á Hótel Sögu Daði Guðjónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.