Morgunblaðið - 14.06.2018, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Eru sparifötin
hrein?
Marta María
mm@mbl.is
Hvernig tilfinning er það að horfa á
barnið sitt spila á svona stórmóti?
„Ég finn fyrst og síðast fyrir stolti
en að sjálfsögðu blandast inn í þetta
líka aðrar stundum óþægilegri til-
finningar en gleðin er samt ráðandi.
Ég treysti honum svo fullkomlega
fyrir þessu verkefni og ég veit alltaf
að hann gerir sitt besta og leggur sig
120% fram við að leysa sitt hlutverk
vel. Þetta er stærsta verkefnið á
hans starfsframa hingað til, þetta
var alltaf draumur og nú er hann
orðinn að veruleika, sem er í raun-
inni alveg magnað og tilfinningin er
einstök og ólýsanleg,“ segir Íris.
Hvernig var að ala Jóhann Berg
upp?
„Stórt er spurt! Það var krefjandi
á köflum að ala hann upp. Hann hef-
ur alltaf verið ljúfur, traustur og góð-
ur en hann var líka mjög þrjóskur,
hann átti það líka til að vera mjög
pirraður á fótboltavellinum, sérlega
þá út í dómara og lét þá alveg heyra
það ef hann var ósáttur. Þessu varð
maður vitni að oft og tíðum og þá
sagði maður í hljóði „Jóhann, hættu
þessu og haltu bara áfram,“ dóm-
arinn ræður. En hann rauk út af velli
án þess að þakka andstæðingum og
dómurum fyrir leikinn, hann var al-
veg þekktur fyrir þetta á sínum tíma.
Hann var fastur fyrir og setti markið
hátt hvað varðar fótboltann, fótbolt-
inn hefur alltaf átt hug hans allan.
Það var líka mjög sérstakt við Jó-
hann alveg frá því að hann var bara
um sjö ára aldur hvað hann fylgdist
vel með fréttum bæði innan og utan-
lands, en hann horfði alltaf á alla
fréttatíma í sjónvarpinu, hann var
vel inni í málum og hafði strax miklar
skoðanir.“
Varstu viss um að hann myndi ná
svona langt?
„Hann hefur æft fótbolta frá því að
hann byrjaði að ganga og sagði strax
og hann hafði vit til að hann ætlaði að
verða atvinnumaður í fótbolta. Ég
studdi alltaf þetta markmið hans á
hans forsendum. Hann lagði sig
ávallt fram og mætti á aukaæfingar
fyrir skóla, eða klukkan 6 á morgn-
ana. Einhvern veginn vissi ég alltaf
að hann myndi ná langt, þetta er eins
og með svo margt annað að ef maður
hlúir að því sem manni finnst
skemmtilegt og lærir það sem þarf
til að verða alltaf betri og betri
aukast einnig líkur á að maður nái
langt og uppskeri. En hann var það
ákveðinn og markmiðin voru svo
skýr hjá honum að ég var alveg farin
að sjá þetta fyrir mér með honum
þegar hann var 13-14 ára.“
Jóhann er mikill dellukarl
Íris ætlar ekki að missa af því þeg-
ar sonur hennar spilar með íslenska
landsliðinu í Rússlandi.
„Við erum öll á leið til Rússlands,
við foreldrarnir, Díana systir hans
og Ingvi hennar maður ásamt Hófý
og Írisi dóttur þeirra Jóhanns og
tengdaforeldrum. Það er mikil til-
hlökkun meðal okkar og við ætlum
að fylgja liðinu á alla leikina. Þetta
verður ævintýri líkast og mikil upp-
lifun. Fyrir utan að fara á leikina
ætlum við að kynna okkur sögu
Rússlands, fara í skoðunarferðir og
kynnast betur menningu þessarar
þjóðar. Þetta verður án ef mjög at-
hyglisvert og skemmtilegt. Við lend-
um í Moskvu á föstudag og þá hefst
undirbúningur fyrir fyrsta leikinn.
Það er mikilvægt að mæta snemma á
völlinn til að ná að upplifa þetta æv-
intýri frá fyrstu mínútu. Við verðum
svo í nokkra daga í Moskvu en fljúg-
um svo til Volgograd daginn fyrir
þann leik og tökum svo aftur flugið
til Rostov þar sem síðasti leikurinn í
riðlakeppninni fer fram. Ég held að
það megi segja að þetta séu ólíkir
staðir og er nokkuð viss um að hver
og ein borg hefur sinn sjarma og við
finnum okkur örugglega eitthvað að
skoða á milli leikja.“
Áttu einhverja sögu af Jóhanni
þegar hann var lítill?
„Hann var mikill dellukarl og
keppnisskapið alltaf til staðar í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur. Eitt
sinn kom hann heim og þá með bikar
fyrir að hafa unnið skákmót í skól-
anum. Við höfðum ekki hugmynd um
að hann kynni að tefla en hann átti
það til að grúska í hinu og þessu án
þess að mikið færi fyrir því, en þetta
kom okkur á óvart. Ég get líka stað-
fest að hann var svakalega góður í
borðtennis og vann nokkur borð-
tennismótin líka en hann er nú sjálf-
ur búinn að monta sig af því nú ný-
verið í fréttum fyrir alþjóð. Hann
eyddi einu sinni öllum afmælispen-
ing sem hann fékk í að kaupa sér all-
ar græjur til að stunda íshokkí en
hann ætlaði að leggja það fyrir sig,
en það stóð ekki lengi yfir. En það
mætti rifja upp margar skemmti-
legar minningar um Jóhann en ég
læt þetta duga í bili.“
Hvað ætlar þú að taka með þér til
Rússlands?
„Þetta er mjög góð spurning og
fátt um svör, ég átta mig bara ekki á
því hvað ég tek með til Rússlands.
Mér finnst örlítið erfiðara að byrja
að setja í töskuna fyrir þetta ferðalag
en önnur ferðalög. Ég verð í það
minnsta með lítið Lyfju útibú með í
för, það verður allt til alls í því sam-
bandi, sólarvarnir, flugnafælur, sótt-
hreinsispritt, plástra, meltingar-
gerlar og svo mætti lengi telja. Ég er
þó alveg ákveðin í að hafa með í för
treyju númer 7, góða skapið og
gleðina og njóta vel.“
Hvað verður þú lengi?
„Vonandi bara sem lengst en þó
ekki mikið lengur en til 16. júlí,“ seg-
ir Íris.
Íris Gunnarsdóttir, markaðsstjóri Lyfju, er móðir
íslenska fótboltamannsins Jóhanns Berg. Hún segir
að son hennar hafi alltaf dreymt um að komast á HM
og því sé þetta stór stund. Hún var að pakka niður í
töskur fyrir Rússland þegar ég náði tali af henni.
Á golfvellinum Íris og Jóhann
skemmta sér.
Feðgar tefla Jóhann ásamt
Guðmundi föður sínum.
Nöfnurnar Þessar tvær verða saman
í Rússlandi og fylgjast með Jóhanni
spila með íslenska landsliðinu.
Alsæl amma Íris
með nöfnu sinni Írisi
og syninum Jóhanni
á góðri stundu.
Aldrei verið
snúnara
að pakka