Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 53

Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR Apotek Afternoon Tea ALLA DAGA FRÁ 14.30–17.00 SAVOURY Klassísk túnfisk samloka Bleikja á vöfflu Lambarillet á vöfflu Önd á vöfflu SWEET Sumarsæla Karamellu Crankie Cherry delight Makkarónur 2.890 kr. á mann Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Súkkulaðið er 100% náttúrulegt og hafa súkkulaðiunnendur um all- an heim beðið með öndina í háls- inum af eftirvæntingu frá því að til- kynnt var um þetta nýja súkkulaði fyrr á þessu ári. Síðan þá hefur súkkulaðið verið sett á markað í Japan og Suður-Kóreu sem bleikt KitKat og í Bretlandi kom súkku- laðið á markað í maí. Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus, hefur loks staðfest orðróm um að súkku- laðið sé í reynd á leiðinni hingað til lands, en hún segir að fréttirnar af því að þau hafi verið handvalin af Barry Callebaut vera gríðarlega viðurkenningu fyrir fyrirtækið. „Við áttum von á bauninni árið 2019, þegar stendur til að setja hana í almenna sölu, þannig að við vorum alls óundirbúin þegar fulltrúar frá fyrirtækinu komu hingað til lands til að tilkynna okk- ur að við hefðum verið valin,“ segir Silja og viðurkennir að mikill handagangur hafi verið í öskjunni síðan tíðindin bárust. „Það má eiginlega segja að það sé allt búið að vera á hliðinni og við nánast ekki búin að sofa. En að öllu gamni slepptu voru þetta óvæntar fréttir og mikill heiður fyrir fyr- irtækið og segir mikið um það traust sem Barry Callebaut ber til Nóa Síríus,“ segir Silja um við- brögð þeirra við tíðindunum. Mun heita Rúbín „Það hefur alltaf verið mikið og gott samstarf milli fyrirtækjanna, en við kaupum allar okkar baunir af þeim. Ég veit að þeir eru mjög hrifnir af vörunum okkar og það er vissulega mikil traustsyfirlýsing að þeir skuli treysta okkur fyrir því að vera einn af fyrstu framleiðendum í heiminum til að framleiða súkkulaði úr bauninni. Það er okkur mikils virði og við erum virkilega stolt. Hér hefur fólk verið vakið og sofið yfir því hvernig við gerum bauninni sem best skil og framleiðum frá- bært súkkulaði úr henni. Við erum búin að fara yfir víðan völl, en súkkulaðið verður kallað Rúbín súkkulaði á íslensku sem er bein þýðing á enska heitinu Ruby. Í raun má segja að þetta sé jafn mikilvægt fyrir Barry Callebaut eins og okkur því þeir eru að setja vöruna á markað núna til sérval- inna fyrirtækja í mjög svo tak- mörkuðu magni. Hvert fyrirtæki hefur svo sína vöruþróun en Nestlé, sem var fyrsta fyrirtækið sem setti Ruby-súkkulaðið á markað, kaus að gera það í gegnum KitKat- vörumerkið, sem er skilgreint sem munaðarvara í Asíu. Þar hefur súkkulaðið fengið frábærar við- tökur og við eigum von á því að ís- lenskir súkkulaðiunnendur eigi eftir að taka þessari nýjung vel enda ekki annað hægt,“ segir Silja og bætir við að það sé bæði svo bragð- gott og fallegt. Sérstaða Íslands mikil „Sérstaða okkar hér á landi er hversu hratt við getum brugðist við og það sem tæki mögulega marga mánuði eða jafnvel ár að þróa víða annars staðar í heiminum er hægt að framkvæma á mun skemmri tíma hér á landi. Þetta vita þeir og hafa ávallt verið hrifin af vöruþró- uninni okkar enda er ég mjög stolt af okkar framúrskarandi vöruþró- unarteymi sem ég stýri.“ Spurð hvenær íslenskir súkku- laðiunnendur geti átt von á súkku- laðinu í verslun segir Silja að það liggi ekki alveg ljóst fyrir. „Við stefnum að því að það verði í sum- ar. Ég get því miður ekki gefið nánari tímasetningar að svo stöddu en súkkulaðið mun koma í valdar verslanir í takmörkuðu magni.“ Ljósmynd/Barry Callebaut Fjórða súkkulaðið Svona lítur Rúbín súkkulaðið út, en það þykir einstaklega fagurt og bragðgott. Silja staðfestir fregnirnar Þau stórtíðindi hafa nú fengist staðfest að Nói Síríus verði þriðji fram- leiðandinn á heimsvísu sem fær að framleiða það sem kallað hefur verið fjórða súkkulaðið. Um er að ræða bleikt súkkulaði úr kakóbaun sem svissneski súkku- laðiframleiðandinn Barry Callebaut hefur eytt undanförnum þrettán árum í að þróa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Staðfestir orðróminn Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus, segir þetta mikla viðurkenningu fyrir Nóa Síríus.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.