Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 66
Hollywood-myndir sem þú hefur gert? „Í betri kantinum, þetta er á pari við Everest að mestu leyti,“ svarar Baltasar. Á Rotten Tomatoes, vefn- um sem tekur saman dóma fjölda kvikmyndagagnrýnenda og finnur út meðaltalsprósentu, sé myndin í 76% þegar litið er til virtustu gagnrýn- enda. „Það er hærra en Everest var með,“ segir Baltasar og að einkunn áhorfenda hafi verið hærri, um 80%. Á vefnum IMdB sé hún ögn lægri en hafa ber í huga að notendur vefjarins þurfa að skrá sig inn á hann til að veita kvikmyndum einkunn. Baltasar bendir á, í þessu samhengi, að flestir skráðir notendur IMdB séu karl- menn, líkt og meirihluti kvikmynda- gagnrýnenda almennt. „Þetta eru 80% karlmenn og 20% konur,“ segir Baltasar um IMdB og að einkunna- gjöfin sé því mjög karllæg. – Þetta kynjahlutfall hefur líka verið gagnrýnt töluvert … „Já og þetta er mjög karl- og strákalægt,“ svarar Baltasar og bendir á að 70-80% kvikmynda- gagnrýnenda séu karlmenn. „Ef að- eins væru teknir kvengagnrýnendur væri myndin á milli 80 og 90% á Rot- ten Tomatoes.“ Slagsíða í gagnrýni Handrit Adrift er byggt á sönnum atburði og segir af ungu pari sem tók að sér að sigla skútu frá Tahítí til San Diego og lenti í versta fellibyl sög- unnar á leiðinni. Konan, Tami Old- ham, lifði af en unnusti hennar, Rich- ard Sharp, drukknaði. Oldham var í 41 dag alein á laskaðri skútunni fyrir opnu hafi, um 1.500 mílur frá landi. Með hlutverk Oldham og Sharp fara Shailene Woodley og Sam Claflin og mæðir mun meira á Woodley í kvik- myndinni. Margir gagnrýnendur eru á því að hún beri myndina uppi með áhrifamikilli frammistöðu sinni, enda þykir hún með hæfileikaríkustu ungu leikkonum Hollywood nú um stundir. Baltasar segir konur hafa verið um 69% þeirra sem sáu myndina fyrstu helgina. „Þær eru sterkari áhorf- endahópur og hrifnari af myndinni á heildina litið, þó karlar séu margir mjög hrifnir af henni líka,“ segir hann og því skjóti það skökku við hversu fáar konur séu í hópi gagn- rýnenda. „Það er mjög mikil slagsíða á þessu,“ segir Baltasar og að mik- ilvægt sé að tala um þennan kynja- halla ef jafnrétti eigi að nást. Lagt upp með spurningar – Þessa góðu aðsókn hlýtur að mega þakka að miklu leyti því að þú ert með þessa ungu og hæfileikaríku leikkonu? „Já, bæði það og líka að auglýs- ingaherferðin hefur gengið vel og kveikt áhuga á myndinni. En það er ákveðin hindrun að myndin fjallar um tvær manneskjur á báti og fólk áttar sig á því hvað getur gerst,“ svarar Baltasar. Í tilviki Adrift getur hver sem er í raun kynnt sér hvað gerðist og kvik- myndahandritið er að auki byggt á bók sem Oldham skrifaði um þessa skelfilegu lífsreynslu sína. Búið var að leggja drög að handritinu þegar Baltasar tók að sér að leikstýra kvik- myndinni og var ákveðið að fara þá leið að hafa söguna tvískipta. Annars vegar er rakin sagan af því hvernig Oldham og Sharp kynntust og urðu ástfangin og hins vegar af óveðrinu sem þau lentu í á leið sinni til San Diego og lífsbaráttunni sem fylgdi í kjölfarið. „Kvikmyndin byrjar á því að kona er ein úti á hafi, báturinn er að sökkva og spurningin er hvernig hún endaði ein 1.500 mílur frá landi, á hvaða mann hún er að hrópa og hvernig hún kemst þaðan. Við leggj- um upp með þessar spurningar og í atriðunum á milli fást svör við þeim,“ útskýrir Baltasar. Áskoranir við hvert horn  Kvikmynd Baltasars Kormáks, Adrift, var sú þriðja tekjuhæsta yfir frumsýningarhelgi í Banda- ríkjunum  Konur í meirihluta áhorfenda en minnihluta gagnrýnenda  Tvískipt frásögn ýmist sögð það besta eða versta við myndina  Adrift þegar verið seld á heimsvísu fyrir 21 milljón dollara Ljósmyndir/STX Á sjó Baltasar Kormákur einbeittur við tökur á kvikmyndinni í fyrra. Tökur fóru fram á sjó nærri Fídjíeyjum og í mánuð á Nýja-Sjálandi. Raunsæisleg nálgun leikstjórans hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum vestanhafs. VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Baltasar Kormákur er aftur kominn í sveitasæluna í Skagafirði eftir langa og stranga törn í Bandaríkjunum við kynningar og viðtöl vegna nýjustu kvikmyndar sinnar, Adrift, sem frumsýnd var vestanhafs 1. júní og fór í almennar sýningar hér á landi í gær, 13. júní. Baltasar hefur ekki tölu á því hversu mörg viðtölin eru orðin og segir þennan hluta leik- stjórastarfsins taka töluvert á. „Ég segi stundum að það sé erfiðara að frumsýna myndirnar en að búa þær til,“ segir hann sposkur, „þetta er öðruvísi álag og fer undir skinnið á manni.“ Baltasar segir Adrift hafa verið selda til dreifingar og sýninga á heimsvísu fyrir 21 milljón dollara og fyrir vikið geti framleiðendur andað rólegar en ella hvað kynningarmál varðar. Og ekki er hægt að kvarta yf- ir aðsókninni að myndinni í Banda- ríkjunum yfir frumsýningarhelgi, 1.-3. júní en Adrift var þá þriðja tekjuhæsta kvikmynd bíóhúsanna og tekjuhæst af þeim sem voru frum- sýndar þá helgi. Miðasölutekjur af Adrift námu 11,6 milljónum dollara, um 1,23 milljörðum króna. Baltasar segir framleiðendur myndarinnar hafa spáð því að Adrift myndi skila 7-11 milljónum dollara í miðasölu fyrstu sýningahelgina og gerði hún gott betur. „Þetta var í betri kantinum,“ segir Baltasar hóg- vær og að kvikmyndin hafi verið ein þriggja þá helgi sem fóru í svokallaða „wide release“, þ.e. mestu mögulegu dreifingu í Bandaríkjunum, og hafi skilað langmestu í miðasölu af þeim þremur. Karlar í miklum meirihluta – Hvernig hafa viðtökurnar verið við Adrift í samanburði við aðrar 66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 SUZUKI SX4 S-CROSS COMFORT PLUS Bensín, sjálfsk. eyðsla aðeins 5,7. Mjög vel útbúnir. Verð aðeins 4.490.000 Rnr.248362. 562 1717 Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is bilalif.is Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum NÝ R B ÍLL 4X4 Enn eru hræringar kringum Sænsku akademíuna (SA) sem velur Nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum því saksóknari í Svíþjóð hefur ákært Jean-Claude Arnault, eiginmann fyrrum meðlims akademíunnar, fyr- ir tvær nauðganir. Frá þessu greinir á vef Sænska útvarpsins (SVT). „Að mínu mati eru sönnunargögnin þess eðlis að ég tel allar líkur á því að hann verði dæmdur,“ segir Christina Voigt saksóknari. Samkvæmt frétt á vef Guardian er um að ræða tvær nauðganir á sömu konunni í október og nóvember 2011. Haft er eftir Voigt að í öðru tilvikinu hafi konan verið sofandi þegar henni var nauðg- að, en í hinu tilvikinu hafi hinn ásak- aði beitt ofbeldi til að ná fram vilja sínum. Verði Arnault fundinn sekur um nauðgun gæti hann átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. „Umbjóðandi minn er bæði sleg- inn og uppgefinn,“ segir Björn Hur- tig, lögmaður Arnault. Hefur hann eftir Arnault að ásakanirnar séu til- hæfulausar og hann saklaus með öllu. „Það er óheyrilegt áfall að vera ásakaður um svona athæfi. Þessar meintu ásakanir eru komnar til ára sinna og ekki studdar neinum áþreif- anlegum sönnunargögnum.“ Þessu er Elisabeth Massi Fritz, lögmaður konunnar, algjörlega ósammála. „Það er heilmikið til af sönnunargögnum sem lögð verða fram fyrir dómi.“ Voigt saksóknari tekur undir þetta og hefur enga trú á að dómsmálið muni einungis snúast um orð þolandans á móti orði ofbeld- ismannsins. Hún hyggst kalla a.m.k sjö vitni fyrir dóminn. Arnault er kvæntur Katarinu Frostenson sem fyrr á árinu vék sæti úr akademíunni í kjölfar harð- vítugra deilna innan hennar um það hvernig taka skyldi á ásökunum þess efnis að Arnault hefði áratugum saman beitt konur kynferðislegu of- beldi, en í nóvember sl. stigu 18 kon- ur fram og lýstu reynslu sinni í Da- gens Nyheder. Málið hefur leitt til djúprar krísu innan SA sem neyddist til að fresta afhendingu Nóbelsverð- launanna í ár. silja@mbl.is AFP Ásakanir Hjónin Katarina Frosten- son og Jean-Claude Arnault. Arnault ákærður fyrir tvær nauðganir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.