Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 70

Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 70
AF LISTUM Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Ég hef alltaf átt í ástar-haturs- sambandi við tískuna. Ég elska hana af því að ég elska liti, lita- samsetningar, falleg snið sem fegra fólk, elska efni og áferðir, elska að snerta. Um leið hef ég ill- an bifur á tískunni því hún breytir fólki í sauði sem allir klæðast eins, hlaupa á eftir tiktúrum án þess að hugsa sjálfstætt og móta eigin smekk. Og hvers vegna get- ur tískan haft áhrif á fegurðar- skyn mitt? Hvernig getur hún lát- ið mér finnast eitthvað fallegt sem mér fannst ljótt fyrir tveimur ár- um? Þess vegna fíla ég Daniel Lis- more. Fyrrverandi fyrirsæta sem notar tískuna í öfugum tilgangi; til að fara sínar eigin leiðir; ekki vera sauður heldur forystusauður, og fyrir það er hann dýrkaður og dáður af öllum tískumógúlum heims. Lifandi listaverk „Daniel, hvað er það við hvern hlut, flík, efni sem gerir það að verkum að þú vilt nota það, klæðast því?“ „Litir, áferð, lögun, útlínur heilla mig. Ég mála með efni, lík- ami minn er striginn.“ Lismore er lifandi listaverk. Á hverjum degi klæðir hann sig upp í ótrúlegustu dress. Við stærri viðburði klæðist hann lista- verkunum sínum; fataskúlptúrum sem samansettir eru af einstakri natni, nostursemi, hugmyndaflugi og listrænu úr ótal efnum og aukahlutum alls staðar að í heim- inum. Ekkert er honum heilagt, ekkert óheilagt; Mikki mús, Lenín og Jesús á krossinum sem íturvax- in kona hanga hlið við hlið á ein- um skúlptúrnum. Hvað eru mörg trúarbrögð í því? Fram til 17. júní eru 38 skúlp- túrar Daniels Lismore til sýnis í Hörpu á Listahátíð í Reykjavík, svo unun er á að horfa – og smá klikkun líka. Yfirskrift sýningar- innar er tilvitnun í Oscar Wilde, Með tískuna að vopni annan lundúnískan áhrifavald: „Be yourself – everyone else is already taken.“ Lismore lifir eftir því og vonar að sýningin opni augu sýn- ingargesta fyrir þeim möguleika. Áhrif æskunnar Lismore er yndislega hógvær, smá feiminn og honum liggur lágt rómur þar sem hann gengur á milli skúlptúra sveipaður efnum, fagurlega málaður með inn- rammað andlit og segir sögu sína og verkanna sinna. Sem börn eru Englendingar bombarderaðir með sögulegu efni heimveldisins; riddarar og Viktor- íutímabilið. Sem krakki hafi hann strax tekið eftir að fólk var á viss- an hátt ennþá að klæða sig jafn stíft og þá; í sérsniðnum fötum og hálfgerðum einkennisbúningum, og hann hafi aldrei langað að taka þátt í því. „Mamma segir að ég hafi allt- af verið svona.“ Hann yppir öxl- um. Sem ung hávaxin og snoppu- fríð fyrirsæta velktist Lismore um í tískuheimi Lundúnaborgar, um- gekkst alla helstu hönnuðina, djammaði með kvikmyndastjörn- um og tónlistaríkonum pönksins og bresku nýbylgjunnar. Hann vann hjá Vogue og hætti að vinna hjá Vogue. Hann fékk ekki að vera hann sjálfur, hann klæddi sig víst ekki rétt. Allt í einu var hann lentur á séns með lækni og kom- inn til Masai-ættbálksins í Kenía. Ekkert sem hann var, hafði séð eða stóð fyrir í lífinu var til í þeim heimi. Hans heimur var ekki til. Efni á efni ofan, ein flík yfir aðra, töskur, skartgripir, trúar- tákn, fornmunir, hattar og höfuð- föt; gardínurnar hennar mömmu, eigin rúmföt, dót úr Primark, af götumörkuðum, IKEA, munir úr eigu ríks sérvitrings, efni og flík- ur frá Vivienne Westwood, Mal- colm McLaren, Steve McQueen, hattar frá Boy George, föt og aukahlutir sem hann hefur hann- að fyrir Nicki Minaj. Taílenskur silkijakki, afganskt brúðarfat, skartgripir og efni frá Masai- fólkinu. Þúsundir hluta umbreyt- ast í höndum Lismore í líkneski sem minna á japanskar geisjur, hermenn, drottningar... sjálfs- myndir? „Er þetta ekki þungt? Er þér ekki heitt?“ „Nei, ég fékk að gjöf fullt af arabískum bómullarserkjum sem ég er í innan undir. Ef mér hitnar kippi ég aðeins í þá, lofta þannig um og mér líður vel.“ Gott. Stundum veit hann að hann lítur fáranlega út og að fólk muni hlæja að honum, en honum er al- veg sama. Skúlptúrarnir séu á vissan hátt brynja á milli hans og heimsins, hann sé vel varinn. Þannig fari hann út á hverjum degi að mæta heiminum, takast á við hann og reyna að breyta hon- um. Það virkar, segir hann. Fólk geti ekki horft framhjá honum. Stríðsmaðurinn sem hefur alltaf barist fyrir því að fá að vera hann sjálfur og sigrað með glæsibrag berst núna við hlið Vivienne Westwood í „Climate Revolution“ fyrir því að jörðin fái að vera óáreitt fyrir yfirgangi mannanna. Vonandi verður hann jafn sigursæll á því sviðinu. Fallegir heimar mætast Lismore er um þessar mundir að hanna búninga fyrir Konung- legu bresku óperuna. Maður get- ur rétt ímyndað sér óperusöngv- arana í þessum ofhlöðnu skúlptúrum, sem eru tilvitnun í líf hans sjálfs, mannlífsins og mann- kynsins alls. „Þú hefur skapað þinn eigin heim sem nú er að fara að mæta öðrum heimi?“ „Já, þetta er heimurinn minn,“ segir hann og lítur svo út um gluggann á Esjuna, sem virð- ist allt í einu eitthvað svo ósköp berskjölduð og daufleg á að líta þar sem hún húkir á sínum stað undir fölgráum Reykjavíkurhimn- inum. „Sjáðu, þarna úti er annar heimur. Algjör andstæða míns, en líka svo fallegur.“ Við lítum aftur skúlptúrana, aftur á Esjuna. Já. Algjörlega dásamlegt. »Ekkert er honumheilagt; Mikki mús, Lenín og Jesús á kross- inum sem íturvaxin kona hanga hlið við hlið á einum skúlptúrnum. Bleikur Kristalsefni og fjaðrir. Gull Kóktappar og dauð dýr. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Brynjaður Á hverjum degi klæðir listamaðurinn Daniel Lismore sig í listaverkin sín; ofhlaðna fataskúlptúra. MorgunblaðiðHilo Gulur Vatnaliljur og broskall. 70 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50 tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi mannslíkamans ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is . Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum. Arctic Star Sæbjúgnahylki Sæbjúgu eru þekkt fyrir: • Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu líkamans gegn ýmsum sjúkdómum • Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlíns

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.