Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 72

Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Þrjú ár eru liðin síðan skemmtigarð- urinn Júraheimurinn varð að leggja upp laupana vegna þess að risaeðl- urnar sluppu og byrjuðu að éta gesti garðsins. Að þessu sinni er sú staða komin upp að hin fornfræga eyja Isla Nubar er víst farin að spúa eldi og brennisteini, og er einungis tíma- spursmál áður en eldfjall í miðju eyj- arinnar vaknar til lífsins og gerir risa- eðlurnar útdauðar. Aftur. Claire Dearing (Bryce Dallas How- ard), sem var einn af framkvæmda- stjórum garðsins, leiðir nú baráttuna fyrir því að eðlunum sé bjargað af eyjunni og komið fyrir annars staðar, en henni verður lítið ágengt þar til auðkýfingurinn Sir Benjamin Lockwood (James Cromwell með vondum breskum hreim) færir henni allt sem hún vill á silfurfati: nýja eyju, skip og frítt föruneyti til þess að flytja eðlurnar þangað. Þeirra á meðal eru tölvunördinn Franklin Webb (Justice Smith) og dr. Zia Rodriguez (Daniella Pineda), sem er „forndýralæknir“ ásamt að vera fyrrverandi meðlimur í landgönguliði Bandaríkjanna. Enn þarf þó að sannfæra Owen Grady (Chris Pratt) um að koma og bjarga vinkonu sinni, „góðu“ snareðl- unni Blá, sem enn mun ráfa villt um Isla Nubar. Á pappírnum hljómar þetta eins og uppskrift að bara fínustu poppkorns- mynd, sem fær að rúlla og skilur lítið eftir sig. Og jú, fram að hléi er Júra- heimurinn svo sem ágætis heilalaus skemmtun. En í seinni hálfleik fer allt úrskeið- is. Myndin skiptir algjörlega um tón, og í staðinn fyrir ævintýri meðal risa- eðlanna á eyjunni Isla Nubar fá menn einhvers konar tilraun til þess að búa til Bond-spennumynd á einhverju herrasetri lengst inni í landi, þar sem vondir milljarðamæringar mæta á uppboð til þess að kaupa sér eins og eitt stykki forsögulegt drápstól. Þá má alveg nefna það að líkt og í fyrri myndinni um Júraheiminn eru kvenhetjurnar helst til óspennandi. Claire hleypur þó ekki lengur um á háum hælum, en hlutverk hennar er enn að miklu leyti það að öskra og láta bjarga sér. Rodriguez, sem fellur í staðalmyndina „hörð kona af róm- önskum uppruna“, fær ekki mikið betri meðferð í handritinu, þrátt fyrir að skarta doktorstitli. Þá hefði gamla brýnið Jeff Goldblum alveg mátt fá fleiri mínútur á skjánum. Höfuðsynd kvikmyndarinnar er þó sú að hún verður á köflum hálf- óspennandi. Tæknibrellurnar virka á köflum ósannfærandi, sem kemur ör- lítið á óvart miðað við það hversu mikið hefur verið lagt í þennan þátt í fyrri myndunum. Þá má segja að at- riðið sem leggur í raun línurnar fyrir þriðju myndina í þríleiknum var svo klaufalega framkvæmt að það varð óvart fyndið. Þetta skrifast að mestu leyti á handrit myndarinnar, þar sem höf- undarnir virðast hafa verið í stökustu vandræðum með það hvernig þeir ætluðu að leggja á borðið fyrir fram- haldsmyndina, sem mun vera vænt- anleg árið 2021. Júraheimurinn: Fallna konungs- ríkið er því að nánast öllu leyti mikill eftirbátur fyrri myndarinnar í þrí- leiknum, að ekki sé minnst á upp- haflega Júragarðinn, sem í ár fagnar 25 ára afmæli sínu. Það er pínu synd að ekki tókst að gera betri „afmælis- gjöf“ en þessa mynd. Gröm eðla Líkt og fyrr eru risaeðlurnar í aðalhlutverki í Júraheiminum. Hér lætur grameðla (Tyrannosaurus Rex) aðalhetjurnar finna fyrir sér. Hugmynda- snautt innlegg Laugarásbíó, Sambíóin, Smára- bíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri Jurassic World: Fallen Kingdom bbmnn Leikstjóri: J. A. Bayona. Handrit: Colin Trevorrow og Derek Connolly. Aðal- hlutverk: Chris Pratt, Bryce Dallas How- ard, Rafe Spall, Justice Smith, Daniella Pineda, James Cromwell, Toby Jones, Ted Levine, B. D. Wong, Isabella Ser- mon, Geraldine Chaplin og Jeff Gold- blum. Bandaríkin 2018, 128 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Bandaríski sagn- fræðingurinn Drew Gilpin Faust hlýtur John W. Kluge- verðlaunin í ár en þau eru veitt annað hvert ár af Library of Con- gress í Wash- ington D.C. fyrir framúrskarandi afrek á sviði hug- vísinda. Verðlaunaféð nemur einni milljón dala, um 106 milljónum króna, en verðlaunin, sem fyrst voru veitt árið 2003, eru veitt af- reksfólki á sviði sem Nóbels- verðlaunin ná ekki yfir. Faust, sem er sjötug að aldri, er forseti Har- vard-háskóla og fyrsta konan sem leiðir hinn sögufræga skóla. Hún er höfundur sex bóka um tíma borg- arastyrjaldarinnar vestanhafs seint á nítjándu öld, þar á meðal Mothers of Invention: Women of the Slave- holding South in the American Civil War (1996) og This Republic of Suffering: Death and the American Civil War (2008). Í reglum verðlaunanna er tekið fram að verðlaunahafar þurfi með verkum sínum að hafa haft áhrif út fyrir skólasamfélagið. Meðal fyrri verðlaunahafa eru heimspeking- arnir Jürgen Habermas og Charles Taylor, sagnfræðingarnir Peter Brown og John Hope Franklin, og félagsfræðingurinn Fernando Henrique Cardoso, fyrrum forseti Brasilíu. Drew Gilpin Faust Drew Gilpin Faust hlýtur Kluge-verðlaunin Vargur 16 Morgunblaðið bbbmn IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 20.00 Svanurinn 12 Afvegaleidd níu ára stúlka er send í sveit um sumar til að vinna og þroskast. Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 18.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 22.00 101 Reykjavík Metacritic 68/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 20.00 Síðasta áminningin Mynd þar sem sjálfsmynd og hugarfar Íslendinga er skoðað út frá sögu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og rætt er við þrjá leikmenn liðsins og aðra þjóðþekkta einstaklinga. Bíó Paradís 20.00 On Body and Soul 12 Metacritic 77/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 22.00 In the Fade 12 Metacritic 64/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 22.00 The Big Sick Metacritic 86/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 17.45 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins þurfa Owen og Claire að bjarga risaeðl- unum frá útrýmingu. Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.25 Sambíóin Álfabakka 16.45, 19.30, 21.30, 22.15 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 19.40 Smárabíó 16.10, 16.45, 19.40, 22.10 Háskólabíó 17.50, 20.50 Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.00 Ocean’s 8 Debbie Ocean safnar saman liði til að fremja rán á Met Gala-samkomunni í New York. Metacritic 60/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 16.50, 17.40, 19.10, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 21.10, 22.00 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.20 Terminal 16 Myndin fjallar um tvo leigu- morðingja, forvitna þjón- ustustúlku, kennara og hús- vörð sem býr yfir hættulegu leyndarmáli. Metacritic 26/100 IMDb 5,2/10 Sambíóin Kringlunni 19.00 Adrift 12 Myndin fjallar um unga konu, Tami sem þarf að tak- ast á við mótlæti eftir að skúta sem hún og unnusti hennar sigldu gjöreyðilagð- ist í 4. stigs fellibyl. Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 17.50, 20.00, 22.10 Smárabíó 17.40, 19.10, 20.00, 21.30, 22.20 Háskólabíó 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30, 21.30 Avengers: Infinity War 12 Avengers og bandamenn þeirra verða að vera klárir í að fórna öllu til að sigra hinn öfluga Thanos. Metacritic 68/100 IMDb 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.40 Sambíóin Egilshöll 17.00 I Feel Pretty 12 Höfuðmeiðsl valda því að kona fær ótrúlega mikið sjálfstraust og telur að hún sé ótrúlega glæsileg. Metacritic 47/100 IMDb 4,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 20.00 Bókmennta- og kartöflubökufélagið Metacritic 64/100 IMDb 7,1/10 Háskólabíó 18.10 Draumur Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Laugarásbíó 17.40 Smárabíó 15.10, 17.10 Pétur Kanína Pétur reynir að lauma sér inn í grænmetisgarð nýja bóndans og þeir há mikla baráttu. Smárabíó 14.50 Lói – þú flýgur aldrei einn Morgunblaðið bbbbn Smárabíó 15.30 Víti í Vestmanna- eyjum Myndin fjallar um strákana í fótboltaliðinu Fálkum sem fara á knattspyrnumót í Vestmannaeyjum. Morgunblaðið bbbbn Sambíóin Álfabakka 17.40 Midnight Sun Metacritic 38/100 IMDb 6,4/10 Myndin fjallar um 17 ára gamla stelpu, Katie. Hún er með sjaldgæfan sjúkdóm sem gerir hana ofur- viðkvæma fyrir sólarljósi. Sambíóin Álfabakka 22.20 Sambíóin Kringlunni 16.40 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 62/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 16.50, 19.40, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 16.40, 19.30, 22.20 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.30 Solo: A Star Wars Story 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há- lendi Íslands þar til mun- aðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Laugarásbíó 17.40, 20.00 Smárabíó 17.40, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.30 Bíó Paradís 18.00 Deadpool 2 16 Eftir að hafa naumlega komist lífs af í kjölfar nautgripaárásar á afmynd- aður kokkur ekki sjö dag- ana sæla. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 66/100 IMDb 8,1/10 Laugarásbíó 22.10 Smárabíó 20.00, 22.30 Háskólabíó 20.40 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.