Fréttablaðið - 13.10.2018, Page 36

Fréttablaðið - 13.10.2018, Page 36
Ofnbakað rósakálið er dásamlegt meðlæti og inniheldur m.a. beikon, parmesanost og mozzarella ost. Flestir þekkja einkenni háls-bólgu en henni fylgja særindi í hálsi, kyngingarerfiðleikar, hiti og roði í hálsi,“ segir Þórhildur Edda Ólafsdóttir, sölufulltrúi hjá Artasan. „Strefen munnúði er nýtt lyf gegn særindum í hálsi sem fæst án lyfseðils í næsta apóteki. Strefen munnúði inniheldur flurbiprofen sem hefur öfluga verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyðandi verkun,“ bætir hún við. Strefen er notað til að draga tímabundið úr einkennum óþæginda í hálsi eins og eymslum, verk og bólgu í hálsi ásamt erfiðleikum við að kyngja hjá fullorðnum 18 ára og eldri. Þrír úðar eru 1 skammt- ur, úðið þrisvar sinnum aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, hámark 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Forðist að anda inn á meðan úðað er. Strefen munnúði byrjar að verka eftir tvær mín- útur, eftir aðeins fimm mínútur hafa kyngingar- erfiðleikar marktækt minnkað og minnkunin varir í allt að 6 klst. Sýnt hefur verið fram á að stakur skammtur af Strefen munnúða sem er gefinn staðbundið í hálsi dragi úr eymslum í hálsi þar á meðal bólgu og þrota í sárum hálsi. Strefen tilheyrir flokki bólgu- eyðandi lyfja, það má ekki nota Strefen samhliða öðrum bólgu- eyðandi lyfjum. Ert þú með hálsbólgu? Hálsbólga er mjög algeng og leggst á alla aldurshópa. Hálsbólga getur verið vegna veiru- eða bakteríusýkingar einnig getum við fengið hálsbólgu í tengslum við flensu. Þórhildur Edda Ólafsdóttir, sölufulltrúi hjá Artasan. Nýtt Fæst í næsta apóteki l Munnúði gegn særindum í hálsi l Bólgueyðandi og verkjastillandi l Verkar eftir 2 mínútur og varir í allt að 6 klukkustundir l Fyrir 18 ára og eldri l Mintu- og kirsuberjabragð Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3‑6 klst. fresti eftir þörfum, að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.v Strefen munnúði byrjar að verka eftir 2 mínútur. Matarmikil kjúklingasúpa með grænkáli og baunum 3 msk. olía 2 bollar smátt skorinn laukur 1 bolli smátt skorið sellerí 2-3 bollar smátt skorið blöðrukál (annars hvítkál) 4 hvítlauksgeirar, maukaðir með hvítlaukspressu 8 bollar kjúklingasoð 3-4 bollar eldaður kjúklingur 2 dósir hvítar baunir (cannellini), hreinsið vel undir köldu vatni 1 msk. þurrkuð steinselja 1 tsk. þurrkað óreganó 1 tsk. salt 1 tsk. svartur pipar 4 grænkálsblöð. Skerið stilka af og saxið í litla bita 1 bolli kúrbítur, saxaður í litla munnbita 1 msk. sítrónusafi (má sleppa en frískar upp á bragðið) Setjið olíu í stóran pott og bætið út í lauknum og selleríinu. Steikið létt í nokkrar mínútur eða þar til orðið mjúkt. Hrærið reglulega. Bætið blöðrukálinu út í og steikið í um 3 mín. eða þar til það er mjúkt. Bætið hvítlauknum út í og hrærið rólega í 1-2 mín. Næst er kjúklinga- soði, kjúklingi, baunum, steinselju, óreganó, salti og pipar bætt út í og látið sjóða í um 5 mín. Að lokum er grænkálinu, kúrbítnum og sítrónu- safanum bætt út í og látið sjóða í 2 mín. Smakkið til með salti, pipar og meira af þurrkuðu kryddjurt- unum. Súpan geymist í ísskáp í 5-7 daga og hægt er að frysta afganginn. Gott brauð og smjör fer vel með súpunni. Einfaldar súrar gúrkur Það er afar einfalt að sýra græn- meti, t.d. gúrkur. Súrar gúrkur fara vel með mörgum mat, t.d. rúgbrauði og kæfu, grilluðum og steiktum pylsum, með hamborgar- anum og í alls kyns salöt og með- læti, t.d. kartöflusalat og remúlaði. Hér er einföld uppskrift af súrum gúrkum sem er góð fyrir byrjendur. Dugar fyrir þrjár meðalstórar krukkur 3 gúrkur 1 lítill laukur 1 bolli hvítvínsedik 1 bolli borðedik 1 bolli sykur 3 msk. gróft salt 1 tsk. fennelfræ 1 tsk. piparkorn 2 tsk. sinnepsfræ 1 tsk. kóríanderfræ Takið fram þrár meðalstórar krukkur og sjóðið í nokkrar mín- útur (lokin líka). Setjið til hliðar á hreint viskustykki. Gúrkurnar eru sneiddar þunnt, laukurinn er saxaður smátt og þessu blandað saman. Setjið í pott borðedik og hvítvínsedik, sykur, saltið, sinn- eps-, kóríander- og fennelfræin og piparkornin. Látið suðuna koma upp. Skiptið gúrku- og laukblönd- unni í krukkurnar og hellið edik- blöndunni yfir þannig að vökvinn nái yfir gúrkurnar. Lokið og setjið í ísskáp. Geymist í nokkrar vikur. Ofnbakað rósakál Fátt er vanmetnara í þessu lífi en blessað rósakálið. Allt of margir eiga misgóðar minningar um mauksoðið rósakál úr barnæsku en það er hægt að elda á svo marga spennandi vegu, ekki síst sem spennandi meðlæti með ýmsu kjöti og fiski. Hér kemur sælkera- bomba Fyrir 6-8 manns sem meðlæti. 300 g beikon, skorið í bita 2 msk. smjör 1 kg rósakál. Takið ystu blöðin, skerið af stilkinum og skerið í tvennt) Salt og pipar 5 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 400 ml rjómi 1½ tsk. maizenamjöl ⅓ bolli rifinn mozzarella ostur ¼ bolli parmesanostur Hitið ofninn í 190 gráður. Steikið beikon þar til það er stökkt. Setjið á eldhúspappír. Hellið mestu fitunni af pönnunni (skiljið þó smá eftir). Bræðið smjörið á pönnunni, bætið rósakálinu út í og kryddið með salti og pipar. Hrærið reglu- lega í um 6 mín. Bætið hvítlauk í og hrærið áfram í um mínútu. Næst fer rjóminn í, lækkið aðeins hitann og látið sjóða létt í 3-4 mín. Ef sósan er of þunn má bæta maizenamjöli út í. Bætið beikoni í og blandið öllu vel saman. Hellið í eldfast mót og setjið mozzarella og parmesanostinn yfir allt saman. Bakið í ofni í um 15 mín. eða þar til osturinn er fallega brúnn. Það er gott að strá smá svörtum pipar og ferskri steinselju yfir þegar rétturinn er borinn fram. Skemmtilegar og bragðgóðar tilraunir Margir eru vanafastir þegar kemur að því að nýta grænmeti til matargerðar. Það er þó lítið mál að elda grænmeti á ólíka vegu, hvort sem það er í aðalhlutverki eða sem eitt hráefna í góðum rétti. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 3 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 1 0 4 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 1 2 -1 9 C C 2 1 1 2 -1 8 9 0 2 1 1 2 -1 7 5 4 2 1 1 2 -1 6 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 1 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.