Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Side 2
Hvar og hvenær verður Landsmót UMFÍ haldið? 12.-15. júlí á Sauðárkróki. Verða einhverjar nýjungar á mótinu í ár? Það geta allir sem eru 18 ára á árinu og eldri tekið þátt á landsmótinu. Það þarf ekki að vera á vegum íþrótta- eða ungmennafélags heldur geta allir verið með og tilvalið að setja saman skemmtilegan hóp og mæta til leiks. Landsmótið hefur verið haldið frá 1909 og á sér því langa og mikla sögu. Þetta mót er mjög breytt frá fyrri mótum, með aukna áherslu á þátttöku og fjölbreyttar keppnisgreinar. Auk þess er metnaðarfull skemmtidagskrá þar sem allir í fjölskyldunni ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Í hvaða greinum verður keppt? Þær eru tæplega 40 íþróttir á mótinu, allar þannig gerðar að þetta er stutt og skemmtilegt þannig að hægt sé að taka þátt í fleiri greinum. Dæmi um það er fótbolti þar sem hver leikur er 8 mínútur. Við erum með íþróttagreinar, til dæmis biathalon, sem er blanda af hlaupum og skotfimi, brennó er á dagskránni og svo krolf, sem er blanda af krikket og golfi. Þá verður street-körfubolti í fyrsta skipti ásamt strandhandbolta og strandfótbolta. Við leggjum áherslu á lýðheilsu, skemmtun og sam- veru. Það verður hægt að taka þátt í mörgum greinum og blanda saman, þannig að þú átt að geta sett saman þína eigin dagskrá. Hverju ert þú spenntust fyrir? Það er svo rosalega margt, en mér finnst samsetning landsmótsins mjög spennandi og skemmtileg. Ef þú ert rosa góður í fótbolta getur þú keppt í honum, en þú getur líka komið og fengið kennslu ef þú vilt prófa eitthvað sem þú hefur ekki fengið tækifæri til að prófa áður. Þá heillar mig einnig að geta mætt til leiks með hverjum sem er. Þú gætir mætt og spilað strandblak með ömmu þinni, og mér þykir það vera mesti sjarminn við mótið. Morgunblaðið/Árni Sæberg AUÐUR INGA ÞORSTEINSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Hafa ber í huga þegar frumraun íslenska karlalandsliðsins á heims-meistaramótinu í knattspyrnu er vegin og metin að frammistaða ereitt en árangur annað. Frammistaðan var sannarlega góð, í það minnsta býsna góð í fimm hálfleikjum af sex, baráttan hetjuleg og liðið skildi allt eftir á vellinum, eins og sagt er. Árangurinn, eitt stig í þremur leikjum og neðsta sætið í riðlinum, er hins vegar ekki ásættanlegur. Þetta segi ég ekki til að tala strákana okkar niður. Ég segi þetta til að tala þá upp. Við erum langminnsta þjóðin til að taka þátt í lokamóti HM í 88 ára sögu mótsins og það met verður örugglega aldrei slegið; við verðum strax orðin of- urlítið fleiri þegar liðið snýr aftur á HM eftir fjögur ár í Katar. Það eitt og sér er stórkostlegt afrek, eins og margoft hefur verið bent á. Það er ekki síðra af- rek að fara á þetta stærsta sparksvið í heimi með lið sem samanstendur af leikmönnum sem eru hvergi nálægt stærstu félögum í heimi í stærstu deild- unum. Ég meina, Everton er stærsta félagið sem greiðir íslenskum landsliðs- manni laun. Og skutum við ekki á Everton í þorskastríðinu? Í þessu samhengi getum við verið ánægð með árangurinn í Rússlandi. Eini vandinn er sá að þetta er kolrangt samhengi. Og úrelt. Staðreyndin er sú að íslenska landsliðið komst hér um bil á loka- mót HM fyrir fjórum árum, það komst í átta liða úrslit á EM fyrir tveimur árum og vann riðilinn sinn í forkeppni HM í Rússlandi. Þetta er rétta samhengið. Bættum árangri fylgja auknar kröfur. Með því þurfa og vilja allir íþróttamenn lifa. Fyrir vikið hlýtur að mega hafa þær vænt- ingar til liðs með þetta á afreka- skránni að það hljóti meira en eitt stig á HM; sérstaklega eftir frábær úrslit í fyrsta leik á móti Argentínu. Nígería „Musaði sig upp“ og kom okkur í opna skjöldu en hvers vegna gátum við ekki unnið B-lið Króatíu? Vel má skilja röksemdir um ferska fætur og að varamenn vilji sanna sig og annað slíkt en það breytir ekki því að við urðum fyrir ofan sterkara lið í forkeppninni, A-lið Króatíu. Þess utan hefur lið sem þarf að vinna leik alltaf forskot á lið sem þarf ekki að vinna leik. Það er kjarni málsins. Heimir Hallgrímsson hefur unnið þrekvirki með íslenska landsliðið á um- liðnum árum og ég vona innilega að hann haldi áfram að þjálfa það enda þótt ég óttist að hann geri það ekki. Það verða stórir skór að fylla. Eitt mislíkaði mér þó hjá Heimi í Rússlandi; þegar hann lýsti því yfir í viðtali á RÚV daginn fyrir leik að það yrði engin skömm að tapa fyrir Króatíu. Alveg hárrétt, þannig lagað séð, en svona gera menn eigi að síður ekki! Illskárra er að bera fram afsakanir eftir leik en fyrir. Já, frammistaðan var góð en íslenska þjóðin getur samt ekki litið svo á að árangur íslenska landsliðsins á HM sé ásættanlegur. Ég er handviss um að liðið sjálft gerir það ekki. Og er staðráðið í að gera betur næst! Morgunblaðið/Eggert H dú jú M Æsland? Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Þess utan hefur liðsem þarf að vinna leikalltaf forskot á lið semþarf ekki að vinna leik. Það er kjarni málsins. Ari Stefán von Hammersmark Króatar vinna HM. SPURNING DAGSINS Hverjir vinna HM? Rakel Hanna Guðjónsdóttir Ég held að Belgar vinni, þeir hafa verið sterkir. Ásgeir Sigurðsson Ég held að Króatía vinni Brasilíu í úrslitaleiknum. Elísabet Ósk Ívarsdóttir Ég myndi segja Danmörk. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumynd AFP Auður Inga Þorsteinsdóttir er framkvæmdastjóri UMFÍ og einn skipuleggjenda Landsmóts UMFÍ, sem fer fram á Sauðárkróki í júlí. Hægt er að fá frekari upplýsingar um Landsmót UMFÍ á umfi.is. Þjóðhátíð íþróttanna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.