Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.07.2018, Síða 22
MATUR Það er alltaf gaman að nota fallega hluti í eldhúsinu. Íslenska hönnunarfyrirtækiðMeiður er nú að vinna að kökukeflum í ýmsum útfærslum og viðartegundum en fyrirtækið undirbýr sig nú fyrir Handverkshátíðina á Hrafnagili sem haldin er í ágúst. Falleg kökukefli 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.7. 2018 Nýr veitingastaður var opnaður viðNauthólsvík fyrir skemmstu enBragginn bar & bistró er eins og nafnið gefur til kynna til húsa í nýuppgerðum bragga við víkina. Staðurinn er hugsaður til að sinna útivistarfólki sem þarna fer um auk þess að vera heimavöllur háskólastúdenta, segir Dalmar Ingi Daðason, veitingastjóri á Bragg- anum. „Það hefur vantað stað þar sem nemar Há- skólans í Reykjavík geta fengið góð kjör á mat og drykk á stað sem er líka nálægt þeim. Þetta bætir þjónustuna við háskólanema og þá sem heimsækja Nauthólsvík. Við erum með góðan mat og reynum að hafa hann á góðu verði, það er grunnhugmyndin; að opna stað þar sem all- ir geta komið og notið góðrar stundar,“ segir Dalmar en áhersla er lögð á óformlegan mat á borð við hamborgara, samlokur, salöt og nach- os auk þess sem boðið er uppá barsnarl og smærri rétti. Vegan-réttir eru líka á boð- stólum. Dalmar þekkir háskólastemninguna en hann kláraði eina önn við HR áður en hann tók sér frí til að sinna þessu verkefni. Faðir hans, Daði Agnarsson, er rekstrarstjóri staðarins en hann hefur áður verið með veitingarekstur á Umferðarmiðstöðinni. Horfa til sjávar „Kokkurinn okkar er spænskur en er búinn að búa hérna í níu ár. Maturinn er með spænsku ívafi. Við horfum líka til sjávar enda erum við hér við ströndina og sjóinn. Við erum með fisk og rækjur.“ Háskólanemar fá 20% afslátt og á staðnum er líka nóg af innstungum og USB-tengjum til að hlaða síma og tölvur. Dalmar vonast líka eftir að fá sjó- sundsfólk í heimsókn en hann er sjálfur nýfarinn að stunda sjósund af miklum krafti og líkar vel. „Það er mjög gott að fara í sjóinn, synda aðeins og fara síðan í pottinn. Það eru ótrúlega margir sem stunda þetta, hér iðar allt af lífi alla daga. Hér er góð tenging við ströndina og sjóinn. Líka alla sem búa nálægt eða eru í útivist en hér í kring eru margar göngu- og hlaupaleið- ir.“ Var þekkt sem Hótel Winston Bragginn er sambyggður skemmu sem Bretar byggðu í seinni heimsstyrjöldinni og gekk undir nafninu „Hótel Winston“. Það er Reykjavíkurborg sem hefur staðið að fram- kvæmdum og endurbyggingu á húsnæðinu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík en nem- endaaðstaða og frumkvöðlasetur verða í gömlu skemmunni. Einnig verður opnaður síðsumars eða í haustbyrjun salur þar sem Bragginn getur haft fundaraðstöðu, lítinn veislusal eða pláss fyrir hópa. Útisvæðið er jafnframt stórt og mikið en verið er að leggja lokahönd á það. Heimsmeistaramótið í knattspyrnu er sýnt í sjónvörpum inni en líka er hægt að bæta við skjám úti í tjaldi sem verður uppi að minnsta kosti meðan á keppninni stendur. Yfirkokkur Braggans, Hammadi Buselham, gaf Sunnudagsblaðinu nokkrar uppskriftir sem má sjá hér til hliðar. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Nýtt stopp við ströndina Bragginn bar & bistró er nýr veitingastaður við Nauthóls- vík sem leggur áherslu á að sinna útivistarfólki og vera heimavöllur háskólanema. Á matseðli er óformlegur matur á borð við hamborgara, sam- lokur og salöt í fyrirrúmi auk þess sem boðið er uppá bar- snarl og smærri rétti. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Dalmar Ingi Daðason, veitingastjóri á Bragganum. Búið er að setja upp bekki meðfram langhliðum braggans. Bragginn er beint fyrir ofan ströndina í Nauthólsvík. ’Reykjavíkurborghefur staðið aðendurbyggingu áhúsnæðinu í sam- starfi við HR en nemendaaðstaða og frumkvöðlasetur verða í gömlu skemmunni. Barinn er fyrir endanum og kallast efnisnotkunin og formið skemmtilega á við braggastemninguna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.