Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Qupperneq 2
Hvar verður Innipúkinn haldinn
í ár?
Hátíðin verður haldin í Kvosinni hjá
Gauknum og Húrra. Samhliða því lokum
við Naustinni og verðum með útisvæði
Innipúkans þar sem verða myndlista- og
fatamarkaðir, tónlist og meiri gleði.
Þetta er borgarhátíðarbragur þar sem
við reynum að glæða borgina lífi á þess-
ari helstu ferðahelgi ársins og setja
hana í almennilegt stand fyrir þá sem
kjósa að vera innanbæjar, sem er nátt-
úrulega okkar fólk.
Hvernig hefur hátíðin þróast
frá upphafi?
Við höfum unnið með að breyta ekki því
sem ekki þarf að breyta. Hátíðin verður
með svipuðu sniði og hún hefur alltaf ver-
ið þótt hún hafi flakkað aðeins til. Fyrsta
hátíðin var haldin í Viðey, svo færðist hún
yfir í Iðnó og hefur svo færst á milli staða og
þetta verður fimmta árið okkar í Kvosinni.
Útisvæðið hefur svo sett smá fitu á beinin
með dagskrá og lengir hátíðina. Innipúkinn
hefur alltaf verið svolítið hrokafullur og litið
niður á útihátíðina.
Hver eru helstu númerin á hátíð-
inni í ár?
Við höfum aldrei bundið okkur við neina
ákveðna tónlistarstefnu og leitumst frekar eft-
ir því að hafa breidd, rokk og metal og indí og
popp og raftónlist. Mugison, Prins Póló og
Valdimar munu spila saman tvöfalt sett þar sem
þeir setja sinn blæ á lögin hver hjá öðrum. Svo
verður Svala Björgvins, Sykur, Logi Pedró,
Une Misère og fleiri góðir.
Hvernig er miðunum háttað?
Við getum haldið hátíðinni á viðráðanlegu verði því
staðirnir sjá um allan fastan kostnað. Allri innkomu er
skipt jafnt á milli allra hljómsveitanna sem koma fram og
okkur hefur tekist með aðstoð dyggra stuðningsaðila að
ganga eiginlega ekkert á innkomuna svo hún fer nánast
óspillt til þeirra sem fram koma. Þetta fyrirkomulag
hefur myndað mjög jákvæða stemmningu í kringum
Innipúkann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
ÁSGEIR GUÐMUNDSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Í seinni tíð hefur Ríkissjónvarpið lagt metnað sinn í að sýna þjóðinni vand-aðar heimildarmyndir um tónlist. Í vikunni var ein slík á dagskrá, Égheiti Johnny Cash. Var þar fjallað um feril þessa ólseiga listamanns sem
gerði hið ómögulega á löngum ferli – að gera kántrímúsík svala. Magnaður
maður, mögnuð rödd, magnað líf.
Eins og alltof margir tónlistarmenn lenti Cash í fjötrum fíkniefna; varð
snemma á ferlinum háður amfetamíni. Í myndinni kom fram að upphaflega
hefði hann ekki sóst eftir vímunni, heldur freistast til þess að nota efnið til að
halda sér ferskum og hreinlega vakandi á tónleikum sem hverjir ráku aðra,
kvöld eftir kvöld, í sýslu eftir sýslu. Engar voru þær einkaþoturnar á þeim
tíma, menn óku bara á milli staða, þúsundir kílómetra á viku. Og enginn tími
til að verða illa upplagður og/eða lúinn.
Í myndinni kom fram að amfetamín hefði rutt sér til rúms í Bandaríkj-
unum löngu fyrr, eða um og upp úr 1920, og einn viðmælandinn fullyrti raun-
ar að þjóðin hefði aldrei komist eins
hratt út úr kreppunni miklu hefði
eitursins ekki notið við. Þannig gátu
menn hópum saman unnið tvöfaldar
og þrefaldar vaktir á sólarhring á
fullum afköstum – og rúmlega það.
Ekki fylgdi sögunni hversu lengi
þeir entust þannig en á endanum
hefur líkast til komið að skuld-
ardögum.
Þannig var það alltént hjá Cash.
Hann brann út. Fór frá því að spila
fyrir þúsundir og jafnvel tugþús-
undir á sjöunda og áttunda áratugn-
um yfir í að troða upp fyrir örfáar
hræður á níunda og tíunda áratugn-
um. Reis svo upp undir lok lífs síns
eftir að hinn goðsögukenndi upp-
tökustjóri Rick Rubin blés lífi í fer-
ilinn. Sami gaurinn og skaut Slayer
á sporbaug um jörðu.
Kynslóðin sem kom á eftir Cash, Elvis og þeim ágætu piltum hafði meiri
áhuga á skynörvandi efnum en fá dæmi eru líklega um að menn hafi farið vel
út úr neyslu af því tagi enda þótt eflaust hafi verið stuð um stund.
Kapparnir sem stungu hér við stafni í vikunni, Guns N’ Roses, settu örugg-
lega sitt af hverju tagi ofan í sig á sokkabandsárum sveitarinnar en hafa nú
lokað lyfjaskápnum, alltént Slash og Duff McKagan. Sá síðarnefndi hefur
talað opinskátt um fíkniefnavanda sinn en hann var hér um bil búinn að
drepa sig á neyslu fyrir meira en tuttugu árum þegar hann gegndi læknum
loksins og þurrkaði sig upp. Og keyrir nú gegnum þriggja og hálfs tíma gigg
án þess að blása úr nös.
Munurinn á Duff og Cash er hins vegar augljós; Duff þarf ekki að aka á
milli staða. Honum er flogið. Nei, Þuríður mín, smá djók. Hann fer með flugi.
Ljósmynd/Sony BMG Music Entertainment
Í Cashljósinu
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Í myndinni kom framað amfetamín hefðirutt sér til rúms í Banda-ríkjunum löngu fyrr, eða
um og upp úr 1920, og
einn viðmælandinn full-
yrti raunar að þjóðin
hefði aldrei komist eins
hratt út úr kreppunni
miklu hefði eitursins ekki
notið við.
Sverrir Helgason
Ég hef aldrei borðað morgunmat.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
borðarðu í
morgun-
mat?
Alexander Olsen
Ég fæ ég mér smoothie og banana
og blanda því við Nocco.
Sesselja Jónsdóttir
Ég borða ekki morgunmat.
Eyþór Ingi Guðmundsson
Ekki neitt.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Ásgeir Guðmundsson er einn af skipuleggjendum Innipúk-
ans sem haldinn verður um verslunarmannahelgina. Hægt
er að nálgast miða á tix.is, og afsláttur er veittur á helgar-
armbandi ef greitt er með Kass-appinu.
Púkaleg
stemmning