Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Síða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018 H jartað slær í skútunni Sjófugl- inum þessa dagana hjá Agli og Tinnu en þau eiga þó afdrep á Íslandi þar sem þau hafa vet- ursetu. Úr íbúðinni er að sjálf- sögðu útsýni yfir hafið sem þau unna og hafa kynnst rækilega síðustu fjögur árin, en þau hafa siglt skútu sinni frá vori og fram á haust síðan 2015. Í stuttu stoppi á Íslandi nær blaðamaður í skottið á sæförunum tveimur og fær að heyra sögur af siglingum og hinum ævintýralega nýja lífstíl sem þau njóta til hins ýtrasta. Tímabært að yfirgefa sviðið Gamlir munir og gömul falleg húsgögn prýða annars nýtískulegu íbúðina í Skuggahverfinu hjá Agli og Tinnu. Hjónin sitja í sófa með út- skornu baki og eru komin í stellingar fyrir við- tal. Það er óhætt er að segja að þau hjón hafi skilað góðu dagsverki og lagt sitt á vogarskálar menningar og listar og er nú kominn tími til að njóta lífsins á annan hátt en áður. „Þegar ég lauk mínum skipunartíma sem þjóðleikhússtjóri eftir tíu ár, en þar áður hafði ég starfað sem leikkona við Þjóðleikhúsið í 25 ár, fannst mér kominn tími til að yfirgefa þetta magnaða hús. Mín ástríða hefur allar götur ver- ið leiklistin, en á þessum tímapunkti fannst mér ég geta litið yfir farinn veg og verið mjög sátt við þau tækifæri sem ég fengið og það atlæti sem ég hef notið í starfi mínu bæði sem leikari og leikhússtjóri. Ég var að auki búin að ávinna mér réttindi ríkisstarfsmanna til lífeyristöku, samkvæmt 95 ára reglunni, þannig að ég hafði í raun frelsi til að ráðstafa tíma mínum og það var einmitt það sem ég kaus að gera. Þjóðleikhúsið var í góðum höndum og tímabært að yfirgefa sviðið. Lífið heldur áfram og engin ástæða til annars en að leggja sig fram um að lifa því til fulls og takast á við nýjar áskoranir meðan orka og aldur endast,“ segir Tinna. Egill hefur að mestu skapað sér sín tækifæri sjálfur og verið mikilvirkur í tónlistinni, auk þess að koma við í leikhúsunum og kvikmyndum eins og Tinna. „Þetta eru að verða 44 ár sem ég hef í raun verið á bólakafi í vinnu. Skemmtilegri vinnu auðvitað, en það var oft ekki mikið staldrað við heima og í raun gafst mér ekki tími til að hugsa mikið annað. Það var þó ýmislegt sem hafði ver- ið að gerjast með mér óskylt tónlistinni og ým- islegt sem mig langaði að takast á við og gera í þessu lífi, áður en það yrði of seint. Maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber með sér,“ seg- ir Egill. „Það var ekkert sem beinlínis njörvaði okkur niður, ekkert nema vaninn og föstu skorðurnar. Börnin öll farin að heiman og búin að skapa sér sína eigin hamingju, barnabörnin bara ánægju- auki þegar okkur hentar og mikið annað var í raun ekki að halda í okkur,“ segir Tinna. Hlekkjaður við stýrishúsið „Ég er alinn upp við sjómennsku og umstang í kringum báta, en faðir minn var með útgerð á Skaganum og afi minn var stýrimaður og skip- stjóri framan af ævinni. Þó að ég muni ekki eftir því, þá var ég kominn til sjós tveggja ára gam- all, það voru engir leikskólar á þeim tíma á Akranesi, mamma vann á sjúkrahúsinu og því var ekki um annað að ræða en pabbi tæki mig með í róður. Þetta var lítill dekkbátur og ég var hlekkjaður við stýrishúsið. Síðar fluttum við til Reykjavíkur og pabbi hafði bát í höfninni í Reykjavík. Afi reri með honum og stundum fór ég með. Afi var ótrúlegur fróðleiksbrunnur um allt sem viðkom sjómennsku,“ segir Egill. Hefurðu alltaf kunnað vel við þig á sjó? ,,Já, mér líður vel til sjós. Í mínum draumum sá ég mig á litlu fleyi og lengi vel fletti ég og las í bátablöðum sjóferðasögur af öllu tagi og hafði á einhverjum tímapunkti orðið mér út um skip- stjórnarréttindi, eða pungaprófið. En það var fyrir orð Tinnu að ég lét verða af þessu og við í sameiningu réðumst í að kaupa bát. Það að eiga bát af þeirri gerð sem við erum með kallar á nýjan lífsstíl og felur í sér mikla ábyrgð. Að ann- ast um trébát af þessari stærð er eiginlega fullt starf, ef það á að vera eitthvert vit í þeirri umönnun,“ segir Egill. Aðeins einn bátur kom til greina Þau rifja upp upphafið að ævintýrinu. „Við vorum stödd í Amsterdam og eins og oft- ast þegar við erum í erlendum borgum, röltum við niður að höfninni til að skoða báta og skip. Í Hollandi er úrvalið mikið, enda landið allt sund- urskorið af síkjum og fljótum þar sem bátaum- ferð hefur allan forgang. Ég stakk upp á því að við könnuðum hvað þeir væru með á sölu, þó að við værum á þeim tímapunkti ekki búin að ræða þetta af mikilli alvöru, og við fórum á netið. En úrvalið reyndist mun minna en ætla mætti enda reyndist Egill hafa mjög ákveðnar hugmyndir um nákvæmlega hvernig bát hann vildi eign- ast,“ segir Tinna, og útskýrir að báturinn hafi þurft að uppfylla ýmis skilyrði. „Þetta þurfti að vera eikarbátur, hann átti að vera tveggja mastra, bæði með mótor og segli og á bilinu 40 til 50 fet,“ segir Tinna og Egill bætir við að hann sé mikill áhugamaður um gamla hluti, gömul hús og handverk og því hafi aldrei komið til greina annað en tréskip. „Það var í raun bara einn bátur sem uppfyllti þessi skilyrði á sölulistunum og hann var uppi í Fríslandi sem er nyrst í Hollandi,“ segir Tinna. „Báturinn lá við bryggju í smábænum Lemmer, í um hundrað kílómetra fjarlægð frá Amst- erdam og við ákváðum að skreppa, taka bara lest þangað, en þetta var aðeins flóknara,“ segir hún og brosir. „Það eru engar beinar lestarsamgöngur til Lemmer, fengum við að vita á aðalbraut- arstöðinni, en við gátum tekið lest að öðrum smábæ og svo ferju og loks rútu. Þetta virtist gerlegt, en þegar lestarferðinni var lokið, var ferjan nýfarin og við þurftum að bíða í fleiri klukkutíma eftir þeirri næstu og svo þegar hún kom í höfn var síðasta rútan farin og ekk- ert annað í stöðunni en að leita að gistingu þar sem við vorum komin,“ segir Tinna. Eftir langt ferðalag komust þau þó á leið- arenda og fundu bátinn. „Báturinn var búinn að liggja í höfninni í Lemmer í tvö ár að sögn bátasalans. Núverandi eigandi hafði tekið hann upp í skuld, en aldrei komið því í verk að sigla honum sjálfur. Sá vissi ekkert um bátinn og fyrri eigandi var gjald- þrota og að því er virtist horfinn af yfirborði jarðar. Bátasalinn sagði að við yrðum í raun bara að meta þetta á staðnum,“ segir Egill og útskýrir að reglan sé sú að sögulaus bátur sé verðminni en sá sem á sér sögu. Að kasta sér fram af brún Báturinn heillaði Egil strax og raunar Tinnu líka, en hún segir að sig hafi nánast sundlað við þá tilhugsun að sigla þessum stóra báti, sem var eiginlega lítið skip. „Egill spurði mig með glampa í augunum hvernig mér litist á og ég sagði að hann væri mjög fallegur – ég held reyndar að ég hafi sagt að mér fyndist hann sætur. En svo spurði ég hann hvort hann héldi virkilega að við gætum siglt þessu skipi, bara tvö! Þegar hann svaraði ákveðið; já, ákvað ég bara að trúa því og treysta.“ Blaðamaður nefnir að ef hann stæði frammi fyrir stórri tréskútu, án neinnar siglinga- reynslu, myndi hann ekki vita hvað sneri upp og hvað niður. „Það er það sem er svo skemmtilegt. Að kasta sér fram af brúninni, láta slag standa. Stundum er það eina leiðin,“ segir Egill og nefn- ir að þá sé allt hik og hikst aðeins til þess að manni fatast flugið. „Mér finnst líka gaman að takast á við áskor- anir og þarna stóðum við frammi fyrir stórri og alveg nýrri áskorun og bara spurning um að hrökkva eða stökkva,“ segir Tinna og Egill bæt- ir við: „Eins og í listinni, þar er maður sífellt að kasta sér fram af óþekktum hömrum. Ekkert öryggi er fyrir því að vel takist og að því verður að spyrja eftir á. Það er ekki allra að lifa stöðugt við þannig aðstæður, en við höfum þrifist ágæt- lega í því andrúmslofti. Það eru ekki allir sem átta sig á því. Fólk segir við mig að ég hafi átt velgengni að fagna og vissulega er það satt og rétt, en það eru líka óteljandi mörg verkefnin sem hafa misfarist eða ekki lukkast sem skyldi, þau gleymast gjarnan.“ Tinna segist hafa ákveðið að taka stökkið. „Allt er þetta áhætta, en ég ákvað bara að taka í styrka hönd Egils og trúa á þekkingu hans, getu og innsæi. Ég kyngdi hræðslunni við að verða sjóveik og e.t.v bara dauðhrædd og ómöguleg þegar við yrðum komin út á opið haf í mikinn velting. En þessar áhyggjur reyndust sem betur fer óþarfar, ég hef ekki fundið fyrir sjóveiki,“ segir Tinna. „Og ekki heldur hræðslu.“ „Hún er miklu meiri sjómaður en ég,“ segir Egill, sem segist sjálfur ekki hafa haft mikla þekkingu á seglskipum. „En ég dreif mig á segla-námskeið og svo er þetta bara spurning um að læra af reynslunni og enginn verður fullnuma í þessu fremur en í nokkru öðru fagi. Það á við um okkur bæði, að við höfum sýnt þol- inmæði og fikrað okkur áfam. Við náum sífellt betri og betri tökum á því að sigla skipinu og láta það hlýða okkar stjórn. Mér líður betur á sjó en í landi. Ég er ekki landdýr. Enda er al- gjör kyrrstaða að standa á landi miðað við að vera á sjó þar sem allt er á hreyfingu og mögu- leikarnir eru til allra átta. Þetta er eins og að vera kominn aftur í jóðlífið,“ segir Egill. ,,Þar fór nú heldur betur vel um mann.“ Fljótandi sumarbústaður með sál Tinna segir að þau hafi fengið mann til að taka bátinn út og hann hafi gefið honum góða ein- kunn. Það var skyndiskoðun, en allt sem sást var í góðu lagi. Vélin var nýleg og í toppstandi að því er virtist, sem og annar búnaður. Það var þó ljóst að taka þyrfti bátinn upp og rannsaka kjölinn og allt fyrir neðan sjólínu innan og utan frá. Skoðunarmaðurinn sagði að það fylgdi kaupunum ákveðin áhætta og því ákváðu þau að gera nokkuð lágt tilboð, mun lægra en eigandi vildi fá og voru vonlítil um árangur, enda heyrðu þau ekkert frá bátasalanum fyrr en þremur mánuðum síðar. Þá hringdi hann og spurði hvort þau væru enn tilbúin til að standa við til- boðið. „Þá vorum við stödd á Húsavík, einmitt nýbú- in að fara í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda með einum af þessum fallegu tréskipum þeirra í Norðursiglingu. Við þurftum ekki annað en að horfast í augu í nokkur augnablik og ákvörðunin var í raun tekin á staðnum, þó að við tækjum okkur sólahringsfrest til að svara,“ segir Egill. Í mars vorið eftir fór Egill að sækja bátinn til að sigla honum til Danmerkur og tókst að fá tvo fíleflda og sjóvana Hollendinga til að sigla með sér út í Norðursjóinn og gegnum Kílarskurðinn til Egernsund á Jótlandi, þar sem hann hafði Sjávarloftið eins og kampavín Það hefur aldrei ríkt lognmolla í kringum hjónin og listafólkið Egil Ólafsson og Tinnu Gunn- laugsdóttur en nýlega ákváðu þau að láta drauminn um að sigla um höfin blá verða að veru- leika. Þau fjárfestu í gamalli eikarskútu, seldu timburhúsið sitt í miðbænum og drifu sig út í heim og út á ballarhaf. Þar takast þau á við náttúruöflin og sjálf sig á alveg nýjan hátt. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Við erum bæði ákveðin ogtiltölulega stjórnsöm og þaðhefur gerst í gegnum tíðina aðvið höfum verið ósammála eins og gerist hjá öllum. En úti á sjó treysti ég algjörlega á Egil, þó að ég sé stundum pirruð á því að hann sé að skipa mér fyrir. Þá verður það að vera þannig að það sé einn sem stjórnar. Hann er skipstjórinn.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.