Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Side 15
29.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 samið um að hann yrði tekinn upp í slipp. „Báturinn míglak og við lentum í vondu veðri, samfellt í tvo og hálfan sólarhring, en þetta tókst og báturinn fór í yfirhalningu. Það kom auðvitað ýmislegt í ljós,“ segir Egill og hóf strax endurbætur á skútunni. „Í dag er hann sennilega í betra standi en hann hefur nokkurn tímann verið í 93 ára sögu bátsins,“ segir Egill. „Það þarf að sinna svona bátum, það þarf að sigla þeim. Þeir vilja hafa segl uppi og þeir vilja láta hreyfa sig og það þarf að hugsa hlýlega til þeirra,“ segir Egill sem talar um Sjófuglinn með væntumþykju í röddinni. „Þetta er ekki bara farartæki, þetta er líka fljótandi heimili. Þarna er allt til alls, heitt og kalt vatn, sturta, klósett, ísskápur, ofn, góð kynding og hitablástur í öllum vistarverum og bara að nefna það. Notaleg setustofa og falleg ofanlýsing. Þarna var í raun komið upp í hend- urnar á okkur tækifæri til þess að ferðast og skoða og upplifa en um leið var þetta nýtt heim- ili,“ segir Tinna. „Fljótandi sumarbústaður.“ Er þetta bátur með sál? „Já, hann er smíðaður 1925 og hann er vissu- lega með sál og á sér langa sögu, því komumst við að síðar. Við gengum í danskan trébáta- klúbb og ég setti inn mynd af honum og spurði hvort einhver vissi deili á þessu skipi. Eftir dá- lítinn tíma heyrðum við frá þýskum náunga sem átti svipaðan bát sem hafði verið smíðaður í sömu skipasmíðastöð, í Altenwerder í Þýska- landi. Hans bátur var sömu gerðar en aðeins minni. Hann gat flett honum upp og við fórum að bera saman gamlar myndir og þá kom þetta heim og saman,“ segir Egill. Í kjölfarið kom sérfræðingur frá skipasafninu í Flensburg til að skoða bátinn og sannreyna þessa kenningu sem hann svo staðfesti. „Sjófuglinn hefur þolað ýmislegt á sinni tæp- lega hundrað ára sögu. Hann var upphaflega smíðaður sem fiskiskip, en á níunda áratug síð- ustu aldar var honum er breytt í skemmtibát,“ útskýrir Tinna. Sænski skerjagarðurinn heillar Þegar eikarskútan var sjóklár var bara eftir að selja húsið og leggjast í siglingar, sem þau og gerðu. „Það var komið að því hvort eð var að fara að minnka við okkur eftir 37 ár á sama stað, orðin bara tvö í heimili. Við erum samt ekkert alfarin. Við erum hér yfir vetrarmánuðina, enn sem komið er að minnsta kosti og Egill er auðvitað ekkert hættur að syngja og semja tónlist. Sjálf nýt ég þess að lesa og bæta við mig þekkingu og fór til dæmis í sænskunám og er að klára BA- ritgerðina mína núna. Ég ákvað að skrifa um þeirra mikilvirka kvikmyndahöfund, Ingmar Bergmann, en í ár eru 100 ár frá fæðingu hans. Þetta hefur verið fjölbreytt nám og skemmti- legt, heilmikill lestur, og bókmennta- og sam- félagssaga. Hvað leiklistina varðar, þá verður tíminn bara að leiða í ljós hvort ég stígi aftur á svið eða ekki,“ segir Tinna og virðist mjög sátt við hlutskipti sitt í dag með annan fótinn úti á sjó. Morgunblaðið/Ásdís „Í mínum draumum sá ég mig á litlu fleyi og lengi vel fletti ég og las í bátablöðum sjó- ferðasögur af öllu tagi og hafði á einhverjum tímapunkti orðið mér út um skipstjórnarrétt- indi, eða pungaprófið. En það var fyrir orð Tinnu að ég lét verða af þessu og við í samein- ingu réðumst í að kaupa bát,“ segir Egill. „Þarna var í raun komið upp í hendurnar á okkur tækifæri til þess að ferðast og skoða og upplifa en um leið var þetta nýtt heimili,“ segir Tinna um Sjófuglinn sem er nú þeirra annað heimili. Ljósmynd/Gunnur von Matern

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.