Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Side 24
HEILSA Hörfræolía er rík að omega-3 fitusýrum og er gjarnan notuð afveganistum í stað lýsis. Einnig er hörfræolía góður valkostur fyrir þá
sem sleppa vilja við fiskibragðið sem fylgir lýsi.
Hörfræolía
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018
Omega-3 fitusýrur eru fasturliður í mataræði Íslend-inga. Þar sem fitusýruna
má finna í ríku magni í sjávarfangi
hefur Omega-3 lengi spilað stórt
hlutverk í íslenskum matarvenjum,
en mannslíkaminn framleiðir ekki
fitusýruna upp á eigin spýtur svo ein-
ungis er hægt að fá hana úr fæðu.
Omega-3 hefur einnig lengi verið
notað í heilsueflandi tilgangi, ekki
síst í formi uppáhaldsfæðubótarefnis
Íslendinga: lýsis, en fiskiolía – eins
og lýsi er kallað utan landsteinanna –
er eitt vinsælasta fæðubótaefni í
heimi og veltir fiskiolíubransinn um
30 milljörðum bandaríkjadala, eða
rúmlega 3.000 milljörðum íslenskra
króna, ár hvert.
Jákvæð áhrif Omega-3 á heilsuna
eru vel þekkt, sýnt hefur verið fram á
jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið
auk þess að draga úr verkjum í liðum
og hjálpa við þroska heila- og tauga-
frumna.
Heilsuhraustir inúítar
Á áttunda áratugnum ferðaðist
danski efnafræðingurinn Hans Olaf
Bang til Uummannaq á norð-
vesturströnd Grænlands til að rann-
saka heilbrigði hjarta- og æðakerfis
inúíta, en sögusagnir fóru af að
hjartasjúkdómar væru afar sjald-
gæfir meðal hópsins.
Bang tók á annað hundrað blóð-
prufa í ferð sinni og rannsakaði vel
mataræði inúítanna, sem samanstóð
mestmegnis af fiski og öðru sjáv-
arfangi.
Niðurstöður rannsóknar Bang
voru að mataræði inúíta í Grænlandi
innihéldi mikið af omega-3 fitusýrum
og að magn omega-3 í blóði var tölu-
vert meira en á Vesturlöndum, auk
þess að hjarta- og æðasjúkdómar
voru mun sjaldgæfari en á Vest-
urlöndum. Í kjölfar rannsóknarinnar
setti Bang fram tilgátuna að omega-3
gæti minnkað hættuna á hjarta- og
æðasjúkdómum
Síðari rannsóknir studdu tilgátu
Bangs með því að sýna meðal annars
fram á að omega-3 hefði bólgueyð-
andi áhrif.
Fylgni eða orsakasamhengi
Hinsvegar þótt sýnt hafi verið fram á
fylgni milli neyslu omega-3 og
hjartasjúkdóma, hefur ekki náðst að
sýna fram á orsakasamhengi milli
þess.
Í vikunni greindi breska dagblaðið
The Guardian frá því að samkvæmt
nýrri frumrannsókn – sem er rann-
sókn á fyrri rannsóknum um efnið –
frá Cochrane, samtökum sem safna
og meta læknisfræðilegar rann-
sóknir fyrir almenning, sem sýnir
fram á að þótt omega-3 fitusýrur hafi
á margan hátt jákvæð áhrif á heils-
una, sé ekki hægt að sýna fram á or-
sakasamhengi milli neyslu á omega-3
fæðubótaefnum og hjarta- æða- eða
kransæðavandamála.
Í rannsókninni voru skoðaðar 79
tilraunir þar sem helmingi þátttak-
enda var gefið fæðubótarefni og hin-
um helmingnum lyfleysa, en fylgst
var með þátttakendum yfir ákveðinn
tíma. Þátttakendur í tilraununum
voru 112.059.
Góð fita og slæm
Omega-3 er fjölómettuð fitusýra, en
einnig má finna slíkar fitusýrur í sól-
blómaolíu, sem rík er af omega-6
fitusýrum. Fjölómettaðar fitusýrur
eru svokallaðar nauðsynlegar fitu-
sýrur (e. essential fats), sem þýðir að
líkaminn geti ekki starfað án þeirra,
en líkaminn notar fituna meðal ann-
ars í framleiðslu frumuhimna og í
hreyfingu vöðva. Vegna jákvæðra
áhrifa fjölómettaðra fitusýra á líkam-
ann hafa þær oft verið kallaðar „góð“
fita.
Einómettaðar fitusýrur eru annað
dæmi um svokallaða „góða“ fitu, en
hana má finna í avókadó, ólífuolíu, og
hnetum, en einómettuð fita er undir-
staðan í hinu sívinsæla Miðjarð-
arhafsmataræði.
Árið 1956 hóf lífeðlisfræðingurinn
Ancel Keys það sem átti eftir að
verða gríðarlega áhrifamikil rann-
sókn á sambandinu milli lífsstíls og
hjartasjúkdóma. Rannsóknin fór
fram í sjö ríkjum, og dregur af þeirri
staðreynd nafn sitt: sjö ríkja rann-
sóknin, Bandaríkjunum, Finnlandi,
Hollandi, Ítalíu, Grikklandi, Japan
og fyrrverandi Júgóslavíu. Bentu
niðurstöður rannsóknarinnar til þess
að í löndum þar sem neysla á mett-
aðri fitu – sem finna má í rauðu kjöti,
nýmjólk og ostum er mikil – sé blóð-
fita að meðaltali meiri, og að jákvæð
fylgni sé á milli mikillar blóðfitu og
hjarta- og æðasjúkdóma.
Samkvæmt rannsókninni neyttu
Japanar minna magns af mettaðri
fitu, auk þess voru hjartasjúkdómar
afar sjaldgæfir. Í Bandaríkjunum,
hinsvegar, var mettuð fita stór hluti
af mataræði þátttakenda, og að sama
skapi voru hjartasjúkdómar algeng-
ir.
Hafði rannsóknin mikil áhrif á um-
ræðuna um fitu og næringu, mettuð
fita hefur iðulega verið flokkuð sem
slæm fita og jókst neysla á léttmjólk,
smjörlíki og sólblómaolíu afar mikið í
kjölfar rannsóknarinnar.
Hvað um Noreg?
Ekki eru þó allir sannfærðir um
ágæti rannsóknar Keys og skaðsemi
mettaðrar fitu. Hafa ýmsir bent á
svæði sem í upphafi voru hluti af sjö
ríkja rannsókninni, en ekki hafa nið-
urstöður verið birtar, líkt og Nor-
egur og Holland, þar sem neysla á
fitu var mikil en tíðni hjarta-
sjúkdóma lág, og Síle, þar sem neysla
á fitu var lítil og tíðni hjartasjúkdóma
há. Rétt eins og í rannsókn Hans
Olaf Bang á inúítum í Uummannaq,
hefur ekki náðst að sýna fram á or-
sakasamhengi, og hefur síðari rann-
sóknum mistekist að sanna að neysla
á mettuðum eða ómettuðum fitusýr-
um hafi áhrif á lífslíkur þátttakenda.
Í grein frá Harvard-læknaskól-
anum er stungið upp á nýrri flokkun
á fitusýrum. Þar er einómettuð og
fjölómettuð fita – líkt og omega-3,
enn flokkuð sem góð fita, en mettuð
fita er hins vegar flokkuð sem milli-
góð fita, ekki eins holl og ómettuð
fita, en mun að öllum líkindum ekki
valda skyndilegum dauða af völdum
hjartasjúkdóma. Transfitu flokkar
greinin þó sem slæma fitu, en sýnt
hefur verið fram á orsakasamhengi
milli transfitu og hjartasjúkdóma.
Avókado, lax og hnetur
eru rík uppspretta ein-
ómettaðrar fitu.
Getty Images/iStockphoto
Er fitan að drepa þig?
Fita er flókið mál. Fitu-
sýrur eru iðulega flokk-
aðar sem góðar eða
slæmar, hollar eða
óhollar, en hvað geta
inúítar og Japanar
kennt okkur um lýsi?
Pétur Magnússon petur@mbl.is
Mjólkurvörur og ostar innihalda mettaðar fitusýrur.
Þorskalýsi er vinsælt fæðubótaefni,
myndin er hinsvegar af ólífuolíu.