Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Síða 28
Borghildur Kristín Magnúsdóttir og eiginmaðurhennar, Sveinbjörn Yngvi Gestsson, höfðu veriðað velta fyrir sér að fara með móður Yngva í
ferð til einhvers landanna á Norðurlöndum og keyra
þar um á bílaleigubíl, þegar vinkona Borghildar
nefndi Móseldalinn í Þýskalandi. „Við Yngvi fórum að
skoða myndir þaðan og féllum strax fyrir þessari hug-
mynd. Og sjáum sko alls ekki eftir því að hafa ákveðið
að fara þangað.“ Tengdamóðir Borghildar, Sólveig
Hulda Kristjánsdóttir fagnaði áttatíu og eins árs af-
mæli í ferðinni. „Það var reyndar bara skemmtileg til-
viljun,“ segir Borghildur, „en við hugsuðum þessa ferð
samt svolítið út frá tengdamömmu því okkur fannst
skipta máli að gera þetta allt sem ánægjulegast fyrir
hana.“
Ferðalagið hófst með flugi frá Íslandi til Frankfurt
í Þýskalandi. Frá Frankfurt keyrðu þau yfir til borg-
arinnar Trier og gistu þar í þrjár nætur. Þaðan
keyrðu þau yfir til þorpsins Cochem og dvöldu þar í
fjórar nætur. Borghildur segir að sér hafi fundist
skemmtilegra að vera í Cochem heldur en í Trier
þrátt fyrir smæðina. Íbúar í Cochem eru rétt rúmlega
fimm þúsund en rúmlega hundrað þúsund manns búa
í Trier. „Trier er auðvitað stærri, en Cochem er meira
gamaldags, með þrengri götum og yfirbragðið svolítið
miðaldalegt. Það var dásamlegt að labba um göturnar,
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Yngvi og móðir hans, Sólveig, við bílaleigubílinn sem þau tóku á leigu. Þau voru
þakklát fyrir loftkælinguna í bílnum sem kom sér vel í hitanum.
Markmiðið var að
lifa og njóta
Móseldalurinn er frægur fyrir fegurð sína og vínekrur. Í gegnum dalinn
liðast áin Mósel og við bakka hennar standa fjölmörg lítil þorp sem minna á
gamla tíma þar sem má meðal annars finna kastala frá miðöldum.
Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is
Þorpið Cochem er eitt fjölmargra þorpa í
Móseldalnum. Yfir eldri hluta þorpsins gnæfir
Reichsburg-kastali en talið er að hann hafi verið
reistur í kringum árið 1000. Cochem er vinsæll
ferðamannastaður og þykir ákaflega fallegur.
Útsýnisturninn Prinzenkopfturm er í þorpinu Alf. Turninn er rúmlega 27
metra hár og úr honum er útsýni til allra átta.
Borghildur ásamt
tengdamóður sinni,
Sólveigu, í Trier.
FERÐALÖG Á Hauptmarkt í Trier má meðal annars finna markaðþar sem hægt er að kaupa ferska ávexti og nýtt græn-
meti. Þar eru líka margir veitingastaðir.
Hauptmarkt í Trier
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.7. 2018