Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.07.2018, Blaðsíða 31
af því sem síðar hefur gerst, sem afleiðing þess kjörs,
sá hinn sami fyrir. Til dæmis gat engan órað fyrir
hversu ofafengin viðbrögðin yrðu hjá þeim sem vildu
aðra niðurstöðu. Margir þeirra virðast frá fyrstu
stundu til þessa dags hafa verið ráðnir í að viðurkenna
ekki úrslitin í reynd og sumir gera allt til þess að ógilda
þau, jafnvel með brögðum ef ekki vill betur.
Hefur verið ömurlegt að fylgjast með sumum fjöl-
miðlum vestra, sem lengi hafa verið í miklu áliti. Það er
næstum óhuggulegt að sjá hvernig alríkislögeglan
vestra var misnotuð fyrir kjördag og eftir hann, svo
ekki sé talað um leyniþjónustuforingjana, sem veifuðu
fölsuðum skýrslum framan í fráfarandi forseta og hinn
nýkjörna. Þeir stórlaxar hafa heldur betur sýnt á spilin
sín. Svarti Pétur, sem oftast fer um einn í spilabox-
unum, er þar í svo mörgum eintökum, að undrun sætir.
En það voru einnig fjölmargir vel metnir fræðimenn
sem spáðu fyrir um efnahagslegar afleiðingar þess að
Trump yrði kjörinn, bæði löngu áður en það varð og
upp úr hinum óvænta sigri hans.
Markaðir í frjálsu falli!
Paul Krugman, sem er handhafi hinna frægu sænsku
verðlauna í hagfræði, sem Seðlabanki Svíþjóðar veitir í
tengslum við Nóbelshátíð, skrifaði þetta eftir að kjör-
staðir lokuðu og birti í New York Times þann 9. nóv-
ember 2016, þegar hann horfði loks framan í að Trump
væri að vinna kosningarnar:
„It really does now look like President Donald J.
Trump, and markets are plunging. When might we ex-
pect them to recover?
Frankly, I find it hard to care much, even though
this is my specialty. The disaster for America and the
world has so many aspects that the economic ramifica-
tions are way down my list of things to fear.
Still, I guess people want an answer: If the question
is when markets will recover, a first-pass answer is ne-
ver.
Under any circumstances, putting an irresponsible,
ignorant man who takes his advice from all the wrong
people in charge of the nation with the world’s most
important economy would be very bad news.“
Krugman rökstuddi þessa skoðun sína og lauk pistli
sínum með þessum orðum:
„Now comes the mother of all adverse effects — and
what it brings with it is a regime that will be ignorant
of economic policy and hostile to any effort to make it
work. Effective fiscal support for the Fed? Not a
chance. In fact, you can bet that the Fed will lose its in-
dependence, and be bullied by cranks.
So we are very probably looking at a global reces-
sion, with no end in sight. I suppose we could get lucky
somehow. But on economics, as on everything else, a
terrible thing has just happened.“
Raunveruleikinn
Nú orðið neita því fáir að bandarískur efnahagur hefur
tekið vel við sér þessi fyrstu tæpu tvö ár undir stjórn
Trumps. Hlutabréfamarkaðurinn hefur hækkað um
meira en helming. Það er vart að treysta því að slíkt sé
varanlegt eins og dæmin sanna, en þessi mikli vöxtur
er þvert á allar spár. Atvinnuleysi hefur ekki aðeins
dregist stórlega saman heldur eru nú fleiri laus störf í
Bandaríkjunum en þeir eru sem leita sér vinnu. Þörfin
fyrir matarmiða fyrir fátækustu fjölskyldurnar hefur
dregist verulega saman. Kaupmáttur hefur vaxið veru-
lega í fyrsta sinn frá bankakreppunni og þannig mætti
áfram telja. Umfangsmestu skattalækkanir í Banda-
ríkjunum frá tímum Reagans og þar áður John Kenne-
dys náðu í gegn miklu fyrr en nokkur hafði spáð. Þær
ákvarðanir hafa haft mikið að segja um hinn mikla
ávinning sem orðið hefur í efnahagsmálum. Í gær var
tilkynnt að hagvöxtur væri nú orðinn meiri en 4% mið-
aður við heilt ár. Þegar Trump sagðist í kosningabar-
áttunni sjá slíkan vöxt fyrir var gert stólpagrín að hon-
um. Ekki síst af þeim sem töldu sig vita best og nutu
mikils álits.
Það er nú það.
Morgunblaðið/Ásdís
29.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31